Þrettán íslenskir lífeyrissjóðir ætla að setja 580 milljarða króna í grænar fjárfestingar

Þréttán af fjórtán stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins hafa skuld­bundið sig til að setja níu pró­sent af hreinni eign íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins í verk­efni sem tengj­ast hreinni orku og öðrum umhverf­is­vænum lausnum fram til árs­ins 2030.

Á meðal þeirra leiða sem eru til staðar til að búa til hreina orku er fjölgun vindmylla.
Á meðal þeirra leiða sem eru til staðar til að búa til hreina orku er fjölgun vind­mylla. Mynd: EPA

Þrettán íslenskir líf­eyr­is­sjóðir ætla að setja 580 millj­arða króna í fjár­fest­ingar í hreinni orku og umhverf­is­vænum lausnum til árs­ins 2030. Sjóð­irnir hafa skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu þess efnis gagn­vart alþjóð­legu sam­tök­unum Climate Invest­ment Coalition (CIC) sem var form­lega kynnt í morgun á lofslags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP26, sem fram fer í Glasgow í Skotlandi. CIC mun fylgj­ast með og mæla hvort þátt­tak­endur í verk­efn­inu standi við yfir­lýst mark­mið og birta nið­ur­stöður sínar árlega.

Sjóð­irnir sem taka þátt í verk­efn­inu eru Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Birta líf­eyr­is­sjóður, Brú líf­eyr­is­sjóður, Festa líf­eyr­is­sjóður, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Gildi-líf­eyr­is­sjóður, Líf­eyr­is­sjóður banka­manna, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Lífsverk, LSR, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar, SL líf­eyr­is­sjóður og Stapi líf­eyr­is­sjóður. Um er að ræða þrettán af fjórtán stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins sem halda sam­tals á meg­in­þorra þeirra 6.410 millj­arða króna sem íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið á í hreinni eign um þessar mundir.

[adspot]Með því að skrifa undir vilja­yf­ir­lýs­ing­una bæt­ast sjóð­irnir í hóp fjölda nor­rænna líf­eyr­is­sjóða sem hafa gefið út sam­bæri­legar yfir­lýs­ingar á síð­ustu tveimur árum. Í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu frá þeim segir að með yfir­lýs­ing­unni nú stað­festi íslensku sjóð­irnir þrettán vilja til að stór­auka grænar fjár­fest­ingar sínar og styðja þannig við mark­mið um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á heims­vísu. „Þar er meðal ann­ars horft til ákvæða Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Sjóð­irnir munu meðal ann­ars horfa til verk­efna sem nýta jarð­varma en einnig er stefnan að styðja við aukna notkun ann­arra sjálf­bærra orku­gjafa með það að mark­miði að stuðla að auk­inni notkun hreinnar orku í sam­göngum og atvinnu­starf­semi.“

CIC eru alþjóð­leg sam­tök en stofn­að­ilar eru danska umhverfis-, orku og veitu­ráðu­neytið, The Institutional Investors Group on Climate Change, Insurance & Pension Denmark (sam­tök 92 trygg­inga­fé­laga og líf­eyr­is­sjóða í Danmörku) og World Climate Foundation (sam­tök sem vinna að orku­skiptum og fram­þróun lág­kolefn­is­hag­kerf­is­ins). Markmið CIC er að stuðla að auk­inni fjár­fest­ingu í hreinni orku og öðrum umhverf­is­lausnum, svo sem nýt­ingu jarð­hita, vind­orku, sól­ar­orku, bættrar orku­nýt­ingar í bygg­ingum og bættri tækni við flutn­ing raf­orku. Árið 2019 fengu þau danska líf­eyr­is­sjóði til skuld­binda sig til að fjár­festa fyrir um 6.500 millj­arða króna í grænum lausnum fram til árs­ins 2030. Í til­kynn­ingu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna segir að í októ­ber í fyrra hafi haf­ist vinna CIC við að fá stofn­ana­fjár­festa, yfir­völd og aðra hag­að­ila ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum til að skuld­binda sig á svip­aðan hátt. „Sú vinna fór af stað eftir að nor­rænir for­sæt­is­ráð­herrar álykt­uðu á vett­vangi Norræna ráð­herra­ráðs­ins að þeir myndu hvetja til slíkra fjár­fest­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár