Eyþór Arnalds hættur við framboð og á leið úr stjórnmálum

Oddviti Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík er hættur við að sækj­ast eftir því að leiða lista flokks­ins í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Hann segir ástæð­una per­sónu­lega, ekki póli­tíska.

Eyþór Arnalds er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Eyþór Arnalds er odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík, er hættur við að gefa kost á sér til að leiða lista flokks­ins í borg­inni fyrir kom­andi kosn­ingar, sem fara fram í maí. Allt stefnir í að leið­toga­próf­kjör verði haldið hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í febr­úar og hafði Eyþór gefið út að hann sækt­ist áfram eftir odd­vita­sæt­inu að óbreyttu. Auk hans hafði Hildur Björns­dóttir, sem var í öðru sæti á list­anum í kosn­ing­unum 2018, til­kynnt að hún vildi leiða list­ann. Eng­inn annar hefur sem stendur til­kynnt fram­boð í leið­toga­sæt­ið.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook sem birt var um mið­nætti sagði Eyþór að honum hafi snú­ist hugur. Hann muni gegna skyldum sínum út kjör­tíma­bilið og láta síðan af þátt­töku í stjórn­málum að sinni.

Ákvörð­unin sé tekin af per­sónu­legum ástæðum, ekki póli­tískum. „Ég er þess full­viss að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun vinna góðan sigur í vor og þeir sem þekkja mig vita að ég ótt­ast ekki nið­ur­stöður í nokkru próf­kjöri. Eins er rétt að árétta að ákvörð­unin er algjör­lega óháð því hvaða fyr­ir­komu­lag sjálf­stæð­is­menn í Reykja­vík kjósa að við­hafa við val á fram­boðs­lista eða hvaða ein­stak­lingar munu gefa kost á sér í því vali.

[adspot]Fram undan er löng og ströng kosn­inga­bar­átta sem kallar á að allt annað víki á meðan. Ég hef ein­fald­lega kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ég þurfi og vilji meiri tíma til að sinna mér og mínu, heim­ili og hugð­ar­efnum. Nú er það ann­arra að taka við kefl­inu í því boð­hlaupi sem póli­tíkin er.“

Eyþór segir stóra og breiða for­ystu­sveit í Sjálf­stæð­is­flokknum og að þar sé eng­inn hörgull á fólki til að taka við og leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn til sig­urs. „Það verður sigur Reykja­víkur og Reyk­vík­inga.“

Stefnir í leiðtogaprófkjör

Kosið verður um leið­toga lista Sjálf­stæð­is­manna fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í Reykja­vík að óbreyttu. Það er sama leið og flokk­ur­inn fór fyrir kosn­ing­arnar 2018 þegar Eyþór var val­inn til að leiða lista flokks­ins. Þetta var ákveðið á fundi Varð­ar, full­­trúa­ráðs sjálf­­stæð­is­­fé­laga í Reykja­vík, í síð­ustu viku. Eyþór var fylgj­andi þeirri leið en Hildur á móti henni.

Full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins þarf að sam­þykkja leið­ina til að hún verði að veru­leika með 2/3 hluta atkvæða. Gangi það eftir verður kosið í kjör­nefnd til að fylla önnur sæti á list­an­um.

Verði þessi leið ofan á mun kjör­nefnd svo raða í önnur sæti að loknu leið­toga­kjöri og full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðan taka afstöðu til þeirrar til­lögu.

Árið 2018 sótt­u­st, ásamt Eyþóri þau Kjartan Magn­ús­son og Áslaug Frið­­riks­dótt­ir, þáver­andi borg­­ar­­full­­trú­ar, Vil­hjálmur Bjarna­­son fyrr­ver­andi Alþing­is­­maður og Viðar Guðjohn­sen leig­u­­sali eftir því að leiða list­ann.

Eng­inn þeirra sem lutu í lægra haldi fyrir Eyþóri fékk sæti á lista flokks­ins í kjöl­farið og eini sitj­andi borg­ar­full­trú­inn sem sat í efstu sæt­unum var Marta Guð­jóns­dótt­ir.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 30,8 pró­sent atkvæða í þeim kosn­ingum og átta borg­ar­full­trúa kjörna. Fyrir vikið varð hann stærsti flokk­ur­inn í borg­inni á ný. Það dugði þó ekki til þar sem Sam­fylk­ing­in, Við­reisn, Píratar og Vinstri græn mynd­uðu meiri­hluta og Dagur B. Egg­erts­son hélt áfram sem borg­ar­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár