Hallinn á rekstri ríkissjóðs var 68 milljörðum krónum minni en áætlað var

Tekjur rík­is­sjóðs á síð­asta ári voru mun hærri en áætlað var þegar fjár­lög voru kynnt í októ­ber. Nánar til­tekið 121 millj­arði króna hærri. Útgjöld voru líka meiri en þar skeik­aði minna.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2021 í byrjun október í fyrra. Þar kom fram áætlun um ríkisbúskapinn 2020.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kynnti fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2021 í byrjun októ­ber í fyrra. Þar kom fram áætlun um rík­is­bú­skap­inn 2020. Mynd: Bára Huld Beck

Þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2021 var að finna í því áætlun um rekstur rík­is­sjóðs í fyrra, á árinu 2020. Tekjur rík­is­sjóðs voru áætl­aðar 769 millj­arðar króna en útgjöld 1.038 millj­arðar króna. Það þýddi að fjár­laga­hall­inn átti að verða 269,2 millj­arðar króna, sem yrði mesti halli frá því að byrjað var að mæla slíka í íslenska rík­is­rekstr­inum. Meiri en á hru­nár­unum 2008 0g 2009.

Í gær birti Hagstofa Íslands bráða­birgða­tölur um afkomu hins opin­bera á síð­asta ári. Í þeim tölum kemur fram að tekjur íslenska rík­is­ins hafi verið mun hærri en áætlað var, eða 890,4 millj­arðar króna. Tekjur sem skil­uðu sér til íslenska rík­is­ins voru því, á end­anum, 121,4 millj­örðum krónum meiri en reiknað var með við fram­lagn­ingu fjár­laga en 45 millj­örðum krónum minni en þær voru árið 2019. Útgjöld voru líka hærri en reiknað hafði verið með, eða 1.091 millj­arður króna, en þar skeik­aði minna en á tekju­hlið­inni.

Nið­ur­staðan er sú að hall­inn á rík­is­sjóð er mun minni en áætlað var við fram­lagn­ingu fjár­laga­frum­varps­ins, eða 201 millj­arðar króna. Fjár­laga­hall­inn 2020 var því 68,2 millj­örðum krónum minni en rík­is­stjórnin reikn­aði með, eða fjórð­ungi minni.

Mikill kostnaður vegna atvinnuleysis

Þegar fjár­lög fyrir 2020 voru sam­þykkt í nóv­em­ber 2019 var gert ráð fyrir að halli á rík­is­sjóði yrði tíu millj­arðar króna. Sú mikla breyt­ing sem orðið hefur á bæði útgjöldum og tekjum rík­is­sjóðs síðan að sú áætlun var lögð fram má rekja að langstærstu leyti til áhrifa af COVID-19.

[adspot]Þannig greiddi rík­is­sjóður sam­tals 35 millj­arðar króna í hluta­bóta­leið­ina, sem átti að vernda atvinnu­sam­bönd á meðan að á heims­far­aldr­inum stóð, og í svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki til fyr­ir­tækja, sem gerðu þeim kleift að eyða atvinnu­sam­bandi án þess að bera jafn mik­inn kostnað og áður af þeirri aðgerð.

Hinir svoköll­uðu sjálf­virku sveiflu­jafn­arar virk­uðu líka til hækk­unar á ákveðnum útgjöldum og lækk­unar á skatt­tekjum. Helsti útgjalda­lið­ur­inn sem þeir hækka eru kostn­aður við rekstur Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs vegna útgreiðslu almennra atvinnu­leys­is­bóta. Sá kostn­aður fór úr 23 millj­örðum króna árið 2019 í 54 millj­arða króna í fyrra sem er aukn­ing um 136 pró­sent. Almenna atvinnu­leysið, það sem mælir þá sem eru að öllu leyti án atvinnu, var enda 11,4 pró­sent í lok síð­asta mán­aðar. Það þýðir að 21.352 ein­stak­lingar voru án vinnu að öllu leyti um liðin mán­aða­mót. Auk þess voru 4.331 að nýta sér hluta­bóta­leið­ina og því voru sam­tals 25.683 án atvinnu að öllu leyti eða hluta í febr­úar. Það eru lít­il­lega færri en voru það í jan­úar þegar atvinnu­leysið náði sínum hæsta punkti frá því að far­ald­ur­inn hófst. Sam­an­lagt atvinnu­leysi nú mælist 12,5 pró­sent.

Alls höfðu 4.719 almennir atvinnu­leit­endur verið án atvinnu í meira en tólf mán­uði í lok febr­úar, en þeir voru 4.508 í jan­ú­ar­lok 2021. Hins vegar voru þeir 1.893 í febr­ú­ar­lok 2020. Lang­tíma­at­vinnu­lausum hefur því fjölgað um 2.826 milli ára, eða um 149 pró­sent.

Fjárfesting dróst saman í kreppu

Fjár­fest­ing hins opin­bera, sem sam­anstendur að uppi­stöðu af rík­is­sjóði og sveit­ar­fé­lögum, dróst saman milli áranna 2019 og 2020. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar voru áætluð fjár­fest­ing­ar­út­gjöld 104,4 millj­arðar króna í fyrra og dróg­ust saman um sex millj­arða króna milli ára.

[links]Hag­stofan segir að þennan sam­drátt megi rekja til þess að fjár­fest­ingar sveit­ar­fé­laga lands­ins hafi dreg­ist saman um tæpa tíu millj­arða króna milli ára, en getur þess þó að fjár­fest­ing þeirra hafi mælst tals­vert mikil á árunum 2018 og 2019 sam­an­borið við árin þar á undan.

Samkvæmt grein­ing sem Samtök iðn­að­ar­ins birtu eftir síð­asta Útboðs­þing þeirra þá var heild­ar­verð­mæti allra opin­berra fram­kvæmda á síð­asta ári 29 pró­sentum minna heldur en boðað var á Útboðs­þing­inu í fyrra. Úr þeirri grein­ingu má lesa að rík­is­stofn­an­ir- og fyr­ir­tæki fram­kvæmdu mun minna á árinu 2020 heldur en áætlað var á Útboðs­þingi 2020. Þar mun­aði mest um að Vega­gerðin, Isavia og Nýi Lands­spít­al­inn fram­kvæmdu öll fyrir minna fjár­magn en boðað hafði verið.

Í útgáfu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins um rík­is­fjár­mál, sem birt var í fyrra­haust, voru þróuð ríki hvött til að stór­auka opin­berar fjár­fest­ingar til að kom­ast fljótar upp úr kór­ónu­veiru­kreppu. Í útgáf­unni stóð að hag­kvæmt sé að taka lán fyrir slíkri fjár­fest­ingu út af lágum vöxtum og upp­safn­aðri þörf.

Áætluð vaxta­gjöld hins opin­bera hafa lækkað umtals­vert síð­ustu ár og sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu námu þau fjögur pró­sent á árinu 2020 sam­an­borið við 6,9 pró­sent árið 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár