Von á frumvarpi frá Bjarna um ný umferðargjöld á höfuðborgarsvæðinu

Ný gjald­taka á akandi umferð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er áformuð frá 1. jan­úar 2024. Fjár­mála­ráð­herra mun leggja fram frum­varp um málið á næst­unni, en lítið hefur heyrst af útfærsl­unni á þessum gjöldum, sem eiga að skila a.m.k. 60 millj­örðum á 12 árum.

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra mun leggja fram frumvarp í haust um flýti- og umferðargjöld á höfuðborgarsvæðinu.
Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra mun leggja fram frum­varp í haust um flýti- og umferð­ar­gjöld á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar mun Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra leggja fram frum­varp strax í nóv­em­ber næst­kom­andi um svokölluð flýti- og umferð­ar­gjöld á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Lítið hefur heyrst af útfærslu þess­ara gjalda, sem eiga þó að fjár­magna helm­ing­inn af öllum þeim sam­göngu­fram­kvæmdum sem framundan eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu næsta rúma ára­tug­inn.

„Með frum­varp­inu er lagt til að tekið verði upp nýtt fyr­ir­komu­lag gjald­töku í formi flýti- og umferð­ar­gjalda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með gild­is­töku hinn 1. jan­úar 2024,“ segir í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar, en þar kemur einnig fram að mark­mið frum­varps­ins sé að standa „standa straum af stofn­fram­kvæmdum sam­göngu­mann­virkja, fjár­mögnun og afleiddum kostn­aði slíkrar upp­bygg­ingar.“

„Gjöld­unum er ætlað að tryggja nauð­syn­lega fjár­mögnun um leið og þeim er ætlað að stuðla að því að mark­miðum Sam­göngusátt­mála ríkis og sex sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði náð,“ segir í þing­mála­skránni.

Umferðargjöld eiga að skila 60 milljörðum króna til framkvæmda

Þegar ríkið og sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sömdu um 120 millj­arða fjár­fest­ingu í sam­göngu­innviðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2019 var boðað að ríkið kæmi með 45 millj­arða að borð­inu, að með­töldu sölu­verð­mæti Keldna­lands­ins, og sveit­ar­fé­lögin 15 millj­arða. Þá stóðu eftir 60 millj­arðar, sem boðað var að inn­heimta skyldi með sér­stökum flýti- og umferð­ar­gjöldum.

Sem áður segir hefur hins vegar lítið heyrst af áformum yfir­valda hvað þennan síð­asta lið varðar. Félagið Betri sam­göngur ohf., sem ríkið og sveita­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins stofn­uðu og eiga í sam­ein­ingu, mun hins vegar hafa það á sínum herðum að inn­heimta þessi nýju gjöld lögum sam­kvæmt.

[adspot]

Það er hins vegar stjórn­mála­manna að útfæra gjöldin, setja fram og fá sam­þykkt laga­frum­varp sem heim­ilar gjald­tök­una á Alþingi.

Í erindi sem Davíð Þor­láks­son fram­kvæmda­stjóri Betri sam­gangna hélt á fundi hjá Vega­gerð­inni snemma á árinu sagði hann frá því að sam­tal væri hafið milli sveit­ar­fé­laga, rík­is­ins og Betri sam­gangna um útfærslu þess­ara gjalda.

Sjálfvirk gjaldtaka í Fossvogsdal og við Elliðaárósa rýnd

Í kjöl­farið óskaði Kjarninn eftir því að fá frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu öll fyr­ir­liggj­andi gögn sem tengd­ust mögu­legri álagn­ingu gjalda af þessu tagi á akandi umferð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.[links]

Í febr­úar greindi Kjarninn svo frá því að Betri sam­göngur hefðu þegar um haustið 2021 lagt fram til­lögur til rík­is­ins og sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að haf­ist yrði handa við að útfæra gjöldin, með það fyrir augum að þau yrði lögð á frá 1. jan­úar 2023.

Minn­is­blaðið sem Betri sam­göngur sendu rík­inu og sveit­ar­fé­lög­unum má nálg­ast hér, en í því er meðal ann­ars dregin upp gróf mynd af því hversu há veggjöldin þyrftu að vera á anna­tímum og utan þeirra til þess að nægt fé inn­heimt­ist árlega.

Fimmtíukall á hverja ferð myndi skila 5,1 milljarði í tekjur á ári

Fjár­mögn­un­ar­á­ætlun sam­göngusátt­mál­ans frá 2019 gerði ráð fyrir því að 5 millj­arðar yrðu inn­heimtir árlega á 12 ára tíma­bili með þessum gjöldum, alls 60 millj­arðar sem áður segir.

Í minn­is­blað­inu voru settir fram grófir útreikn­ingar um það hve mikið þyrfti að rukka fyrir akstur í gegnum tolla­hlið sem sett væru upp við akst­ursleiðir inn að mið­svæði höf­uð­borg­ar­innar, í Foss­vogs­dal og svo á bæði Miklu­braut og Reykja­nes­braut við ósa Ellið­aráa, en Betri sam­göngur fengu verk­fræði­stof­una Eflu til þess að vinna skýrslu um upp­setn­ingu tolla­hliða á þeim stöðum.

Þar kom fram að ef allar ferðir í gegnum tolla­hliðin myndu kosta 50 krónur og sama gjaldið væri rukkað allan sól­ar­hring­inn myndi það skila 5,1 millj­arði í árlegar tekj­ur, ef gengið væri út frá því að dag­legar ferðir um í gegnum tolla­hliðin væru 250 þús­und tals­ins.

Einnig var farið yfir það hvernig gjöldum af þessu tagi er beitt í öðrum borgum á Norð­ur­lönd­unum til þess að létta á bíla­um­ferð á háanna­tímum.

Í minn­is­blaði Betri sam­gangna sagði að minnsta kosti þrenns konar hvata væri hægt að inni­fela í gjald­skrá.

  • I. Hvata til að nýta aðra ferða­máta og draga þannig úr umferð­artöfum og umhverf­is­á­hrifum sam­gangna í heild.
  • II. Hvata til að aka utan anna­tíma virka daga og draga þannig úr umferð­artöfum og umhverf­is­á­hrifum bíla­um­ferðar.
  • III. Hvata til vist­vænnar end­ur­nýj­unar bif­reiða­flot­ans og að draga þannig úr umhverf­is­á­hrifum bíla­um­ferðar

Hærri gjöld til að fjármagna rekstur almenningssamgangna?

Í minn­is­blað­inu frá stjórn Betri sam­gangna, sem leidd er af Árna Mathiesen fyrr­ver­andi ráð­herra, sagði að af fyr­ir­liggj­andi gögnum mætti ráða að flýti- og umferð­ar­gjöld gætu verið góður kostur til að ná settum mark­miðum sam­göngusátt­mál­ans og að það ættu ekki að vera tækni­legar hindr­anir í inn­leið­ingu þeirra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Hins vegar sagði að til að sátt yrði um gjald­tök­una væri ljóst að svara þyrfti fjöl­mörgum spurn­ingum til við­bótar, til dæmis hvort það væri „æski­legt og sann­gjarnt að taka gjald af umferð víðar“ en ein­ungis við helstu stofnæðir inn á og út af mið­svæði Reykja­vík­ur­borgar, eins og horft var til í þeim grein­ingum sem Betri sam­göngur fólu verk­fræði­stof­unni Eflu að fram­kvæma.

„Þá þarf að greina greiðslu­vilja veg­far­enda, meta hver upp­hæð gjalda þarf að vera á anna­tímum og utan anna­tíma til að bæta umferð­ar­flæði, minnka tafir og mengun. Þá er mik­il­vægt að ræða hvort inn­heimta eigi hærri gjöld og nýta eigi hluta þeirra í rekstur almenn­ings­sam­gangna til að auka tíðni og þjón­ustu þeirra og bæta val­kosti veg­far­enda um leið og gjöldin verði inn­leidd,“ sagði í minn­is­blaði Betri sam­gangna.

Þetta mun vænt­an­lega allt verða til umræðu á Alþingi síðar á árinu, ef fjár­mála­ráð­herra leggur fram fyr­ir­hugað frum­varp sitt eins og gert er ráð fyrir í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár