Vígreif Líf vill að Vinstri græn eignist fleiri kjörna fulltrúa í Reykjavík

Félags­fundur Vinstri grænna í Reykja­vík sam­þykkti með yfir­gnæf­andi meiri­hluta í gær­kvöldi að halda flokksval um efstu þrjú sætin á lista fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Líf Magneu­dóttir borg­ar­full­trúi vill leiða list­ann áfram.

Líf Magneudóttir oddviti Vinstri grænna
Líf Magneu­dóttir odd­viti Vinstri grænna Mynd: Aðsend

Félags­fundur Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs í Reykja­vík ákvað með kosn­ingu á félags­fundi í gær að halda for­val um þrjú efstu sæti á lista hreyf­ing­ar­innar til fram­boðs í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í vor.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá VG voru tvær til­lögur lagðar fram fyrir fund­inn, önnur um upp­still­ingu en hin um for­val í þrjú efstu sætin. Tillagan um for­val var sam­þykkt með miklum meiri­hluta, eða 93 pró­sentum atkvæða.

Líf Magneu­dóttir er eini borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, en flokk­ur­inn fékk 4,6 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018 og tap­aði hátt í fjórum pró­sentu­stigum frá sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2014 og hélt óbreyttum fjölda borg­ar­full­trúa þrátt fyrir að verið væri að fjölga borg­ar­full­trúum úr 15 í 23.

Vonast til þess að VG eignist fleiri fulltrúa

Líf hefur boðað að hún ætli sér að fara fram að nýju, ef hún njóti stuðn­ings félaga sinna til þess. Hún segir í sam­tali við Kjarnann í dag að hún hafi vonir um að leiða Vinstri græn til betri nið­ur­stöðu í kosn­ing­unum í vor – og að flokk­ur­inn vilji fá fleiri full­trúa kjörna í höf­uð­borg­inni.

„Ég er alltaf víg­reif og alltaf bar­átt­uglöð og alltaf stolt af verkum okkar og því sem við stöndum fyrir og ég vona að borg­ar­búar gefi okkur tæki­færi,“ segir Líf, en hún játar því að úrslit síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga hafi verið skellur fyrir Vinstri græn, þrátt fyrir að hún sé lítið fyrir það að dvelja í for­tíð­inni.

[adspot]

„Að sjálf­sögðu viljum við fá fleiri borg­ar­full­trúa sem tala fyrir okkar mál­efnum,“ segir Líf og bætir því við að hún telji að það hafi ef til vill aldrei verið mik­il­væg­ara en nú að borg­ar­búar veiti Vinstri grænum stuðn­ing sinn, séu þeir ánægðir með með stóru lín­urnar í stefnu núver­andi meiri­hluta í Reykja­vík, í sam­göngu- og skipu­lags­málum, lofts­lags­málum, skóla­málum og fleiri mála­flokkum.

Vinstri græn hafi nefni­lega náð mörgum málum inn í meiri­hluta­sátt­mál­ann og séu „burða­r­ás“ í núver­andi meiri­hluta­sam­starfi, þó að Líf seg­ist ekki binda sig við að halda því áfram í sömu mynd eftir kosn­ing­ar.

Allir meirihlutaflokkarnir með prófkjör um efstu sæti

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram 14. maí og hafa fimm af átta flokkum sem nú eiga full­trúa í borg­inni boðað að til standi að láta val á for­ystu­fólki í borg­inni í hendur flokks­manna, með ein­hverjum hætti.

Það ætla allir flokk­arnir í meiri­hlut­anum alla­vega að gera. Rétt eins og Vinstri græn verður Sam­fylk­ingin með flokksval, Píratar verða með próf­kjör og Viðreisn einnig, í fyrsta sinn í sögu flokks­ins.

Hjá Sjálf­stæð­is­flokknum er þess enn beðið að end­an­leg ákvörðun verði tekin um að halda annað hvort leið­toga­próf­kjör eins og árið 2018 eða opið próf­kjör þar sem almennir flokks­fé­lagar fái að hafa sitt að segja um annað og meira en ein­ungis það hver leiðir list­ann, en raunar er Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi sú eina sem er í fram­boði sem stendur. Sú ákvörðun er í höndum full­trúa­ráðs flokks­ins sem á enn eftir að koma saman og ákveða fyr­ir­komu­lagið.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem ekki á full­trúa í borg­ar­stjórn í dag, ætlar sér hins vegar að stilla upp lista í borg­inni. Lítið hefur heyrst úr ranni ann­arra flokka sem eiga full­trúa í borg­ar­stjórn, Mið­flokks­ins, Flokks fólks­ins og Sós­í­alista­flokks­ins.

Odd­vitar og einu borg­ar­full­trúar þess­ara þriggja flokka hafa þó allar lýst því yfir nýlega að þær hafi hug á að sækj­ast á ný eftir sæti á fram­boðs­listum flokk­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár