Málið legið þungt á ráðherranum, fjölskyldu hans og vinum

Sigurður Ingi seg­ist ekki ætla að ræða frekar mál er varðar rasísk ummæli sem hann við­hafði á Bún­að­ar­þingi fyrir mán­uði síðan. Hann veltir því fyrir sér hvort umfjöllun um málið snú­ist í raun um Fram­sókn­ar­flokk­inn og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins segir að mál sem snýst um rasísk ummæli hans um Vigdís Häsler fram­kvæmda­stjóri Bænda­sam­tak­anna á Bún­að­ar­þingi fyrr í vetur hafi legið þungt á honum, fjöl­skyldu hans og vinum.

Þetta kom fram í máli hans í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun þegar Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata spurði hvort ummælin hefðu verið í óþökk fram­kvæmda­stjór­ans, hvort þau hefðu haft þannig áhrif að virð­ingu hennar hefði verið mis­boðið og hvort þau hefðu leitt til nið­ur­lægj­andi, auð­mýkj­andi eða móðg­andi aðstæðna.

Arndís Anna sagði að ráð­herra hefði láðst að koma fyrir fjöl­miðla og þingið til að tala um málið en það væri mik­il­vægt að ráð­herra gerði grein fyrir stöðu sinni í þing­sal og gagn­vart þjóð­inni.

„Á síð­asta þingi voru sam­þykkt lög um jafna með­ferð óháð kyn­þætti og þjóð­ern­is­upp­runa. Með lög­unum er meðal ann­ars lagt bann við hvers kyns mis­munun á öllum sviðum sam­fé­lags­ins vegna kyn­þáttar eða þjóð­ern­is­upp­runa og á þetta einnig við um áreitni þegar hún teng­ist kyn­þætti eða upp­runa,“ sagði hún og las um skil­grein­ingu í lög­unum á hug­tak­inu áreitni: „Hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann til­gang eða þau áhrif að mis­bjóða virð­ingu við­kom­andi, einkum þegar hegð­unin leiðir til ógn­andi, fjand­sam­legra, nið­ur­lægj­andi, auð­mýkj­andi eða móðg­andi aðstæðna.“

Spurði hún hvort þetta ætti við um ummæli ráð­herr­ans.

„Duldir for­dómar eru gríð­ar­legt sam­fé­lags­mein“

Málið fór hátt í fjöl­miðlum í apríl en Vigdís sjálf tjáði sig um málið á sam­fé­lags­miðlum í kjöl­farið. Þar sagði hún að „afar sær­andi ummæli“ hefðu verið látin falla og að hún hefði heyrt þau, sem og fleira starfs­fólk Bænda­sam­tak­anna. Vigdís sagði að hún hefði aldrei talið að hún þyrfti að setj­ast niður og skrifa yfir­lýs­ingu af þessu tagi. „Ég hef aldrei látið húð­lit, kyn­þátt, kyn­ferði eða annað skil­greina mig. Ég hef alltaf talið að verk mín og gjörðir töl­uðu fyrir sig sjálf, en núna tel ég mig knúna til að tjá mig um það sem gerð­is­t,“ skrif­aði hún.

„Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­dómar eru gríð­ar­legt sam­fé­lags­mein og grass­era á öllum stigum sam­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn,“ skrif­aði hún jafn­framt.

Sigurður Ingi baðst afsök­unar á ummæl­unum síðar í sömu viku eftir að Vigdís tjáði sig um málið. Þau hitt­ust á fundi nokkrum dögum síðar og með­tók hún afsök­un­ar­beiðni hans.

Er þetta vegna þess að sveitarstjórnarkosningar eru í vændum?

Sigurður Ingi sagði á þing­inu í morgun að það væri þung­bært og þung­bær­ara en hann bjóst við, eftir að hafa verið svona lengi í stjórn­málum, að upp­lifa það dag eftir dag í þing­inu í til­tek­inn tíma af til­teknum stjórn­mála­mönnum og af ein­stökum fjöl­miðlum að vera bor­inn þungum sökum „um eitt­hvað allt annað“.

„Ég hef velt því fyrir mér hvort það sé eitt­hvað í mínu fari per­sónu­lega eða eitt­hvað sem stjórn­mála­mað­ur­inn Sigurður Ingi hefur staðið fyrir sem bendir til að þetta sé svona. Eða er það bara vegna þess að það eru sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar eftir hálfan mánuð og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er far­inn að taka fylgi af öðrum flokkum?“ spurði hann og upp­skar hávær mót­mæli úr þing­sal.

„Er það virki­lega svo? Ég á ekki auð­velt með að grín­ast með þetta mál. Það hefur tekið þungt á mig, mína fjöl­skyldu og mína vini. Ég hef beðist afsök­unar. Sú afsök­un­ar­beiðni hefur verið með­tekin. Við vorum sam­mála um að ræða það ekki frekar og ég mun virða þá ósk,“ sagði ráð­herr­ann.

Málið stærra en svo að það lúti eingöngu að ráðherranum

Arndís Anna sagði í kjöl­farið að Sigurður Ingi hefði ekki svarað spurn­ingu hennar um það hvort ummælin hefðu fallið innan skil­grein­inga lag­anna.

„Það er það sem ég er að velta fyrir mér hér. Ég tel að þetta mál sé stærra en svo að það lúti ein­göngu að per­sónu­legum sam­skiptum ráð­herra þar sem ráð­herra er í stöðu gagn­vart þjóð­inni, annarri heldur en aðrir með­limir hennar.

Síðari spurn­ing mín varðar traust. Nú er það ljóst að traust í garð rík­is­stjórn­ar­innar hefur hríð­fallið á síð­ustu vikum og væri stjórnin fallin ef blásið væri til kosn­inga í dag. Traust í garð inn­við­a­ráð­herra hefur einnig fallið og þá gætir ekki ein­vörð­ungu áhrifa af banka­söl­unni heldur spila ummæli ráð­herr­ans vænt­an­lega sína rullu líka. Ég vil því spyrja ráð­herra um traust: Hvernig hyggst ráð­herra axla ábyrgð og end­ur­byggja traust? Það er ekki nóg að biðj­ast afsök­unar, orðum verða að fylgja aðgerðir. Hvað ætlar ráð­herra og hans flokkur að gera til að berj­ast gegn kyn­þátta­for­dómum í sam­fé­lag­inu, upp­ræta þá, standa vörð um mann­rétt­indi og vel­ferð fólks af erlendum upp­runa?“ spurði hún.

Fagnar öllum sem hingað koma

Ráð­herr­ann svar­aði í annað sinn og sagði að það væri rétt að það mik­il­væg­asta í stjórn­málum væri traust.

„Þess vegna hef ég unnið alla mína ævi í stjórn­málum að því að byggja upp traust með því að fram­kvæma hluti í sama takti og ég stend fyrir og ég mun halda því áfram. Það mun Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gera áfram, ekki síst á því sviði sem við eigum svo­lítið erfitt með þessa dag­ana, og ég er ekki að vísa til þessa máls heldur bara almennt. Það er vax­andi pólarís­er­ing í heim­inum og við höfum áhyggjur af því að hún geti átt sér stað hér.

Við erum betra sam­fé­lag en oft er lýst hér úr þessum ræðu­stól, mun betra, en við getum alltaf gert betur. Ég held að við ættum að forð­ast það sem við höfum til dæmis séð á Norð­ur­lönd­unum, sem við horfum oft til þegar kemur að inn­flytj­endum og umræðu um þá. Við höfum sem betur fer verið betur stödd þar. Við höfum fagnað og ég fagna öllum þeim sem hingað koma og göfga sam­fé­lag okkar. Ég hef sagt það margoft í þessum stól og ég mun halda því áfram,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár