Sýn tapaði 405 milljónum króna í fyrra og nær allir tekjustofnar drógust saman

Tekjur Sýnar juk­ust milli áranna 2019 og 2020 vegna þess að dótt­ur­fé­lagið Endor kom inn í sam­stæðu­reikn­ing­inn. Aðrir tekju­stofnar Sýnar dróg­ust saman. Tekjur fjöl­miðla­hlut­ans hafa minnkað um millj­arð króna á tveimur árum, en jákvæð teikn eru á lofti þar.

Heiðar Guðjónsson er forstjóri Sýnar og einn stærsti hluthafi félagsins með 9,2 prósent eignarhlut.
Heiðar Guð­jóns­son er for­stjóri Sýnar og einn stærsti hlut­hafi félags­ins með 9,2 pró­sent eign­ar­hlut. Mynd: Sýn

Fjöl­miðla- og fjar­skipta­fé­lagið Sýn tap­aði 405 millj­ónum króna á síð­asta ári. Það er tölu­vert minna tap en félagið skil­aði af sér árið 2019, þegar það tap­aði 1.748 millj­ónum króna. Sam­an­lagt tap sam­stæð­unnar á tveimur árum er því tæp­lega 2,2 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Sýnar vegna 2020 sem birtur var í gær.

Árið 2019 réð mestu að virð­is­rýrnun við­skipta­vildar vegna fjöl­miðla sam­stæð­unnar var færð niður um tæp­lega 2,5 millj­arða króna, en á móti kom líka ein­skipt­is­sölu­hagn­aður vegna sölu á fær­eyska félag­inu P/F Hey upp á 872 millj­ónir króna.

Tekjur félags­ins juk­ust um tæpan millj­arð króna á milli ára og voru í heild 20,8 millj­arðar króna á síð­asta ári. Í fyrra féllu allar nýjar tekjur Sýnar til vegna dótt­ur­fé­lags­ins Endor, upp­­­lýs­inga­­­fyr­ir­tækis í hýs­ingar- og rekstr­ar­lausnum sem stýrir ofur­­­tölvum, sem Sýn keypti í lok árs 2019, og kom inn í sam­stæðu­reikn­ing félags­ins á árinu 2020. Kaup­verðið á Endor var 618 millj­ónir króna en getur enn tekið breyt­ingum eftir afkomu þess, og tekjur þess voru 2,4 millj­arðar króna í fyrra. Ef Endor hefði ekki komið inn í sam­stæðu­reikn­ing­inn í fyrra hefðu tekjur dreg­ist saman um 1,4 millj­arða króna.

Mesti samdrátturinn í fjölmiðlatekjum

Allir aðrir tekju­stofnar Sýnar dróg­ust enda saman á milli ára.

Mestur var sam­drátt­ur­inn í fjöl­miðla­hluta Sýnar, en tekjur hans dróg­ust saman um 559 millj­ónir króna á milli ára. Frá lokum árs 2018 hafa tekjur vegna fjöl­miðla Sýnar lækkað um rúm­lega einn millj­arð króna.

[adspot]Jákvæð teikn voru þó á lofti á fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs þegar tekjur af fjöl­miðlun voru sex millj­ónum krónum meiri en þær voru á sama fjórð­ungi 2019.

Þorri sam­drátt­ar­ins er vegna þess að aug­lýs­inga­tekjur dróg­ust saman um 11 pró­sent milli ára. Tekjur af sjón­varps­dreif­ingu juk­ust hins vegar um 18 pró­sent. Í til­kynn­ingu sem send var til Kaup­hallar Íslands vegna upp­gjörs­ins er haft eftir Heiðari Guð­jóns­syni, for­stjóra Sýnar og eins stærsta hlut­hafa félags­ins, að með breyttu vöru­fram­boði hafi tek­ist að fjölga við­skipta­vinum Stöðvar 2 um 14 pró­sent á árinu 2020. „„Við höfum stöðugt lækkað verð frá því tókum yfir fjöl­miðla­rekst­ur­inn. Verð á Stöð 2 Sport hefur helm­ing­ast á síð­ustu 3 árum og nú bjóðum við upp á að kaupa áskrift að Stöð 2 Ísland og Stöð 2 Erlent á áður óþekktum verð­punkti, eða á 3.990 kr.“

Í fjár­festa­kynn­ingu sem fylgdi árs­reikn­ingnum segir meðal ann­ars að áskrif­endum Stöð 2 Sport hafi fjölgað um 26 pró­sent á milli des­em­ber 2019 og 2020. Efn­isveitan Stöð 2 + hafi sömu­leiðis fjölgað áskrif­endum um níu pró­sent og full­yrt er að hlut­deild Stöðvar 2 á mark­aði sé nú orðin sú sama og hún var áður en hinum svo­kall­aða opna glugga, sem inni­hélt fréttir stöðv­ar­innar og Ísland í dag, var lokað í síð­asta mán­uði.

Fyrirhugað að selja óvirka innviði

Á eftir sam­drætt­inum í fjöl­miðlun kemur sam­dráttur í far­síma­tekjum upp á 390 millj­ónir króna milli ára og tekjur vegna inter­nets, sem drag­ast saman um 254 millj­ónir króna.

[links]Lækkun tekna vegna far­síma skýrist aðal­lega að 64 pró­sent sam­drætti í reiki­tekjum milli ára. Sýn full­yrðir hins vegar að jákvæð þróun hafi verið í fjölda við­skipta­vina milli ára.

Í upp­gjöri Sýnar kemur fram að félagið sé langt komið með að selja svo­kall­aða óvirka far­síma­inn­viði félags­ins. Ætlaður sölu­hagn­aður vegna þessa er um sex millj­arðar króna. Sýn mun svo leigja inn­við­ina til 20 ára af nýjum eig­anda, félagið í stýr­ingu banda­ríska fram­taks­sjóðs­ins Digital Colony. Heiðar segir í til­kynn­ing­unni til Kaup­hallar Íslands að stjórn félags­ins hafi veitt stjórn­endum umboð til að und­ir­rita nauð­syn­leg skjöl á þeirri for­sendu að skjala­gerð verði að fullu lokið í síð­asta lagi fyrir birt­ingu árs­hluta­reikn­ings 1. fjórð­ungs 2021, en stefnt sé að því að und­ir­ritun samn­inga tak­ist vel fyrir þann tíma.

Ef upp­gjör Sýnar eru skoðuð tvö ár aftur í tím­ann, og leið­rétt er fyrir ein­skipt­is­hagn­að­inum vegna söl­unnar á P/F Hey í byrjun árs 2019, þá hefur félagið skilað tapi á öllum árs­fjórð­ungum áranna 2019 og 2020 nema einum. Á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2020 skil­aði það átta milljón króna hagn­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár