Hvað ætlar ríkasti maður heims að gera við Twitter?

Mörgum spurn­ingum um fram­tíð Twitter er ósvarað eftir að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins sam­þykkti yfir­tökutil­boð Elon Musk. Verður rit­skoðun afnumin? Verður tján­ing­ar­frelsið algjör­lega óheft? Mun Donald Trump snúa aftur?

Elon Musk, forstjóri Tesla, framkvæmdastjóri SpaceX og, ef allt gengur eftir, verðandi eigandi Twitter.
Elon Musk, for­stjóri Tesla, fram­kvæmda­stjóri SpaceX og, ef allt gengur eftir, verð­andi eig­andi Twitter. Mynd: EPA

Stjórn Twitter hefur sam­þykkt 44 millj­arða Banda­ríkja­dala yfir­tökutil­boð Elon Musk, rík­asta manns heims, á sam­fé­lags­miðl­inum. Musk hefur lofað að draga úr rit­skoðun á miðl­inum, nokkuð sem hefur vakið upp ótal spurn­ingar um hvaða þýð­ingu þessi nálgun mun hafa fyrir „staf­ræna bæj­ar­torgið“, líkt og Musk lýsti miðl­inum í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér á mánu­dag eftir að til­boð hans var sam­þykkt.

Musk keypti fyrst hluta­bréf í Twitter í jan­úar og greindi frá því fyrr í þessum mán­uði að hlutur hans í fyr­ir­tæk­inu væri orð­inn meira en níu pró­sent. Við það vökn­uðu alls konar spurn­ingar. Hvað ætl­aði Musk sér að gera? Á þessum tíma­punkti var hann orð­inn einn stærsti hlut­hafi í Twitter og bauðst honum þá sæti í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins en afþakk­aði boðið og sagði ljóst að sam­fé­lags­mið­ill­inn gæti hvorki dafnað né þjónað til­gangi sínum í núver­andi formi.

44 milljarðar Bandaríkjadalir – 5.700 milljarðar króna

Twitter hafn­aði til­boði Musk í fyrstu en eftir sam­þykki stjórn­ar­innar á mánu­dag kemur það nú í hlut hlut­hafa að ganga að til­boð­inu. Heild­ar­upp­hæð til­boðs­ins sem Musk gerði í Twitter er rúmir 44 millj­arðar Banda­ríkja­dalir, eða sem nemur rúm­lega 5.700 millj­örðum íslenskra króna. Musk greiðir 54,2 Banda­ríkja­dali fyrir hvern hlut, sem er 38 pró­sentum hærra en núver­andi hluta­bréfa­verð í fyr­ir­tæk­inu.

Musk náði þeim áfanga í jan­úar í fyrra að verða rík­asti maður heims þegar hann tók topp­sætið af Jeff Bezos, stofn­anda Amazon. Musk er met­inn á 273 millj­arða Banda­ríkja­dala, sem jafn­gildir rúmum 35.577 millj­örðum íslenskra króna.

Musk hefur gefið það út að hann ætli að taka Twitter af mark­aði, en fyr­ir­tækið var skráð á markað 2013. Geri hann það verður það stærsta fyr­ir­tæki sem tekið hefur verið af mark­aði í að minnsta kosti tvo ára­tugi, sam­kvæmt gögnum frá Dealogic.

[links]„Tján­ing­ar­frelsi er und­ir­staða virks lýð­ræðis og Twitter er staf­ræna bæj­ar­torgið þar sem tek­ist er á um mik­il­væg mál­efni sem varða fram­tíð mann­kyns,“ er haft eftir Musk í yfir­lýs­ingu sem gefin var út eftir að yfir­tökutil­boð hans var sam­þykkt. Musk segir mögu­leika Twitter gríð­ar­stóra og hann hlakki til að vinna með fyr­ir­tæk­inu og not­endum mið­ils­ins til að láta þá verða að veru­leika.

Stóra spurn­ing er einmitt: Hvernig ætlar Musk að nýta þennan gríð­ar­stóra vett­vang, sér­stak­lega þegar litið er til mál- og tján­ing­ar­frelsis.

Sjálfur er Musk með um 85 millj­ónir fylgj­enda á Twitter þar sem honum er nán­ast ekk­ert óvið­kom­andi, líkt og nýlegt dæmi sýnir þar sem hann birti sam­setta mynd af Bill Gates og tjákni (e. emoji) af óléttum karl­manni. Túlki hver fyrir sig.

Fyr­ir­hug­aðar aðgerðir Musk að minnka rit­skoðun á Twitter munu að öllum lík­indum leiða til auk­ins utan­að­kom­andi aðhalds, eða að minnsta kosti kröfu um það. Musk hefur gefið það út að hann ætli aðeins að banna ólög­legt efni á Twitter en ekki tekið fram hvernig hann ætli að taka á hat­urs­orð­ræðu, kyn­þátta­hatri eða net­níði, svo dæmi séu nefnd. Þá hefur Evr­ópu­sam­bandið minnt Musk góð­fús­lega á að Twitter verði að fara eftir Evr­ópu­lög­gjöf sem verndar not­endur gegn hat­urs­orð­ræðu, upp­lýs­inga­óreiðu og öðru skað­legu efni sem ratar á mið­il­inn. Lög­gjöfin tekur gildi innan nokk­urra mán­aða en á aðeins við í Evrópu en ekki Banda­ríkj­unum, eðli máls­ins sam­kvæmt.

Mann­rétt­inda­sam­tök hafa nú þegar viðrað áhyggjur sínar af því að yfir­taka Musk muni leiða til auk­innar hat­urs­orð­ræðu á Twitter. Þannig hefur Amnesty International áhyggjur af þeim skrefum sem Musk hyggst taka sem grafi undan stefnu fyr­ir­tæk­is­ins sem snýr að því að vernda not­endur þess. Þá hafa mann­rétt­inda­sam­tökin Human Rights Watch áhyggjur af því að hat­urs­orð­ræða fái að standa óáreitt á Twitter ef áætl­anir Musk ganga eftir.

Trump ætlar að halda kyrru fyrir í „Sannleikssamfélaginu“

Twitter hefur verið gagn­rýnt und­an­farin ár fyrir að vera vett­vangur upp­lýs­inga­óreiðu og fyrir að gera not­endum kleift að dreifa fals­fréttum. Twitter brást við með auk­inni rit­skoðun og en varð þá einnig fyrir gagn­rýni, ekki síst frá ein­stak­lingum á hægri­væng stjórn­mál­anna.

Meðal þeirra sem varð fyrir barð­inu á þess­ari rit­skoðun er Don­ald Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti, en aðgangi hans á Twitter var end­an­lega lokað tveimur dögum eftir inn­rás stuðn­ings­manna hans í þing­hús Banda­ríkj­anna í jan­úar á síð­asta ári. Fjöl­margir hafa velt því fyrir sér hvort áform Musk greiði leið Trump að Twitter á nýjan leik.

Trump þagg­aði niður í orðrómum þess efnis í sam­tali við Fox-frétta­stof­una á mánu­dags­kvöld þegar hann gaf það út að hann ætli að halda sig við sinn eigin nýstofn­aða sam­fé­lags­miðil, Truth Social. Sann­leiks­sam­fé­lag Trump hefur ekki gengið sem skyldi frá því að það kom út í febr­úar. Almenn­ingi gengur illa að fá aðgang að miðl­inum og tveir reynslu­miklir frum­kvöðlar í tækni­geir­anum hafa sagt skilið við Truth Social og Trump er ævar­eiður. Sjálfur hefur hann ekki birt „sann­leik“ í tæpa tvo mán­uði.

„Ég ætla ekki á Twitter,“ sagði Trump, sem von­ast þó til að yfir­taka Musk á Twitter gangi end­an­lega í gegn þar sem hann trúir því að Musk geti bætt mið­il­inn umtals­vert. Þó hefur verið bent á að með kaupum Musk á Twitter hafi hann end­an­lega gert út um sann­leiks­sam­fé­lag Trump.

Repúblikanar eru jákvæðir í garð yfir­töku Musk á Twitter. Marsha Blackburn, öld­unga­deild­ar­þing­maður fyrir Tennessee, seg­ist von­góð að Musk muni binda endi á rit­skoðun not­enda sem hafi önnur og öðru­vísi sjón­ar­mið á málum.

Demókratar hafa efa­semdir og Jen Psaki, fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins, vildi ekki ræða til­boð Musk við fjöl­miðla þegar eftir því var leitað en sagði Joe Biden Banda­ríkja­for­seta lengi hafa haft áhyggjur af þeim völdum sem gríð­ar­stór vett­vangur sam­fé­lags­miðla veitir.

Er hægt að stjórna Twitter, Tesla og SpaceX samtímis?

Mörgum spurn­ingum er enn ósvarað um fram­tíð Twitter og hvernig Musk hyggst haga málum. Hver á að leiða fyr­ir­tækið og hversu mikil afskipti mun hann sjálfur hafa af starf­semi Twitter? Ríkasti maður heims hefur nefni­lega mörgum hnöppum að hneppa, meðal ann­ars sem for­stjóri og stærsti eig­andi raf­bíla­fyr­ir­tæk­is­ins Tesla og stjórn­andi geim­ferða­fyr­ir­tæk­is­ins SpaceX.

Parag Agrawal, fram­kvæmda­stjóri Twitter, hefur setið við stjórn­völ­inn síðan í nóv­em­ber. Hann segir allt óráðið ennþá, það verði ekki fyrr en gengið verður frá samn­ingnum, sem stjórn Twitter hefur mælt með að hlut­hafar sam­þykki, sem koma muni í ljós í hvaða átt fyr­ir­tækið mun stefna. Talið er að staða Agrawal sé tryggð fram að því, en hvað tekur svo við mun tím­inn einn leiða í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár