Endurspeglun á fordómafleti íslensku þjóðarinnar

Ný kvik­mynd Ragnars Braga­sonar er frum­sýnd um helg­ina. Í Gull­regni þarf ótta­slegin aðal­per­sóna að takast á við for­dóma sína þegar pólsk kona kemur inn í fjöl­skyld­una. Ragnar segir pólska íbúa Íslands ekki hafa fengið sess í íslenskum kvik­myndum í sam­hengi við mann­fjölda.

Endurspeglun á fordómafleti íslensku þjóðarinnar
Indíana Jóns­dóttir Persóna Sigrúnar Eddu Björns­dóttur í Gull­regni hefur byggt sinn eigin lok­aða heim sem skyndi­lega er ógnað. Mynd: Lilja Jons

Gullregn, ný kvik­mynd leik­stjór­ans Ragnars Braga­sonar, er frum­sýnd í kvik­mynda­húsum um helg­ina. Sagan fjallar um Indíönu Jóns­dóttur, sem takast þarf á við eigin for­dóma þegar einka­sonur hennar kemur heim með pólska kær­ustu. Myndina vann Ragnar í nánu sam­starfi við pólska kvik­mynda­gerð­ar­menn, auk þess sem hún skartar pólsku stjörn­unni Karolina Gruszka í hlut­verki kærust­unnar Danielu.

„Listin end­ur­speglar alltaf sam­fé­lagið að ein­hverju leyti,“ segir Ragnar. „En pólski hluti þjóð­ar­innar er orð­inn nær tutt­ugu þús­und manns og það hefur ekki end­ur­spegl­ast í kvik­myndum.“

Gullregn var upp­haf­lega skrifað sem leik­rit og sett á svið í Borg­ar­leik­hús­inu, en í kvik­mynd­inni leika margir af sömu leik­ur­unum, meðal ann­ars Sigrún Edda Björns­dóttir í hlut­verki aðal­per­són­unnar Indíönu. „Hún er mjög marglaga og flók­inn ein­stak­lingur,“ segir Ragnar. „Án þess að maður vilji gefa of mikið uppi um nið­ur­stöður í verk­inu þá er hún mann­eskja sem hefur ein­angrað sig dálítið frá heim­inum af ótta við hann. Hún lokar sig af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár