Hlutfall íbúða á höfuðborgarsvæðinu sem fór yfir ásettu verði aldrei verið hærra

Sölutími íbúða er nú með því lægsta sem mælst hefur og hús­næð­is­verð hefur hækkað um 15,5 pró­sent á einu ári. Aldrei áður hefur jafn hátt hlut­fall íbúða selst yfir ásettu verði.

Fjöldi þeirra íbúða sem er til sölu er með því minnsta sem mælst hefur.
Fjöldi þeirra íbúða sem er til sölu er með því minnsta sem mælst hefur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í sept­em­ber seld­ust 40,7 pró­sent allra íbúða sem seldar voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu yfir ásettu verði. Það hlut­fall hefur aldrei verið hærra. Sérbýli voru aðeins lík­legri til að selj­ast yfir ásettu verði en fjöl­býli en það skeik­aði þó ekki miklu. Íbúðir á lands­byggð­inni fara mun sjaldnar yfir ásettu verði en þær sem seldar eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og ódýr­ustu íbúð­irnar, sem selj­ast undir 35 millj­ónum króna, seld­ust sjaldnar yfir ásettu verði en aðrar íbúðir.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um hús­næð­is­mark­að­inn sem birt var í morgun.

Fátt bendir til þess að ástandinu sé að ljúka

Mikil eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingur er eftir hús­næði og fram­boð hefur á sama tíma dreg­ist saman. Margt skýrir það. Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á jókst sparn­aður lands­manna þar sem þeir eyddu minna í aðra hluta eins og ferða­lög erlendis og ýmis konar afþr­ey­ingu, ein­fald­lega vegna þess að það var ekki hægt. Samhliða gengu í gildi launa­hækk­anir og stjórn­völd og Seðla­bank­inn gripu til marg­hátt­aðra aðgerða til að örva efna­hags­lífið. Meðal þeirra var að afnema sveiflu­jöfn­un­ar­auka sem lagð­ist á eigið fé banka til að auka útlána­getu þeirra og að lækka stýri­vexti niður í áður óséðar lægðir, eða 0,75 pró­sent.

[adspot]Vegna þessa urðu þing­lýstir kaup­samn­ingar í fyrra 14 pró­sent fleiri en árið áður og næst flestu sem gerðir hafa verið innan árs í Íslands­sög­unni. Einungis bólu­árið 2007 var umfangs­meira í gerð kaup­samn­inga. Allt þetta ýtt íbúð­ar­verði hratt upp.

Þessi þróun hefur haldið áfram í ár og tólf mán­aða hækkun íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var 15,5 pró­sent í sept­em­ber og hækk­aði úr 14,8 pró­sent í ágúst. Mest mæld­ist tólf mán­aða hækk­unin á Suð­ur­nesjum eða 21,7 pró­sent og þar á eftir á Vest­fjörðum, 18 pró­sent. Samkvæmt grein­ingu HMS hefur fast­eigna­verð hefur hins vegar hækkað lang­minnst á Norð­aust­ur­landi, eða um tvö pró­sent, á síð­ustu 12 mán­uðum.

Fátt virð­ist benda til að þessu ástandi sé að ljúka, en gerðum kaup­samn­ingum fjölg­aði milli mán­aða þrátt fyrir að Seðla­bank­inn hafi gripið til ýmissa aðgerða til að tak­marka útlán til íbúð­ar­kaupa og að vextir hafi hækkað nokkuð skarpt frá því í vor.

Sölutími íbúða með því lægsta í sögunni

Þessi staða hefur leitt til þess að íbúðum sem eru til sölu hefur fækkað mikið. Í grein­ingu HMS segir að aðeins um 1.320 íbúðir séu til sölu á land­inu öllu nú en til sam­an­burðar voru þær yfir 1.400 í byrjun sept­em­ber­mán­aðar og nærri 4.000 þegar mest var í lok maí 2020.

[links]Samhliða hefur sölu­tími íbúða dreg­ist veru­lega saman og er nú með því lægsta sem nokkru sinni hefur mælst.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var með­al­sölu­tími í sept­em­ber aðeins 38,7 dagar sem er nokkuð nálægt því lægsta sem mælst hefur og á lands­byggð­inni var með­als­tölu­tím­inn um 60,1 dagur, sem er met sam­kvæmt HMS.

Í mán­að­ar­skýrslu HMS segir: „Oft er kauptil­boð sam­þykkt á mun skemmri tíma en með fyr­ir­vara um fjár­mögnun. Fjár­mögnun getur tekið tíma, sér­stak­lega ef kaup­andi þarf að selja íbúð sem hann á fyrir til þess að fjár­magna kaupin. Þannig geta jafn­vel mynd­ast sölu­keðjur þar sem hver og ein íbúð þarf að selj­ast til þess að keðjan gangi upp. Því má segja að sölu­tím­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði vart skemmri en hann mælist um þessar mundir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár