Íbúðaverð hefur hækkað mun hraðar en laun í landinu á þessu ári

Miklar hækk­anir á íbúða­verði á þessu ári hafa gert það að verkum að verðið sem hlut­fall af launum lands­manna hefur farið hratt vax­andi. Á einu ári hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 15,5 pró­sent.

Íbúða­verð sem hlut­fall af launum lands­manna hefur farið hratt vax­andi á þessu ári eftir að hafa leitað hægt niður á við allt frá því í apríl 2017.

Frá árs­byrjun 2014 hefur hlut­fallið hækkað um 19 pró­sent, en vísi­tala paraðra við­skipta með íbúð­ar­hús­næði hækk­aði um 103 pró­sent á meðan að vísi­tala launa hækk­aði um 71 pró­sent yfir sama tíma­bil.

Þetta þýðir að íbúða­verð hefur að jafn­aði hækkað meira en laun í land­inu miðað við launa­vísi­tölu hag­stof­unnar.

Frá þessu er greint í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS).

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 15,5 prósent á einu ári

Mikil eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingur er eftir hús­næði og fram­boð hefur á sama tíma dreg­ist sam­an. Margt skýrir það. Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á jókst sparn­aður lands­manna þar sem þeir eyddu minna í aðra hluta eins og ferða­lög erlendis og ýmis konar afþr­ey­ingu, ein­fald­lega vegna þess að það var ekki hægt. Sam­hliða gengu í gildi launa­hækk­anir og stjórn­völd og Seðla­bank­inn gripu til marg­hátt­aðra aðgerða til að örva efna­hags­líf­ið. Meðal þeirra var að afnema sveiflu­jöfn­un­ar­auka sem lagð­ist á eigið fé banka til að auka útlána­getu þeirra og að lækka stýri­vexti niður í áður óséðar lægð­ir, eða 0,75 pró­sent.

[adspot]Vegna þessa urðu þing­lýstir kaup­samn­ingar í fyrra 14 pró­sent fleiri en árið áður og næst flestu sem gerðir hafa verið innan árs í Íslands­sög­unni. Ein­ungis bólu­árið 2007 var umfangs­meira í gerð kaup­samn­inga. Allt þetta ýtt íbúð­ar­verði hratt upp. [links]

Þessi þróun hefur haldið áfram í ár og tólf mán­aða hækkun íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var 15,5 pró­sent í sept­em­ber og hækk­aði úr 14,8 pró­sent í ágúst. Mest mæld­ist tólf mán­aða hækk­unin á Suð­ur­nesjum eða 21,7 pró­sent og þar á eftir á Vest­fjörð­um, 18 pró­sent. Sam­kvæmt grein­ingu HMS hefur fast­eigna­verð hefur hins vegar hækkað lang­minnst á Norð­aust­ur­landi, eða um tvö pró­sent, á síð­ustu 12 mán­uð­um.

Fátt virð­ist benda til að þessu ástandi sé að ljúka, en gerðum kaup­samn­ingum fjölg­aði milli mán­aða þrátt fyrir að Seðla­bank­inn hafi gripið til ýmissa aðgerða til að tak­marka útlán til íbúð­ar­kaupa og að vextir hafi hækkað nokkuð skarpt frá því í vor.

Þriðjungur fyrstu kaupendur

Í skýrslu HMS segir að þrátt fyrir ört hækk­andi íbúða­verð hafi hlut­fall fyrstu kaup­enda hald­ist hátt, sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem það mæld­ist 33,7 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi. Hlut­fallið hefur aðeins dalað á lands­byggð­inni en var þó 27 pró­sent.

Þar sem kaup­samn­ingum almennt hefur fækkað, þá hefur fjöldi fyrstu kaup­enda einnig minnkað. í skýrsl­unni segir að fyrstu kaup­endur hafi verið tæp­lega 600 á þriðja árs­fjórð­ungi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en tæp­lega 800 á þriðja árs­fjórð­ungi 2020. Á lands­byggð­inni fór fjöldi fyrstu kaup­enda á sama tíma­bili úr tæpum 400 í tæp­lega 300.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár