Vinstri græn styðja stækkun NATO í fyrsta sinn

Utan­rík­is­mála­nefnd, undir for­ystu Vinstri grænna, leggur til að til­laga um aðild Finn­lands og Sví­þjóðar að NATO verði sam­þykkt. Þetta er í fyrsta sinn sem Vinstri græn styðja við stækkun NATO.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Utan­rík­is­mála­nefnd, þar sem Bjarni Jónsson, þing­maður Vinstri grænna, gegnir for­mennsku, sam­þykkti á fundi sínum í gær nefnd­ar­á­lit um til­lögu til þings­á­lykt­unar um stað­fest­ingu við­bót­ar­samn­inga við Norður-Atl­ants­hafsa­samn­ing­inn um aðild Finn­lands og Sví­þjóðar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO).

[links]Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sagði í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans í byrjun maí að ekki væri um að ræða stefnu­breyt­ingu hjá flokknum með stuðn­ingi íslenskra stjórn­valda við aðild­ar­um­sókn Svía og Finna í NATO. Hún sagð­ist sjálf ætla að styðja við þær ákvarð­anir sem Finnland og Svíþjóð myndu taka varð­andi aðild­ar­um­sókn að NATO.

Þetta er samt sem áður í fyrsta sinn sem for­maður Vinstri grænna styður við stækkun NATO.

Í stefnu Vinstri grænna að Ísland segi sig úr NATO

Fyrrum for­maður flokks­ins, Stein­grímur J. Sig­fús­son, og þing­menn flokks­ins hafa ítrekað greint frá þeirri afstöðu sinni að Ísland eigi ekki að vera í NATO og þau styddu ekki stækkun banda­lags­ins. Afstaða flokks­ins hefur hingað til verið skýr hvað NATO varðar en í stefnu hans segir að flokk­ur­inn leggi áherslu á að Ísland segi sig úr banda­lag­inu.

[adspot]Fyrir stækkun NATO í des­em­ber 2003 sagði Stein­grím­ur að það væri nið­ur­staða þing­­manna flokks­ins að styðja ekki stækk­­un banda­lags­ins. „Við erum ein­­dregið þeirr­ar skoð­unar að það sé ekki heilla­­spor að fram­­lengja líf­daga þessa hern­að­ar­banda­lags,“ sagði hann.

Stein­grím­ur taldi að þvert á móti bæri að vinna að því að leggja hern­að­ar­banda­lög niður og gæta frið­ar, stöðug­­leika og ör­ygg­is í heim­in­um með lýð­ræð­is­­lega upp­­­byggðum svæð­is- og al­heims­­stofn­un­um, eins og stofn­un­inni um ör­yggi og sam­vinnu í Evr­­ópu (ÖSE) og end­­ur­­skipu­lögðu ör­ygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna.

„Metnaðarmál norrænu NATO-ríkjanna“ að vera í hópi fyrstu ríkjanna sem staðfesta aðild Finnlands og Svíþjóðar

Finnar og Svíar sóttu form­lega um aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu 18. maí. Innrás Rússa í Úkraínu hefur haft í för með sér gríð­ar­lega við­horfs­breyt­ingu gagn­vart banda­lag­inu þar sem áhug­inn á aðild hefur auk­ist til muna.

Á fundi sínum í gær lagði utan­rík­is­mála­nefnd til að til­laga um stað­fest­ingu við­bót­ar­samn­inga við Norður-Atl­ants­hafs­samn­ing­inn um aðild Finn­lands og Sví­þjóðar að NATO yrði sam­þykkt. Í nefnd­ar­á­lit­inu er vísað í grein­ar­gerð þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar þar sem fram kemur að mik­il­vægt er að mögu­legt verði að full­gilda við­bót­ar­samn­inga um aðild Finn­lands og Sví­þjóðar eins fljótt og kostur er að lok­inni form­legri und­ir­ritun þeirra. Utan­rík­is­mála­nefnd leggur fer því fram á að Alþingi álykti um heim­ild rík­is­stjórnar til full­gild­ingar áður en und­ir­ritun við­bót­ar­samn­inga fer fram.

Svo var ekki gert við stað­fest­ingu við­bót­ar­samn­inga við fyrri stækk­anir NATO, síð­ast vegna aðildar Norður-Makedóníu árið 2020 og Svart­fjalla­lands árið 2017 en þá var þings­á­lykt­un­ar­til­laga til stað­fest­ingar samn­inga lögð fram eftir að þeir höfðu verið und­ir­rit­aðir.

„Það er metn­að­ar­mál nor­rænu NATO-ríkj­anna þriggja að vera í hópi fyrstu ríkja til að stað­festa vænt­an­lega við­bót­ar­samn­inga Finn­lands og Sví­þjóðar um aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. MEð því er nánum vina­þjóðum og frændum sýnd sam­staða og um leið þrýst á önnur banda­lags­ríki að stað­festa samn­ing­ana hratt og vel,“ segir í nefnd­ar­á­liti utan­rík­is­mála­nefndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár