SA telja eina meginforsendu fjárlaga í uppnámi verði Íslandsbanki ekki seldur

Í umsögn Samtaka atvinnu­lífs­ins um fjár­laga­frum­varpið er varað við þeirri skulda­aukn­ingu sem sé fyr­ir­liggj­andi á næsta ári ef ríkið selur ekki 42,5 pró­sent hlut sinn í Íslands­banka. Ef ekki verði að sölu bank­ans sé „ein meg­in­for­senda fjár­laga í upp­námi.“

Halldór Benjamín Þorbergsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son er fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Mynd: Facebook-síða SA

Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) hvetja til þess að ríkið haldi áfram sölu­ferli eigna­hluta þess í Íslands­banka á næsta ári. Verði ekki af sölu bank­ans á árinu 2023 sé ein meg­in­for­senda fjár­laga í upp­námi. Þetta kemur fram í umsögn sam­tak­anna um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp.

Þar segir að sterk rök séu til þess að ríkið losi eign­ar­hald á Íslands­banka, meðal ann­ars þau að hvergi var opin­bert eign­ar­hald fjár­mála­fyr­ir­tækja jafn mikið og hér á landi og að veru­legir fjár­munir rík­is­sjóðs liggi í áhættu­rekstri. „Þá eru að auki sterk rök fyrir því að losa um þessa fjár­muni til að minnka skulda­söfnun rík­is­ins sem hefur verið gríð­ar­leg síð­ust ár eins og kunn­ugt er. Það er því ljóst að verði ekki af sölu bank­ans á árinu 2023 er ein meg­in­for­senda fjár­laga í upp­námi.“

Þar er vísað til þess að í fjár­laga­frum­varp­inu er gert ráð fyrir að 75 millj­arðar króna fáist fyrir eft­ir­stand­andi 42,5 pró­sent hlut rík­is­ins í bank­anum. Senni­legt er að sala á honum myndi skila hærri upp­hæð, en mark­aðsvirði hans í dag er um 102 millj­arðar króna. Verði hlut­ur­inn ekki seldur mun þurfa að brúa þetta 75,8 millj­arða króna gat með lán­tökum, með til­heyr­andi áhrifum á sjóðs­streymi og skulda­stöðu. Það myndi þýða að heild­ar­skuldir rík­is­ins yxu um sex pró­sent umfram það sem nú er gert ráð fyrir.

[adspot]Í umsögn SA segir að þar sem um að ræða fjár­hæð sem sé hærri en sem sam­svarar fjár­fest­ing­ar­fram­lögum rík­is­ins til upp­bygg­ingar Land­spít­al­ans og vega­kerf­is­ins árin 2022 og 2023, sem sé sam­an­lagt 73 millj­arðar króna. „Í þessu sam­hengi er mik­il­vægt að hafa í huga að vaxta­kostn­aður rík­is­sjóðs hefur farið ört vax­andi eins og áður hefur verið vikið að og því er til mik­ils að vinna að losa fremur um eign­ar­hald í áhættu­rekstri en að taka lán í núver­andi vaxtaum­hverfi. Því má var­lega áætla að vaxta­gjöld af líkri skulda­aukn­ingu myndu nema um 4-5 ma.kr. árlega sem eru veru­legir fjár­munir.“ Í umsögn­inni er sú upp­hæð, fjórir til fimm millj­arðar króna, settir í það sam­hengi að hún sé álíka há og rekstr­ar­fram­lög rík­is­ins til skóg­ræktar á fjórum árum eða Tækni­skól­ans á einu ári.

Frekari sala enn á ís

Hávær gagn­rýni kom fram í kjöl­far síð­asta hluta sölu­með­ferðar á hlutum í Íslands­banka, þegar 22,5 pró­sent hlutur rík­is­ins í bank­anum var seldur til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði á verði sem var undir mark­aðs­verði.

[adspot]Könnun sem Gallup gerði skömmu eftir að salan var um garð gengin sýndi að 87,2 pró­sent lands­manna töldu að staðið hafi verið illa að útboði og sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka, næstum sjö af hverjum tíu töldu að lög hefðu verið brotin og næstum níu af hverjum tíu töldu að óeðli­legir við­skipta­hættir hefðu verið við­hafðir.

Kjarninn greindi frá því fyrir viku að ekki hafi verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka. Yfir­lýs­ing for­manna stjórn­ar­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­ari hlutum í Íslands­banka að sinni, stendur því enn.

Þetta kom fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um áfram­hald­andi sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka.

Ráðuneytið fær skýrslu Ríkisendurskoðunar í dag

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ákvað að fela Rík­is­end­ur­skoðun að rann­saka umgjörð og fyr­ir­komu­lag söl­unnar en auk þess rann­sakar Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands ýmsa þætti hennar, sér­stak­lega við­skipti sem áttu sér stað í aðdrag­anda söl­unnar og atferli hluta þeirra sölu­ráð­gjafa sem ráðnir voru til að selja hluti í bank­anum.

[links]Það var gert þrátt fyrir háværar kröfur um að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd Alþingis, sem hefur mun víð­tæk­ari rann­sókn­ar­heim­ildir, til að fara yfir söl­una. Í könnun Gallup frá því í apríl kom fram að næstum þrír af hverjum fjórum aðspurðum vildi að rann­sókn­ar­nefnd yrði skipuð og taldi að ekki væri nægj­an­legt að Rík­is­end­ur­skoðun skoð­aði málið. Meiri­hluti kjós­enda allra flokka utan eins, Sjálf­stæð­is­flokks, voru á þeirri skoðun.

Rík­is­end­ur­skoð­andi hefur lokið við gerð skýrslu sinnar, sem upp­haf­lega átti að skila í júní­mán­uði, og hún fer í umsagn­ar­ferli í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og hjá Banka­sýslu rík­is­ins í dag, mið­viku­dag. Búast má við því að skýrsl­unni verði skilað til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í lok næstu viku og að hún verði í kjöl­farið gerð opin­ber. Fjár­mála­eft­ir­litið hefur ekk­ert gert opin­bert um sína skoðun á söl­unni.

Í umsögn SA er vikið stutt­lega að þessu og sagt sam­tökin vilji „í senn hvetja ein­dregið til að horft verði til þeirra ábend­inga sem fram koma frá báðum aðilum en jafn­framt að hvetja til að áfram verði haldið með sölu­ferli eigna­hluta rík­is­ins í Íslands­banka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár