Segist hafa fengið alvarlegar hótanir og að hatrið hafi sigrað hann í dag

Ragnar Þór Ing­ólfs­son seg­ist hafa ákveðið að draga for­seta­fram­boð sitt til baka yfir kaffi­bolla með kon­unni sinni í morgun. Hann finni fyrir létti og óskar þeim sem beittu sér gegn honum vel­farn­aðar.

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég skal við­ur­kenna það að ég átti mjög erfitt eftir að ég tók þessa ákvörðun og var við það að brotna niður. Ekki vegna þess að ég fengi ekki meiri völd, heldur að sjá á eftir tæki­fær­inu sem við höfðum til að verða ósigr­andi.“ Þetta segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í færslu á Facebook um ástæðu þess að hann ákvað að draga til baka fram­boð sitt til for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) fyrr í dag.

[links]Draumur hans og mark­mið hafi verið að sam­eina hreyf­ing­una fyrir fólkið innan hennar og fólkið í land­inu. „Ná árangri og breyta til hins betra. En fyrir þeim er ekki ótak­mörkuð inni­stæða. Sér­hags­muna­öflin sem við erum að berj­ast á móti eru hrika­leg og mun ósvífn­ari og skipu­lagð­ari heldur en flestir gera sér grein fyrir. Þess vegna byggj­ast mögu­leikar okkar og árangur á sam­stöðu. En allt hefur sín mörk og stundum sigrar hat­rið eins og segir í text­anum. Hatrið sigr­aði mig í dag. Samvinna og sam­staða er val, sömu­leiðis átök og sundr­ung.“

Í færsl­unni rekur Ragnar Þór að fyrir kjara­samn­ing­anna 2019 hafi honum og fjöl­skyldu hans borist alvar­legar hót­anir. „Hótanir sem hægt var að rekja til þeirrar orð­ræðu sem var á þeim tíma, þið munið, við vorum stór­hættu­legt og kol­ruglað fólk með sturl­aðar kröfur sem legði hag­kerfið í rúst og allt það.“

Um síð­ustu mán­aða­mót, sam­hliða auk­inni nei­kvæðri athygli sem beind­ist að honum með til­heyr­andi áreiti, hafi aftur farið að bera á alvar­legum hót­unum. Ég tala ekki mikið um þetta og ég læt alltof sjaldan vita af því. Guðbjörg konan mín tekur þetta mjög nærri sér, eðli­lega því við erum með ung börn á heim­il­inu.“

Ótrúlega ósmekkleg orðræða

Fyrir síð­ustu samn­inga sem und­ir­rit­aðir voru 2019 hafi nokkur stétt­ar­fé­lög myndað banda­lag og náð, að hans mati, mjög góðri nið­ur­stöðu við erf­iðar aðstæður. „Marg­þættar kjara­bætur í bland við aðgerð­ar­pakka stjórn­valda. Ef okkur tókst þetta í smærri hóp hugs­aði ég sem svo, hversu miklu getum við náð ef við stöndum saman sem enn breið­ari fylk­ing og á vett­vangi ASÍ? Við verðum óstöðv­andi og við munum ná gríð­ar­legum árangri fyrir okkar fólk. Við vorum byrjuð á þess­ari vinnu á óform­legum vett­vangi ASÍ þar sem saman komu lands­sam­bönd versl­un­ar­fólks, starfs­greina­sam­bands­ins og iðn­að­ar­manna. Í þau 14 ár sem ég hef starfað innan hreyf­ing­ar­innar hef ég sjaldan fundið jafn góðan anda innan ólíkra hópa. Við vorum að hefja vinnu við það hvernig við gætum sam­ein­ast um ólíkar áherslur og var ég afar bjart­sýnn fyrir þingið um að okkur tæk­ist raun­veru­lega að leiða okkur saman.“

[adspot]Síðustu daga og vikur fyrir þingið höfðu hins vegar lit­ast af ótrú­lega ósmekk­legri orð­ræðu og árásum á hans per­sónu. „Ég var ítrekað kall­aður valda­sjúkur ofbeld­is­maður og sak­aður um að ætla að segja upp öllu starfs­fólki ASÍ kæm­ist ég til valda. Það er einkar dap­ur­legt að gjald­fella orðið ofbeldi með þessum hætti. Að stilla upp póli­tískum deilum og ágrein­ingi upp sem ofbeldi eru kaldar kveðjur til þeirra sem raun­veru­lega verða fyrir ofbeldi.“

Ragnar Þór seg­ist oft hafa talað um mik­il­vægi sam­stöðu ólíkra hópa til að ná árangri. „Við erum að vinna fyrir fólkið okkar. Fólkið sem treystir okkur fyrir að bæta lífs­kjörin. Þau öfl sem hafa viljað okkur burt hafa ekki talað einu orði um þetta. Ekki einu orði um fólkið okkar sem getur vart borgað af lán­unum sínum eða húsa­leig­una. Eða fjöl­skyldur sem geta lítið orðið gert annað en að kaupa síhækk­andi nauð­synjar í 9% verð­bólgu og hækk­andi vöxtum. Stjórn­völd hafa svo lítið lagt til mál­anna annað en auknar álögur ofan á allt saman. Af hverju í ósköp­unum getur umræðan ekki snú­ist um þetta? Af hverju þetta taum­lausa hatur? Hvað höfum við eig­in­lega gert þessu fólki?“

Trúði því að hægt væri að snúa bökum saman

Ragnar Þór fjallar síðan nánar um ásak­anir á hendur sér um ofbeldi og að þeim hafi verið slegið upp á for­síðum og með grein­ar­skrifum, und­ir­rit­uðu af full­orðnu fólki. Þar vísar hann í grein sem hópur úr ell­efu verka­lýðs­fé­lögum sem til­heyra ASÍ birtu aðsenda á Vísi nýverið þar sem þeir lýstu yfir áhyggjum af stjórn­ar­háttum Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, for­manns Eflingar, og Ragn­ars Þórs. Á meðal þeirra sem skrif­uðu undir þá grein var Ólöf Helga Adolfs­dóttir, sem bauð sig fram til for­seta ASÍ gegn Ragnari Þór.

Hann segir þetta vera fólk sem með réttu ættu að kall­ast félagar hans. „Ég er vændur um að sækj­ast í völd, öskri og skelli hurðum ef ég fæ ekki mínu fram og vilji reka fólk fyrir engar sakir. Þrátt fyrir að hafa tek­ist, ásamt stjórn VR, að skapa frá­bæra stemn­ingu og liðs­heild innan VR síð­ustu 6 ár. Þar hefur samt engum verið sagt upp og starfs­á­nægja með því sem best þekk­ist. En allt þetta skiptir engu máli. Sé lygin sögð nægi­lega oft fer fólk að trúa henni. Trúa því að þetta sé mögu­lega satt.“

Ragnar Þór seg­ist hafa farið inn á þing ASÍ með háleit mark­mið og ein­læga von um að þar tæk­ist að snúa bökum saman. „Ég bauð mig fram til að leiða þetta verk­efni. Ekki af því að ég er sjúkur í völd heldur vegna þess að ég hafði trú á því að þetta væri hægt, í ljósi þess hversu vel okkur hefur tek­ist til í VR við að sam­eina ólík sjón­ar­mið og vinna sem ein heild, ekki meiri eða minni­hluti heldur liðs­heild.“

Samningsstaðan gagnvart stjórnvöldum ekki lengur til staðar

Í morgun hafi hann fengið sent skjá­skot af enn einni færslu frá for­manni stétt­ar­fé­lags innan ASÍ, Halldóru Sveins­dóttur for­manns Bárunnar. „Í færsl­unni er ég enn og aftur sak­aður um ofbeldi og mark­mið mitt sé fyrst og fremst að segja upp öllu starfs­fólki. Þegar börnin mín lesa fyr­ir­sagnir um að pabbi þeirra stundi ofbeldi og reki fólk fyr­ir­vara­laust eða heyra því hvíslað á förnum vegi, brestur eitt­hvað. Ég ræddi þetta við kon­una mína yfir kaffi­bolla í morgun, eftir að við lásum nýj­ustu árás­ina í minn garð. Árás á mína æru og per­sónu. Árás á miðju þingi ASÍ sem ég von­að­ist til að vera vett­vangur sátta. Ákváðum við í sam­ein­ingu að þetta væri ekki þess virði. Því miður.“

Ragnar Þór seg­ist þó finna fyrir létti yfir því að vera laus úr sam­band­inu við ASÍ. „Ég tók ákvörðun um að velja að vinna frekar með öllu því frá­bæra fólki sem starfar á vett­vangi VR. Ég valdi sam­heldni og virð­ingu. Okkur í VR mun örugg­lega takast vel til í næstu kjara­samn­ingum þó samn­ings­staðan gagn­vart stjórn­völdum sé ekki lengur til staðar. Ég mun gera mitt allra besta eins og alltaf fyrir félags­fólk VR. Því lofa ég. Ég ber engan kala til þess fólks sem var með yfir­lýst mark­mið um að fella okkur á þing­inu. Við þau vil ég segja. Nú erum við farin, ekki lengur fyrir. Nú fáið þið tæki­færi til að leiða kjara­samn­inga ykkar félaga og vett­vang ASÍ til að styðja við þá veg­ferð. Ég óska ykkur alls hins besta. Ég vona að þið nýtið tæki­færið vel og náið sem bestum árangri fyrir ykkar fólk, árangri sem nýt­ist okkur í okkar bar­áttu.“

Færslu Ragnars Þórs í heild má lesa hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár