Tíu prósent fullorðinna Íslendinga undir fimmtugu lesa Morgunblaðið

Lesendur Frétta­blaðs­ins í ald­urs­hópnum 18-49 ára hafa aldrei verið færri og þeim sem lesa Morg­un­blaðið í sama hóp eru nú tæp­lega þriðj­ungur af því hlut­falli hans sem það gerði fyrir tólf árum síðan.

Lestur dagblaða hefur dregist verulega saman á Íslandi á undanförnum árum.
Lestur dag­blaða hefur dreg­ist veru­lega saman á Íslandi á und­an­förnum árum. Mynd: Samsett

Lestur Morg­un­blaðs­ins, stærsta áskrift­ar­dag­blaði Íslands, hjá fólki í ald­urs­hópnum 18-49 ára er nú ein­ungis tæp­lega þriðj­ungur af því sem hann var fyrir tólf árum síðan þrátt fyrir að blaðið sé nú í aldreif­ingu til ann­arra en áskrif­enda alla fimmtu­daga, og hafi verið þannig í lengri tíma. Í byrjun árs 2009 lásu 32,8 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum Morg­un­blaðið. Alls sögð­ust 10,3 pró­sent full­orð­inna lands­manna undir fimm­tugu lesa það í síð­asta mán­uði, og hafa aldrei verið færri.

Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Gallup um lestur dag­blaða á Íslandi.

Lesendum Morg­un­blaðs­ins í ald­urs­hópnum hefur fækkað um rúm­lega 21 pró­sent á einu ári. Það er hlut­falls­lega meiri lækkun en átti sér stað hjá les­endum Morg­un­blaðs­ins undir fimm­tugu árin á undan. Raunar er hlut­falls­leg fækkun les­enda í áður­nefndum ald­urs­hópi meiri en hún var milli áranna 2018 og 2020, þegar les­endum Morg­un­blaðs­ins fækk­aði um tæp­lega 20 pró­sent.

Heild­ar­lestur Morg­un­blaðs­ins mælist nú 20,3 pró­sent sem er það lægsta sem hann hefur nokkrum sinni mælst. Vorið 2009 var hann yfir 40 pró­sent og því hefur hann helm­ing­ast frá þeim tíma. 

Tæplega fjórði hver undir fimmtugu les Fréttablaðið

Lesendum Frétta­blaðs­ins, frí­blaðs sem dreift er ókeypis í 80 þús­und ein­tökum á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Akureyri, á aldr­inum 18-49 ára hefur einnig fækkað mikið, og hratt. Í byrjun árs 2009 naut blaðið enn fádæma vin­sælda og var lesið af 65,1 pró­sent þessa mik­il­væg­asta neyt­enda­hóps lands­ins í augum aug­lýsenda. Nú, tólf árum síðar, mælist lest­ur­inn 23,7 pró­sent og hefur aldrei verið minni. Hann dróst saman um 13,5 pró­sent síð­ast­liðið ár.

[adspot]Heild­ar­lestur á blaðið mælist nú 33,2 pró­sent og hefur aldrei verið minni. Til sam­an­burðar má nefna að lestur þess mæld­ist 64 pró­sent í apríl 2010 og hefur því nán­ast helm­ing­ast frá þeim tíma. Vert er þó að taka fram að útgáfu­dögum Frétta­blaðs­ins var fækkað úr sex í fimm á síð­asta ári, þegar ákveðið var að blaðið hætti að koma út á mánu­dögum. Síðasta breyt­ing á útgáfu­tíðni fyrir það hafði verið í jan­úar 2009, skömmu eftir banka­hrunið, þegar Frétta­blaðið hætti að koma út á sunnu­dögum.

Önnur breyta sem gæti haft áhrif á lestur bæði Morg­un­blaðs­ins og Frétta­blaðs­ins eru breytt lög um póst­þjón­ustu, sem sam­þykkt voru 2019, og gera frí­blöðum erf­ið­ara fyrir en áður að ná augum fólks. Í þeim er réttur neyt­enda til að afþakka frí­blöð tryggður. Á grunni þeirra laga réðst Reykja­vík­ur­borg í útgáfu á svoköll­uðum afþökk­un­ar­lím­miðum fyrir Reyk­vík­inga, sem sendir voru á öll heim­ili á þessu stærsta dreif­ing­ar­svæði frí­blaða á Íslandi á seinni hluta síð­asta árs.

Í við­horfskönnun sem Reykja­vík­ur­borg og SORPU bs. létu gera um flokkun og end­ur­vinnslu, í aðdrag­anda þess að gripið var til þess ráð­ast að dreifa mið­unum, kom í ljós að um 70 pró­sent af svar­endum afþökk­uðu ekki fjöl­póst en gátu mögu­lega eða mjög vel hugsað sér að gera það.

Minni lestur hjá vikublöðunum líka

Hin tvö blöðin sem mæld eru í könnun Gallup eru viku­blöð: DV og Við­skipta­blaðið. Alls segj­ast 4,4 pró­sent lands­manna undir fimm­tugu lesa Við­skipta­blaðið og 2,8 pró­sent segj­ast lesa DV. Lestur Við­skipta­blaðs­ins hjá ald­urs­hópnum hefur dreg­ist saman um 39 pró­sent á tveimur árum og lestur DV um 60 pró­sent.

[links]Heild­ar­lestur DV, hjá öllum mældum ald­urs­hópum, mælist nú 4,7 pró­sent og 5,6 pró­sent hjá Við­skipta­blað­inu.

Auk ofan­greindra er Stundin enn send til áskrif­enda í papp­írs­formi og nokkur minni hér­aðs­blöð koma enn út í því formi. Ekkert þeirra er þó í mæl­ingum hjá Gallup.

Bænda­blaðið er enn prentað og kaupir mæl­ingar hjá Gallup í októ­ber, nóv­em­ber og des­em­ber á hverju ári. Í lok árs 2019 sögð­ust 29,2 pró­sent lands­manna sjá Bænda­blaðið og hafði lestur þess hald­ist stöð­ugur und­an­farin ár.

Í des­em­ber 2020 mæld­ist hann hins vegar 24,3 pró­sent og hafði því fallið um tæp 17 pró­sent á milli ára. Hjá fólki undir fimm­tugu mæld­ist lestur Bænda­blaðs­ins 14,4 pró­sent í lok síð­asta árs.

Sífellt minni sneið af kökunni

Samhliða ofan­greindri breyt­ingu hefur hlut­deild prent­miðla í aug­lýs­inga­tekjum fjöl­miðla breyst veru­lega. Á árunum fyrir banka­hrun var hún að jafn­aði 40 pró­sent, sem þýddi að fjórar af hverjum tíu krónum sem fóru í kaup á aug­lýs­ingum runnu til prent­miðla.

Það hlut­fall hefur lækkað jafnt og þétt síðan og var 22 pró­sent árið 2019, sam­kvæmt sam­an­tekt Hagstofu Íslands sem birt var í síð­asta mán­uði. Köku­stærð prent­miðla hefur því næstum helm­ing­ast á rúmum ára­tug. Hag­stofan telur að sá sam­dráttur, sem er sá mesti á fjöl­miðla­mark­aði, eigi rætur sínar að rekja til breyttrar fjöl­miðla­notk­unar „sífellt auk­innar net­notk­unar almenn­ings og greiðslu aug­lýsenda fyrir birt­ingu aug­lýs­inga á erlendum vef­miðlum.“

Í sam­an­tekt Hag­stof­unnar kemur fram að í krónum talið hafi tekju­sam­dráttur blaða­út­gáfu numið um 60 pró­sent frá því að þær voru hæstar árið 2006. Tekjur af útgáfu tíma­rita og ann­arra blaða lækk­uðu um 12 pró­sent á milli áranna 2018 og 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár