Hluthafar Símans búnir að fá 8,5 milljarða króna greiðslu

Síminn hefur ráðið tvo banka til að kanna hvort félagið eigi að selja Mílu, félag utan um fjar­skipta­inn­viði Símans. Mark­miðið er að hámarka verð­mæti eigna Símans fyrir hlut­hafa og að fram­tíð­ar­þróun „verði hag­felld fyrir íslenskan almenn­ing“.

Orri Hauksson er forstjóri Símans.
Orri Hauksson er for­stjóri Símans. Mynd: Síminn

Síminn greiddi hlut­höfum sínum út alls átta millj­arða króna vegna end­ur­kaupa á hluta­bréfum í félag­inu og hálfan millj­arð króna í arð þann 8. apríl síð­ast­lið­inn.

Tilkynnt hafði verið um að það stæði til að greiða upp­hæð­ina út sam­hliða birt­ingu árs­upp­gjörs félags­ins­fyrir árið 2020 fyrr á þessu ári. Í fjár­festa­kynn­ingu vegna upp­gjörs fyrsta árs­fjórð­ungs, sem birt var í vik­unni, er stað­fest að greiðslan hafi verið greidd út.

Síminn end­ur­fjár­magn­aði sig sömu­leiðis á fyrsta árs­fjórð­ungi með fjár­mögnun frá Arion banka.

Auk þess gekk Míla, sem er að öllu leyti í eigu Símans, frá 20 millj­arða króna fjár­mögnun frá Íslands­banka 6. apríl síð­ast­lið­inn. Vaxta­ber­andi skuldir Síma­sam­stæð­unnar hafa farið úr því að vera 15,9 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót í að vera 26 millj­arðar króna í lok mars eftir ofan­greinda end­ur­fjár­mögnun.

Handbært fé var um 4,5 millj­arðar króna í kjöl­far end­ur­fjár­mögn­unar og greiðslu til hlut­hafa.

[adspot]Þetta má lesa út úr fjár­festa­kynn­ingu Símans vegna upp­gjörs fyrsta árs­fjórð­ungs árs­ins 2021 sem birt var í vik­unni. Þar kom fram að tekjur félags­ins voru mjög svip­aðar og á sama tíma á síð­asta ári, eða 6,4 millj­arðar króna. Það er tekju­vöxtur upp á 1,5 pró­sent milli ára. Alls nam hagn­aður Símans á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2,8 millj­örðum króna en þar skipti meg­in­máli hagn­aður af sölu dótt­ur­fé­lags­ins Sensa til Crayon, sem reynd­ist vera um 2,1 millj­arður króna þegar greiðsla barst í apríl 2021.

Stoðir fengu hæstu greiðsluna

Stærsti ein­staki hlut­hafi Símans er fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir, sem á 15,41 pró­sent hlut í félag­inu. Jón Sig­urðs­son, nýráð­inn for­stjóri Stoða og einn stærsti hlut­hafi félags­ins, er einnig stjórn­ar­for­maður Símans. Miðað við núver­andi eign­ar­hlut fengu Stoðir um 1,3 millj­arða króna út úr Símanum vegna end­ur­kaupa og arð­greiðslu í þessum mán­uði. Aðrir helstu eig­endur Símans eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

[links]Stoðir eru líka stærsti inn­lendi einka­fjár­festir­inn í Arion banka, þess sem nú end­ur­fjár­magnar skuldir Símans, en þar hefur verið rekin sú stefna að reyna að greiða sem mest eigið fé út úr bank­anum und­an­farin ár. Á næstu árum er stefnt að því að greiða um 50 millj­arða króna til hlut­hafa bank­ans. Á þessu ári munu arð­greiðslur verða þrír millj­arðar króna og end­ur­kaup á eigin bréfum 15 millj­arðar króna. Hlut­deild Stoða í þeirri útgreiðslu er um 900 millj­ónir króna.

Eftir að sam­ein­ing Kviku, TM og Lykils gekk í gegn eru Stoðir líka stærsti eig­andi þess banka með 9,03 pró­sent hlut.

Þessar þrjár eignir eru yfir 90 pró­sent af eignum Stoða. Kjarninn greindi frá því í gær að eigið fé Stoða um síð­ustu ára­mót hafi verið 31,8 millj­arðar króna og að það hafi auk­ist um 18,5 millj­arða króna frá lokum árs 2016. Ljóst má vera, af þeim útgreiðslum sem þegar hafa farið fram úr lyki­l­eignum Stoða á þessu ári og þeim hækk­unum sem orðið hafa á bréfum þeirra, að eigið fé félags­ins hefur auk­ist veru­lega það sem af er ári.

Bankar ráðnir til að skoða sölu á innviðum

Í fyrra stóð yfir und­ir­bún­ingur á breyttri verka­skipt­ingu milli Símans og dótt­ur­fé­lags­ins Mílu, sem heldur utan um fjar­skipta­inn­viði félags­ins. Sú breytta verka­skipt­ing tók gildi í byrjun þessa árs. Á meðal þess sem fólst í breyt­ing­unni var að Míla tók yfir net­rekstur sem áður var innan vébanda Símans.

Kjarninn greindi frá því í sept­em­ber í fyrra að fjár­festar hefðu lagt fram óform­legar fyr­ir­spurnir til Sím­ans um mögu­leg kaup á Mílu en að engar ákvarð­anir hefðu verið teknar um söl­una. Ljóst er að ef Míla yrði seld væri hægt að skila enn meiri fjár­munum úr rekstri Símans til hlut­hafa félags­ins.

Nú virð­ist vera kom­inn skriður á það mál.

[adspot]Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna upp­gjörs fyrstu þriggja mán­aða árs­ins er haft eftir Orra Hauks­syni, for­stjóra Símans, að inn­lendir og erlendir fjár­festar hafi sýnt auk­inn áhuga á sér­hæf­ingu í fjár­fest­ingum, meðal ann­ars með því að inn­viða­eignir séu aðskildar frá þjón­ustu­fé­lögum í smá­sölu. „Fjár­fest­inga­bank­inn Lazard ásamt Íslands­banka hafa nú verið ráðnir til að ráð­leggja um stefnu­mark­mið og fram­tíð­ar­mögu­leika Mílu. Val­kostir er varða fram­tíðar eign­ar­hald á Mílu verða kann­aðir með það að augna­miði að hámarka verð­mæti eigna Símans fyrir hlut­hafa og að tryggja að fram­tíð­ar­þróun inn­viða sam­stæð­unnar verði hag­felld fyrir íslenskan almenn­ing. Ekki liggur fyrir til hvaða nið­ur­stöðu þetta verk­efni mun leiða en nánar verður upp­lýst um fram­vindu þess um leið og ástæða er til.“

Síminn er ekki eina fjar­skipta­fyr­ir­tækið sem hefur verið að skoða sölu á fjar­skipta­innviðum und­an­farin miss­eri. Slíkt hefur líka verið til athug­unar hjá Nova og Sýn hefur þegar selt sína inn­viði til ónafn­greindra erlendra fjár­festa. Tilkynnt var um þá sölu 1. apríl síð­ast­lið­inn og var kaup­verðið sagt yfir sex millj­arðar króna.

Áður hafði verið greint frá því að sjóður í stýr­ingu banda­ríska fram­taks­sjóðs­ins Digital Colony væri sá aðili sem væri að reyna að kaupa hina óvirku far­síma­inn­viði Sýnar.

Myndlyklar ekki nauðsynlegir lengur

Sú stoð sem hefur vaxið mest innan Símans und­an­farin miss­eri er sjón­varps­þjón­usta. Í fyrra juk­ust tekjur Símans í heild til að mynda um 868 millj­ónir króna þrátt fyrir það sem stjórn­endur félags­ins lýsa í kynn­ingu að hafi verið „erfitt árferði“ vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Tekjur af sjón­varps­þjón­ustu juk­ust mest, alls um 632 millj­ónir króna.

Þar mun­aði mest um tekjur af Premium-áskrift Sjón­varps Símans, sem juk­ust um hálfan millj­arð króna, og auknar aug­lýs­inga­tekjur, sem juk­ust um tæpar 100 millj­ónir króna.

Tekjur vegna áfram­hald­andi starf­semi juk­ust um 99 millj­ónir króna á fyrsta árs­fjórð­ungi 2021, miðað við það sem þær voru á sama tíma í fyrra. Af þeirri upp­hæð komu 39 millj­ónir króna, tæp 40 pró­sent, frá auknum tekjum vegna sjón­varps­þjón­ustu. Í fjár­festa­kynn­ing­unni segir að aug­lýs­inga­sala hafi gengið vel og auk­ist tals­vert milli ára.

Í kynn­ing­unni er enn fremur greint frá breyt­ingum sem verið er að ráð­ast í á sjón­varps­þjón­ustu Símans. Hún verður nú aðgengi­legt fyrir alla án þess að þörf verði á mynd­lykli frá félag­inu, sem greiða hefur þurft sér­stak­lega fyrir. Því geta eig­endur til dæmis snjall­sjón­varps­tækja, eða þeir sem eru með Apple TV, nálg­ast þjón­ust­una í gegnum þau tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár