Segja þá sem kaupi sér skyndibitakeðjur ekki þurfa undanþágu frá banni við samráði

Ný frum­varps­drög und­an­skilja afurða­stöðvar í slátur­iðn­aði tíma­bundið frá banni við ólög­mætu sam­ráði. Félag Atvinnu­rek­enda segir mörg fyr­ir­tæki í geir­anum í prýði­legum rekstri og þurfi ekki á und­an­þág­unni að halda.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hefur lagt fram frum­varps­drög í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem heim­ila afurð­ar­stöðvum í slátur­iðn­aði að kom­ast undan ákvæðum um bann við ólög­mætu sam­ráði.

Félag atvinnu­rek­enda er veru­lega ósátt með áformin og í umsögn bendir það á að mörg fyr­ir­tæki í slátur­iðn­aði skili miklum hagn­aði. Svo miklum að þau eigi í hálf­gerðum vand­ræðum með að eyða honum. Eitt þeirra, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga (KS), hafi til að mynda nýverið ráð­stafað hluta hagn­aðar síns í að kaupa stóra skyndi­bita­keðju í Reykja­vík.

Byggir að hluta til á tillögum spretthóps Steingríms

Í frum­varps­drög­unum er lagt til að ákvæði verði bætt við búvöru­lög til bráða­birgða sem und­an­skilji afurða­stöðvar í slátur­iðn­aði frá ákvæðum sam­keppn­islaga um bann við ólög­mætu sam­ráði. Það sé gert til að ná fram nauð­syn­legri hag­ræð­ingu. Afurða­stöðv­unum verði heim­ilt, að til­teknum skil­yrðum upp­fylltum, að stofna og starf­rækja félag um flutn­ing slát­ur­gripa, slátrun, birgða­hald og frum­vinnslu afurða auk skyldra verk­efna. Ákvæðið á að gilda til 2026.

Frum­varpið byggir að hluta á til­lögum sprett­hóps, sem Stein­grímur J. Sig­fús­son fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna leiddi, og skil­aði af sér til­lögum í sumar. Hópurinn var skip­aður vegna alvar­legrar stöðu í mat­væla­fram­leiðslu á Íslandi sökum þess að verð á aðföngum til bænda hafði hækkað gríð­ar­lega eftir inn­rás Rússa í Úkra­ín­u.

[adspot]Markmið laga­setn­ing­ar­innar er að styðja við end­ur­skipu­lagn­ingu og hag­ræð­ingu í slátrun og kjöt­vinnslu. í grein­ar­gerð segir að með til­lög­unum sé lagt til að fylgt sé eftir þeim mark­miðum búvöru­laga að stuðla að fram­förum og auk­inni hag­kvæmni í búvöru­fram­leiðslu og vinnslu og sölu búvara til hags­bóta fyrir fram­leið­endur og neyt­endur. „Með auk­inni hag­kvæmni í slátrun má draga úr kostn­aði við fram­leiðsl­una sem er afar mik­il­vægt við erf­iðar aðstæður. Þá getur þessi heim­ild orðið til þess að flýta fyrir end­ur­nýjun í slát­ur­húsum og ýtt undir úreld­ingu síður hag­kvæmra fram­leiðslu­ein­inga. Ef ekki verður aðhafst eru líkur á að enn muni aukast þörfin á hag­ræð­ingu og upp­stokkun verði í rekstri kjöt­af­urða­stöðva með ófyr­ir­séðum byggða- og sam­fé­lags­legum áhrifum þar sem þær starfa.“

Ljóst sé að mörg fyrirtækin séu í prýðilegum rekstri

Ein umsögn hefur borist um frum­varps­drögin, frá Félagi atvinnu­rek­enda. Þar segir að sú erf­iða staða afurða­stöðva í slátur­iðn­aði sem dregin sé upp í grein­ar­gerð frum­varps­drag­anna eigi klár­lega ekki við um öll fyr­ir­tæki sem talin séu upp sem slát­ur­leyf­is­hafar. Ljóst sé að mörg þeirra séu í prýði­legum rekstri. „Afkoma Kaup­fé­lags Skag­firð­inga (KS) hefur þannig verið ljóm­andi góð. Félagið hefur hagnazt um 18,3 millj­arða króna á síð­ustu fjórum árum, þar af 5,4 millj­arða í fyrra. Stjórn­endur félags­ins hafa verið í hálf­gerðum vand­ræðum með hagn­að­inn, eins og sjá má á því að þeir hafa m.a. fjár­fest hann í skyndi­bita­keðjum í Reykja­vík.“ Er þar vísað í kaup KS á Gleðipinnum, sem reka ham­borg­ara­stað­ina American Style, Aktu Taktu og Ham­borg­arafa­brikk­una, pizzastaðina Shake & Pizza og Blackbox auk Saffran, Pítunnar og Keilu­hall­ar­innar. Auk þess reka Gleðip­innar trampólín­garð­inn Rush. Áður hafði KS keypt ham­borg­ara­stað­inn Metro.

[links]Þá bendir Félag atvinnu­rek­enda á að hagn­aður Stjörnu­gríss hafi verið 325 millj­ónir króna á síð­asta ári, eða 68 pró­sent meiri en árið 2020. „Hagnaður Slát­ur­fé­lags Suð­ur­lands á síð­asta ári var 232 millj­ónir króna og í árs­reikn­ingi vitnað til betri mark­aðs­að­stæðna og sterk­ari stöðu.“

Það furðar sig á að hvergi í grein­ar­gerð frum­varps­drag­anna sé minnst einu orði á nýlegt dæmi um sam­runa kjöt­af­urða­stöðva sem sam­keppn­is­yf­ir­völd heim­il­uðu. Þar er vísað í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins þegar það heim­il­aði sam­runa kjöt­af­urða­stöðv­anna Norð­lenska, Kjarna­fæðis og SAH afurða með skil­yrðum, sem tryggja eiga hag bæði bænda og neyt­enda. „Mögu­leikar til hag­ræð­ingar á þessum mark­aði, innan ramma núgild­andi sam­keppnis- og búvöru­lög­gjafar, eru því aug­ljós­lega fyrir hendi.“

Að mati Félags atvinnu­rek­enda hafi höf­undar frum­varps­drag­anna reynt að skrifa inn í bráða­birgða­á­kvæðið um hina tíma­bundnu und­an­þágu frá sam­keppn­is­lögum sum af þeim skil­yrðum, sem sett voru fyrir sam­runa kjöt­af­urða­stöðv­anna nyrðra, til að bæta áferð máls­ins. „Það breytir ekki þeirri stað­reynd að yrðu frum­varps­drögin að lögum gætu sam­keppn­is­yf­ir­völd ekki haft eft­ir­lit með því sam­starfi sem und­an­þágan myndi heim­ila og sett því skil­yrði til að gæta hags­muna neyt­enda og keppi­nauta. FA sér enga ástæðu til að und­an­þiggja sam­starf á þessum mark­aði slíku eft­ir­liti, sem fyr­ir­tæki á öðrum mörk­uðum mega og eiga að sæta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár