Betri samgöngur fá 900 milljónir úr ríkissjóði vegna tafa á flýti- og umferðargjöldum

Álagning flýti- og umferð­ar­gjalda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eiga að fjár­magna helm­ing sam­göngusátt­mál­ans, sem inni­heldur meðal ann­ars Borg­ar­lín­una. Gjöldin hafa frest­ast en áætlað er að þau skili 75 millj­örðum króna til árs­ins 2033.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra ætlaði að leggja fram frumvarp um flýti- og umferðargjöld fyrir jól. Það hefur enn ekki verið lagt fram.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra ætl­aði að leggja fram frum­varp um flýti- og umferð­ar­gjöld fyrir jól. Það hefur enn ekki verið lagt fram. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar, skip­aður nefnd­ar­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja, hefur lagt til að félagið Betri sam­göngur ohf., sem ríkið og sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins stofn­uðu og eiga í sam­ein­ingu, fái 900 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á næsta ári. Ástæðan er sú að ekki kemur til álagn­ingar flýti- og umferð­ar­gjalda á árinu 2023 eins og gert var ráð fyrir í sátt­mála um sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá árinu 2019 og eiga að fjár­magna rekstur félags­ins.

Þegar sam­göngusátt­mál­inn var gerður var hann kynntur sem 120 millj­arða fjár­fest­ing í sam­göngu­innviðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Stærsti kostn­að­ar­liður sátt­mál­ans er hin svo­kall­aða Borg­ar­lína. Þá var boðað að ríkið kæmi með 45 millj­arða króna að borð­inu, að með­töldu sölu­verð­mæti Keldna­lands­ins, og sveit­ar­fé­lögin 15 millj­arða króna. Þá stóðu eftir 60 millj­arð­ar, sem boðað var að inn­heimta skyldi með sér­stökum flýti- og umferð­ar­gjöld­um til árs­ins 2033. Sú tala hefur nú verið upp­reiknuð, að teknu til­liti til verð­lags­breyt­inga, og er nú áætluð 74,6 millj­arðar króna.

Ef upp­hæð­inni er skipt jafnt yfir árin frá og með 2024 og út samn­ings­tím­ann þá nema árlegar tekjur af flýti- og umferð­ar­gjöldum 7,5 millj­örðum króna.

Markmiðið að gangsetja gjöldin fyrir árslok 2024

Kjarninn greindi frá því í sept­em­ber að sam­kvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar ætl­aði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að leggja fram frum­varp strax í nóv­em­ber á þessu ári umflýti- og umferð­ar­gjöldin. Lítið hefur heyrst af útfærslu þess­ara gjalda, sem eiga þó, líkt og áður sagði, að fjár­magna helm­ing­inn af öllum þeim sam­göngu­fram­kvæmdum sem framundan eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu næsta rúma ára­tug­inn.

[adspot]„Með frum­varp­inu er lagt til að tekið verði upp nýtt fyr­ir­komu­lag gjald­töku í formi flýti- og umferð­ar­gjalda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með gild­is­töku hinn 1. jan­úar 2024,“ segir í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar, en þar kemur einnig fram að mark­mið frum­varps­ins sé að standa „standa straum af stofn­fram­kvæmdum sam­göngu­mann­virkja, fjár­mögnun og afleiddum kostn­aði slíkrar upp­bygg­ing­ar.“

„Gjöld­unum er ætlað að tryggja nauð­syn­lega fjár­mögnun um leið og þeim er ætlað að stuðla að því að mark­miðum Sam­göngusátt­mála ríkis og sex sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði náð,“ sagði í þing­mála­skránni.

Frum­varpið hefur enn sem komið er ekki verið lagt fram og frestun á gjald­tök­unni kallar á 900 milljón króna fram­lag úr rík­is­sjóði á næsta ári. Margt bendir til þess að verk­efnið sé skammt á veg komið en 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn aug­lýsti fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið eftir sér­fræð­ingum til að móta gjald­tök­una. Í þeirri aug­lýs­ingu sagði meðal ann­ars að mark­miðið sé „að allir helstu þættir í nýju kerfi sam­göngu­gjalda verði gang­settir fyrir árs­lok 2024.“

Skýrsla unnin um uppsetningu tollahliða

Í febr­úar greindi Kjarn­inn frá því að Betri sam­göngur hefðu þegar um haustið 2021 lagt fram til­lögur til rík­is­ins og sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að haf­ist yrði handa við að útfæra gjöld­in, með það fyrir augum að þau yrði lögð á frá 1. jan­úar 2023.

Minn­is­blaðið sem Betri sam­göngur sendu rík­inu og sveit­ar­fé­lög­unum má nálg­ast hér, en í því er meðal ann­ars dregin upp gróf mynd af því hversu há veggjöldin þyrftu að vera á anna­­tímum og utan þeirra til þess að nægt fé inn­heimt­ist árlega.

[links]Fjár­mögn­un­ar­á­ætlun sam­göngusátt­mál­ans frá 2019 gerði ráð fyrir því að fimm millj­arðar króna yrðu inn­heimtir árlega á 12 ára tíma­bili með þessum gjöld­um, alls 60 millj­arðar króna sem nú eru orðnir tæp­lega 75 millj­arðar króna.

Í minn­is­blað­inu voru settir fram grófir útreikn­ingar um það hve mikið þyrfti að rukka fyrir akstur í gegnum tolla­hlið sem sett væru upp við akst­ursleiðir inn að mið­svæði höf­uð­borg­ar­inn­ar, í Foss­vogs­dal og svo á bæði Miklu­braut og Reykja­nes­braut við ósa Ellið­aráa, en Betri sam­göngur fengu verk­fræði­stof­una Eflu til þess að vinna skýrslu um upp­setn­ingu tolla­hliða á þeim stöð­um.

Þar kom fram að ef allar ferðir í gegnum tolla­hliðin myndu kosta 50 krónur og sama gjaldið væri rukkað allan sól­­­ar­hring­inn myndi það skila 5,1 millj­­arði króna í árlegar tekj­­ur, ef gengið væri út frá því að dag­­legar ferðir um í gegnum tolla­hliðin væru 250 þús­und tals­ins.

Einnig var farið yfir það hvernig gjöldum af þessu tagi er beitt í öðrum borgum á Norð­ur­lönd­unum til þess að létta á bíla­um­ferð á háanna­tím­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár