Lagði áherslu á annað en eingöngu hæsta verðið – „Meinti það sem ég sagði“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að hann hafi alltaf viljað heil­brigt eign­ar­hald á Íslands­banka. Það þýði m.a. að áherslan sé ekki á hæsta verðið heldur dreifða eign­ar­að­ild.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að ef áhersla sé ein­göngu lögð á hæsta verð í sölu á Íslands­banka þá sé sátt um að allur hlut­ur­inn fari til eins aðila sem til­bú­inn er að borga mest.

Ráð­herr­ann lét þessi orð falla undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta á Alþingi í dag eftir að margir þing­menn höfðu komið í pontu og gagn­rýnt sölu rík­is­ins á hlut í Íslands­banka – hvernig staðið var að söl­unni og sölu­verðið sömu­leiðis. Þingmenn köll­uðu einnig eftir frek­ari umræðu um málið á þingi og sagði for­seti Alþingis, Birgir Ármanns­son, að hann myndi fara yfir það með hvaða hætti hægt væri að koma við umræðu um þetta þannig að það þyrfti ekki að eiga sér stað undir fund­ar­stjórn for­seta.

Kjarninn greindi frá því í morgun að alls 22,5 pró­senta hlutur í Íslands­banka hefði verið seldur með 2,25 millj­arða króna afslætti í gær. Fyr­ir­komu­lag söl­unnar var knappt og stóð yfir í nokkra klukku­tíma eftir að það var til­kynnt. Það var í sam­ræmi við þá leið sem boðuð hafði verið frá því að sölu­ferlið var sett form­lega af stað á ný þann 11. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Sala sem á sér margra mánaða aðdraganda

Bjarni sagði í ræðu sinni í dag að stjórn­völd hefðu viljað tryggja dreifða eign­ar­að­ild. „Við vildum að þetta yrði heil­brigt eign­ar­hald fyrir fram­tíð bank­ans og það þýðir meðal ann­ars að þú leggur þig ekki eftir lang­hæsta verð­inu enda hefur svona fyr­ir­komu­lag, svona sala aldrei farið fram án afsláttar neins staðar í heim­inum.“

Hann sagð­ist vilja fá umræðu um fram­kvæmd söl­unnar, eins og þing­menn köll­uðu eftir.

„Ég vek athygli á því að þetta er ekki eitt­hvað sem ger­ist á nokkrum klukku­stundum. Þetta er sala sem á sér margra mán­aða aðdrag­anda, meðal ann­ars með aðkomu þings­ins. Svo virð­ist sem margir hafi ekki áttað sig á því hvað Banka­sýslan var að boða þegar hún boð­aði að salan færi fram með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi sem hlaut alltaf að þurfa að ger­ast á milli þess að mark­aðir lok­uðu þar til þeir opn­uðu næsta dag. Það var nákvæm­lega það sem gerð­ist.

Þegar við veltum því fyrir okkur hvort það hefði mögu­lega verið hægt að fá hærra verð þá þurfum við aðeins að spyrja okkur hvort við meintum það sem við sögðum, að minnsta kosti get ég sagt fyrir mitt leyti að ég meinti það sem ég sagði, að ég legði áherslu á margt annað heldur en ein­göngu bara hæsta verð,“ sagði hann.

Fyrirkomulag á sölunni opinbert

Bjarni kom aftur í pontu nokkru síðar undir sama lið og sagð­ist vilja ítreka að það væri eðli­legt að alvöru umræða færi fram um þessa sölu eins og þau hefðu „reyndar staðið fyrir til þessa“.

„Við höfum verið í sam­skiptum við þingið og með málið til vinnslu í fleiri en einni þing­nefnd þannig að þetta fyr­ir­komu­lag á söl­unni var opin­bert og var rætt við þingið, og við fengum skoðun á því áður en ráð­ist var í söl­una. Ég vil ítreka að það er Banka­sýslan sem að lögum fram­kvæmir söl­una og ég er alveg sann­færður um að Banka­sýslan er til­búin að koma hingað í þingið og gera betur grein fyrir rök­unum á bak við þá aðferð sem valin var,“ sagði hann.

Verðmæti í eigu ríkisins seld á undirverði

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði undir sama lið að þrátt fyrir gríð­ar­lega umfram­eft­ir­spurn hefði verið veittur 2,25 millj­arða afsláttur í söl­unni í gær.

„Við erum enn þá í þoku um það hverjir kaup­end­urnir eru og afslátt­ur­inn var auð­vitað mörgum millj­örðum meiri ef við myndum miða við gengið eins og það er núna eftir dag­inn. Fyrsti við­skipta­dagur er ekki lið­inn.

Ég vil taka þetta upp undir þessum lið vegna þess að þetta þarfn­ast allt saman umræðu í þing­inu. Mér finnst það umhugs­un­ar­vert að frumút­boðið í fyrra hafi ekki verið gert upp hérna í þessum sal þegar verð­mæti í eigu rík­is­ins voru seld á und­ir­verði. Verðmæti í eigu rík­is­ins voru seld á und­ir­verði – þetta eru hluta­bréf sem í dag eru hátt í 30 millj­örðum meira virði en þau voru þá og það hefur engin þing­leg umræða farið fram til að draga ein­hvern lær­dóm af þessu. Það kom skýrsla frá fjár­mála­ráð­herra um söl­una, um frumút­boðið. Hún hefur aldrei verið tekin hér á dag­skrá í þing­inu. Salan á eignum almenn­ings heldur áfram án þess að það komi Alþingi við, eða þannig er látið,“ sagði hann.

Augljóst hver forgangsröðunin er hjá ríkisstjórninni

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir þing­maður Flokks fólks­ins var einn þeirra þing­manna sem tók til máls.

„Já, salan á þessum banka tók rétt um þrjá tíma. Það er aug­ljóst hver for­gangs­röð­unin er hjá rík­is­stjórn­inni. Þetta þurfti að keyra í gegn, þessu lá á, vegna þess að fjár­fest­arnir þurfa jú að geta grætt.

Svo langar mig bara aðeins í þessu sam­hengi að minn­ast á þing­mála­skrána, þar er ekki eitt ein­asta mál frá rík­is­stjórn­inni varð­andi hags­muni heim­il­anna og varð­andi það að hjálpa þeim í gegnum það sem fram undan er þegar verð­bólgan stefnir í tveggja stafa tölu. Það er ekki einu sinni hægt að taka hús­næð­islið­inn úr vísi­töl­unni. Það er ekki einu sinni hægt að frysta í eitt ár verð­trygg­ingu á lánum og leigu. Samt er hagn­aður bank­anna eins og við vitum öll og Félags­bú­staðir högn­uð­ust um 18,5 millj­arða á síð­asta ári og Alma um 12,4 millj­arða. Er ekki ein­hvers staðar þarna borð fyrir báru frekar en hjá heim­il­unum?“ spurði hún.

Vill selja Íslandsbanka og Landsbankann líka

Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar sagð­ist vera alveg hjart­an­lega sam­mála því að það ætti að selja Íslands­banka og reyndar Lands­bank­ann líka.

„Ég fagna því að það sé verið að stíga virk skref til þess að gera það. Mér finnst ekki að ríkið eigi að vera sterkur leik­andi á þessum sam­keppn­is­mark­aði, bara alls ekki. Hins vegar hljótum við auð­vitað að velta því fyrir okkur hvernig þetta er gert og án þess að ég ætli að ganga eitt­hvað langt í því að full­yrða nokkurn skap­aðan hlut þá held ég að umræðan í sam­fé­lag­inu eftir þessi tíð­indi í gær kalli á að við verðum hrein­lega upp­lýst um það sem fyrst hvað þarna liggur að baki, hvernig þetta var gert, hvernig menn voru valdir, ekki síst líka hverjir keyptu og hvers vegna kjörin voru eins og þau voru.

Að öðru leyti vil ég fagna því og vona að umræðan fari ekki að snú­ast um það hvort það eigi yfir höfuð að selja hlut­inn eða ekki. Það er afstaða mín að ríkið eigi ekki að vera sterkur leik­andi á þessum mark­aði,“ sagði hann.

Þjóðin vill fá svör

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata greindi frá því að hún væri per­sónu­lega búin að fá skila­boð frá þremur mis­mun­andi aðilum í morgun um hvort ekki ætti að ræða þetta mál í þing­inu í dag.

Hún sagði að aug­ljóst væri að þjóðin vildi fá svör strax og upp­lýs­ingar um hvernig það hefði borið að að 27 millj­arðar hefðu farið úr „vasa þjóð­ar­innar til – ja, hver veit?“

Allir sem komu að sölu bankans geti verið stoltir

Guðrún Haf­steins­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar sagð­ist vilja leggja orð í belg og nefndi orð Jóhanns Páls og gagn­rýni hans að farið hefði verið í sölu Íslands­banka í fyrra í miðjum heims­far­aldri.

Hún sagð­ist ekki vita betur en að sú sala hefði tek­ist afskap­lega vel, svo vel að eftir hefði verið tekið.

„Þegar er talað um að þar hafi verið selt á und­ir­verði, þá voru mark­miðin bara allt önnur. Þar var verið að tryggja það að almenn­ingur gæti eign­ast hlut í einum af bönkum okkar Íslend­inga og þús­undir manna svör­uðu kall­inu og vildu taka þátt í því. Þannig að við fengum dreift eign­ar­hald inn í Íslands­banka sem var mjög af hinu góða. Í kjöl­farið á þeirri sölu þá fengum við líka verð­miða á bank­ann. Hann fór á markað. Það þýðir að við fengum að vita raun­veru­legt virði bank­ans. Og hvað gerð­ist? Eign­ar­hlutur rík­is­ins varð meiri. Þannig að ég held að allir sem komu að sölu bank­ans á síð­asta ári og byrj­un­inni á þessu ferli geti verið stoltir af því,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár