Ekki talin þörf á að skima tónleikagesti aftur síðar í vikunni

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að það sé ekki alveg öruggt, en þó mjög lík­legt, að ef ein­hver tón­leika­gestur hafi smit­ast í Hörpu á föstu­dag myndi smitið finn­ast í skimun í dag. Ekki er talin þörf á tvö­faldri skimun hóps­ins.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

„Það er ekki alveg öruggt, nei,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í sam­tali við Kjarnann, spurður hvort öruggt sé að þeir sem mögu­lega hafi smit­ast af kór­ónu­veirunni á píanó­konsert í Hörpu á föstu­dags­kvöld myndu örugg­lega grein­ast jákvæðir í dag. Ekki stendur til að skima allan hóp­inn á ný síðar í vik­unni.

„Ég held að það sé nú kannski ekki þörf á því,“ sagði Þórólfur síð­degis í dag, en und­an­farið ár, frá því að veiru­far­ald­ur­inn hóf að raska venju­legu lífi, hefur oft komið fram að það getur tekið nokkra daga frá því að fólk verður útsett fyrir veirunni og þar til ein­stak­lingar grein­ast jákvæðir fyrir COVID-19 í prófum.

Í grein á Vís­inda­vefnum frá því í októ­ber segir að það taki um 3-4 daga að jafn­aði frá því að fólk byrjar að verða smit­andi með COVID-19 eftir að hafa smit­ast sjálft. „Þetta passar við þá stað­reynd að það tekur einnig nokkra daga fyrir sýni að verða jákvætt fyrir SARS-CoV-2 úr stroki frá upp­hafi smits,“ segir í grein­inni.

Núna klukkan 20 í kvöld eru þrír sól­ar­hringar liðnir frá því að tón­leik­arnir sem um ræðir hófust í Eld­borg­ar­sal Hörpu.

Alltaf að eiga við líkur

Þórólfur telur okkur þó geta verið „nokkuð sátt með að gera þetta svona“ og segir að það séu „miklar líkur“ á að mögu­leg smit frá því á föstu­dag grein­ist í skimun tón­leika­gesta sem staðið hefur yfir í dag.

„Við erum alltaf að eiga við alls konar líkur,“ segir Þórólfur og bendir á að hið sama eigi við varð­andi tvö­falda skimun á landa­mær­unum með seinni skimun á fimmta degi eftir kom­una, alltaf séu ein­hverjar líkur á að smit sleppi í gegn.

Beint í próf ef einkenni koma fram

Sótt­varna­læknir segir að hann telji skyn­sam­legt að ráð­ast í skimun þeirra sem sóttu tón­leik­ana í Hörpu á föstu­dag­inn núna strax. „En það þarf líka að brýna fyrir fólki sem hefur verið þarna að passa sig. Og ef fólk fer að finna fyrir ein­hverjum ein­kennum, að fara þá aftur í próf,“ segir Þórólfur.

Síðan séu þeir sem sátu næst þeim ein­stak­lingi sem var smit­aður í sótt­kví, en það voru um tíu manns. „Þeir verða í hefð­bund­inni sótt­kví í viku­tíma og þurfa þá að fara í skimun, þeir sem voru næstir þessum smit­aða ein­stak­lingi,“ segir Þórólfur.

[adspot]

Hið sama á við um þá starfs­menn og sjúk­linga á Land­spít­ala sem taldir eru hafa verið í nánd við starfs­mann spít­al­ans sem greind­ist með breska afbrigði kór­ónu­veirunnar yfir helg­ina.

Þegar Þórólfur ræddi við Kjarnann á fimmta tím­anum í dag höfðu engin ný jákvæð sýni greinst svo hann vissi til það sem af var degi. „Við fáum að vita fram eftir kvöldi hvort ein­hver grein­ist, ef ein­hver verður jákvæður,“ sagði Þórólfur.

Þarf að vera viðbúinn því ólíklega

Spurður hvort von­brigði eða eitt­hvað svekk­elsi fylgi því að smit hafi lekið inn í landið og út í sam­fé­lagið með þeim hætti sem það gerði segir sótt­varna­lækn­ir­inn af svo sé ekki. Hann hafi alltaf talið ein­hverjar líkur á því.

„Þetta er það sem maður býst við, þó að lík­urnar séu litlar og búið sé að gera ýmis­legt til að halda lík­unum niðri þá eru þær til staðar. Og ólík­legir hlutir geta gerst líka, maður þarf að vera við­bú­inn því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár