Heimssýn boðar í hópferð til að „samfagna Brexit“

Samtök sem lagst hafa gegn inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið skipu­leggja hóp­ferð til London til að fagna útgöngu Bret­lands.

Heimssýn boðar í hópferð til að „samfagna Brexit“
Gunn­laugur Ingv­ars­son og Hallur Hallsson Heimssýn hyggst sam­fagna með Bretum í lok mán­að­ar­ins.

Heimssýn, hreyf­ing sjálf­stæð­is­sinna í Evr­ópu­málum, hefur boðað til hóp­ferðar Íslend­inga til London til að sam­fagna útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu. Tengiliður vegna ferð­ar­innar er Gunn­laugur Ingv­ars­son, for­maður Frels­is­flokks­ins, sem leggst gegn fjöl­menn­ingu á Íslandi. Far­ar­stjóri verður Hallur Hallsson frétta­maður og rit­höf­undur.

Bretland gengur úr Evr­ópu­sam­band­inu 31. jan­úar að óbreyttu og hefur útgangan í dag­legu tali verið kölluð Brexit. Hópferð Heims­sýnar mun standa í þrjár nætur frá fimmtu­deg­inum 30. jan­úar til sunnu­dags­ins 2. febr­úar. „Hér er um heims­sögu­legan við­burð að ræða,“ segir í til­kynn­ingu frá Heimssýn vegna ferð­ar­innar.

Heimssýn eru sam­tök sem hafa barist gegn inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið. Formaður þeirra er Haraldur Ólafsson veð­ur­fræð­ingur, en margir áhrifa­menn hafa gegnt því emb­ætti í gegnum tíð­ina, meðal ann­ars Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra, Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, og Jón Bjarna­son, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár