AGS uppfærði mat sitt á umfangi aðgerða eftir ábendingar íslenskra stjórnvalda

Íslensk stjórn­völd sendu inn ábend­ingar til AGS vegna gagna sjóðs­ins um umfang stuðn­ings­að­gerða vegna veiru­far­ald­urs­ins. Umfang boð­aðra aðgerða á Íslandi er nú metið á um 9 pró­sent af lands­fram­leiðslu 2020.

AGS metur nú umfang boðaðra opinberra stuðningsaðgerða íslenskra stjórnvalda rúm 9 prósent, en mat það áður 2,5 prósent.
AGS metur nú umfang boð­aðra opin­berra stuðn­ings­að­gerða íslenskra stjórn­valda rúm 9 pró­sent, en mat það áður 2,5 pró­sent. Mynd: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur upp­fært mat sitt á umfangi stuðn­ings­að­gerða íslenskra stjórn­valda vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Sjóð­ur­inn birti nýlega á vef sínum gagna­safn þar sem farið var yfir umfang beinna og óbeinna stuðn­ings­að­gerða vegna áhrifa veirunnar í löndum heims.

Það vakti tölu­verða athygli hér­lendis að stuðn­ingur íslenskra stjórn­valda var met­inn á undir 2,5 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Þessu mati hefur nú verið breytt, eftir aðfinnslur og ábend­ingar íslenskra stjórn­valda og stuðn­ings­að­gerðir Íslands, sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu árs­ins 2020, nú sagðar nema um 9,2 pró­sentum í gagna­safni AGS.[links]

Í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu í gær sagði að matið fyrir Ísland hefði verið skekkt. Sú skekkja hefði leitt af því að aðeins hefði verið horft til nokk­urra aðgerða, einkum hluta­bóta, greiðslu launa á upp­sagn­ar­fresti og útgjalda innan heil­brigð­is­kerf­is­ins í til­felli Íslands. Þá hefði mat AGS um Ísland ein­ungis náð til árs­ins 2020 og en ekki til árs­ins í ár og þeirra næstu ólíkt því sem almennt gilti um önnur lönd í gagna­grunn­inum.

Margar aðgerðir hefðu því ýmist ekki verið taldar með í mati AGS fyrir Ísland eða aðeins taldar með að hluta. Það hefðu til dæmis átt við um fjár­fest­inga- og upp­bygg­ing­ar­á­tak, tekju­falls­styrki, við­spyrnu­styrki og fram­leng­ingu tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta.

Þá væri í mati AGS stuðst við nýt­ingu úrræða í til­felli Íslands, en áætl­anir um aðgerðir not­aðar vegna aðgerða ýmissa ann­arra ríkja. Þessu hefur nú verið breytt og áætl­anir um umfang aðgerða sem eiga að koma til fram­kvæmda hér á landi, þrátt fyrir að hafa ekki þegar gert það, nú tekið með í reikn­ing­inn.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vakti athygli á upp­færðu gagna­safni AGS í morgun.

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn tekur fram á vef sínum að gögnin séu ekki ætluð til sam­an­burðar á mili hag­kerfa, þar sem við­brögð stjórn­valda séu marg­breyti­leg vegna mis­mun­andi aðstæðna í mis­mun­andi ríkjum, meðal ann­ars með til­liti til áhrifa far­ald­urs­ins og ann­arra áfalla.

Þá séu sjálf­virkir sveiflu­jafn­arar á borð við almanna­trygg­inga­kerfi mis­öflugir á milli ríkja. Sömu­leiðis er tekið fram að um bráða­birgða­tölur sé að ræða, þar sem ríki séu enn að bæta við stuðn­ings­að­gerðum eða að klára að koma þeim í fram­kvæmd.

Miklu minni halli á ríkissjóði í fyrra en búist var við

Þegar fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti fjár­­laga­frum­varp fyrir árið 2021 var að finna í því áætlun um rekstur rík­­is­­sjóðs í fyrra, á árinu 2020. Tekjur rík­­is­­sjóðs voru áætl­­aðar 769 millj­­arðar króna en útgjöld 1.038 millj­­arðar króna. Það þýddi að fjár­­laga­hall­inn átti að verða 269,2 millj­­arðar króna, sem yrði mesti halli frá því að byrjað var að mæla slíka í íslenska rík­­is­­rekstr­in­­um. Meiri en á hru­­nár­unum 2008 og 2009.

[adspot]

Fyrir um mán­uði síðan birti Hag­­stofa Íslands síðan bráða­birgða­­tölur um afkomu hins opin­bera á síð­­asta ári. Í þeim tölum kom fram að tekjur íslenska rík­­is­ins hefðu verið mun hærri en áætlað var, eða 890,4 millj­­arðar króna. Tekjur sem skil­uðu sér til íslenska rík­­is­ins voru því, á end­an­um, 121,4 millj­­örðum krónum meiri en reiknað var með við fram­lagn­ingu fjár­­laga en 45 millj­­örðum krónum minni en þær voru árið 2019. Útgjöld voru líka hærri en reiknað hafði verið með, eða 1.091 millj­­arður króna, en þar skeik­aði minna en á tekju­hlið­inn­i.

Nið­­ur­­staðan var sú að hall­inn á rík­­is­­sjóð var mun minni en áætlað var við fram­lagn­ingu fjár­­laga­frum­varps­ins, eða 201 millj­­arðar króna. Fjár­­laga­hall­inn 2020 var því 68,2 millj­­örðum krónum minni en rík­­is­­stjórnin reikn­aði með, eða fjórð­ungi minn­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár