Skrifaði sig frá erf­iðum til­finn­ingum Auður Styr­kárs­dóttir segir að það ógnar­á­stand sem geð­veila bróður hennar hafi skapað á ung­lings­árum hennar hafi orðið til þess að hún lok­að­ist inni með til­finn­ingar sínar. Það var ekki fyrr en með skrifum á sögu hans, og sinnar, að hún gat greitt úr til­finn­ing­unum og hnút­ur­inn innra með henni leyst­ist. Mynd: Davíð Þór

Innri ógn Helga varð að ytri ógn fjölskyldunnar

Í ald­ar­fjórð­ung átti Auður Styr­kárs­dóttir í litlu sem engu sam­bandi við bróður sinn eftir að hún og fjöl­skylda hennar höfðu lifað við skelf­ing­ar­á­stand af hans völdum ára­tug þar á undan. Það var ekki fyrr en mörgum árum síðar að hún átt­aði sig á því að bróðir hennar væri veikur maður en ekki bara fylli­bytta og ræf­ill. Íslenska kerfið brást bróður hennar og fjöl­skyld­unni allri.

Í um ára­tug bjuggu Auður Styr­kárs­dóttir, for­eldrar hennar og systk­ini, við ógn og á stundum skelf­ing­ar­á­stand á heim­ili sínu. Öskur, háreysti, lamið á dyr og byssum miðað á börn og full­orðna, allt þetta upp­lifði Auður. Upp­spretta ógn­ar­innar var Helgi Styr­kárs­son, bróðir Auðar, sem hélt heim­il­inu í helj­ar­g­reipum áfengis- og eit­ur­lyfja­neyslu sinnar á sjö­unda og átt­unda ára­tugnum. En Helgi sjálfur glímdi við ógnir og skelf­ingu, hið innra. Árum saman glímdi Helgi við van­greindan geð­klofa sem olli honum og öllum sem að honum stóðu hörmu­legum sárs­auka. Það var fyrst ára­tugum síðar sem það rann upp fyrir Auði að bróðir hennar var veikur maður en ekki bara fylli­bytta og ræf­ill. „Það sem var að hrjá Helga bróður minn var ekki bara fyll­erí og rugl heldur voru það veik­indi.“

Á síð­asta ári kom út bókin Helga saga eftir Auði Styr­kárs­dóttur, fyrr­ver­andi for­stöðu­konu Kvenna­sögu­safns Íslands og núver­andi pen­sjónista, eins og hún sjálf kýs að kalla …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár