Samherji neitar að hafa áreitt blaðamenn

Aðstoð­ar­kona for­stjóra Samherja segir að yfir­lýs­ingar fyr­ir­tæk­is­ins og mynd­banda­gerð þess á sam­fé­lags­miðlum sé hluti af mál­frelsi þeirra. Samherji hafi aldrei áreitt blaða­menn Kveiks.

Margrét Ólafs­dóttir, aðstoð­ar­kona Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra Samherja, segir í skrif­legu svari til Committee to Protect Journalists (CPJ) að fyr­ir­tækið hafi ekki áreitt blaða­menn Kveiks eftir umfjöllun frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins um starf­semi Samherja í Namibíu sem birt­ist í nóv­em­ber 2019.

CPJ fjallar um her­ferð fyr­ir­tæk­is­ins til að koma óorði á blaða­mann­inn Helga Seljan og kollega hans á RÚV. Sú her­ferð birt­ist í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á vef­síðu þess, YouTube-mynd­böndum, kæru til siða­nefndar RÚV og til­raunum til að hafa áhrif á kjör for­manns í Blaða­manna­fé­lagi Íslands.

Rakel Þor­bergs­dóttir frétta­stjóri á RÚV segir við CPJ að aðgerðir Samherja séu „gíf­ur­lega alvar­legar“ og „geti ekki á nokkurn hátt verið rétt­lættar eða útskýrðar af Samherja sem ein­hvers konar við­brögð við umfjöllun þeirra“.

Margrét telur yfir­lýs­ingar Samherja og færslur á sam­fé­lags­miðlum vera hluti af mál­frelsi þeirra, að því er fram kemur í umfjöllun CPJ.

[adspot]

Jón Óttar „stöku sinnum“ unnið að verkefnum fyrir Samherja

Varðandi hegðun Jóns Óttars Ólafs­sonar, ráð­gjafa og einka­spæj­ara, þá segir Margét að hann hafi „stöku sinnum unnið að verk­efnum“ fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins en þau verk­efni hafi aldrei falið í sér áreiti eða ein­elti í garð Helga Seljan.

Kjarninn greindi frá því í ágúst 2020 að Helgi hefði marg­sinnis orðið fyrir áreiti af hálfu Jóns Óttars síðan Kveiks-þátt­ur­inn um við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu fór í loftið. Jón Óttar var meðal ann­ars tíður gestur á Kaffi­fé­lag­inu, kaffi­húsi í miðbæ Reykja­víkur, einatt til að hitta á og ná tali af Helga. Hann sendi Helga enn fremur ítrekað skila­boð, bæði í gegnum SMS og Facebook-reikn­ing eig­in­konu sinnar.

Í fram­haldi af umfjöllun Kjarnans baðst Jón Óttar afsök­unar en hann sagði að Samherji hefði ekki haft vit­neskju um skila­boð sem hann sendi til Helga. Honum hefði fund­ist miður að hátt­semi hans væri bendluð við fyr­ir­tækið. „Hún er alfarið á mína ábyrgð.“

Hluti af „skæruliðadeildinni“

Jón Óttar kom einnig við sögu í umfjöllun Kjarnans um „skæru­liða­deild Samherja“ sem birt­ist í maí á þessu ári. Var hann hluti þess hóps sem rekur áróð­urs­stríð Samherja gegn blaða­mönnum og ákveðnum fjöl­miðlum sem fjallað hafa um fyr­ir­tækið en hóp­ur­inn lýsti sér sjálfur í sam­tölum sem skæru­liða­deild.

Margrét neitar einnig að fyr­ir­tækið hafi skipt sér að kosn­ingum til for­manns Blaða­manna­fé­lags Íslands. Kjarninn greindi frá því í vor að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hefðu reynt að hafa áhrif á nið­ur­stöðu í fyrr­nefndu for­manns­kjöri.

Sagði hún að þeir aðilar sem um ræðir í „skæru­liða­deild­inni“ hefðu ekk­ert umboð haft frá Samherja til að taka slíkar ákvarð­anir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár