Smit á einni viku ekki færri síðan í júlí

Á sjö dögum hafa þrettán greinst með kór­ónu­veiruna inn­an­lands. Und­an­farna sex daga hafa allir verið í sótt­kví við grein­ingu. Á þeim 333 dögum sem liðnir eru frá því fyrsta til­felli COVID-19 var greint á Íslandi hafa 78 dagar reynst smit­lausir.

Smitum hefur fækkað mikið síðustu daga.
Smitum hefur fækkað mikið síð­ustu daga. Mynd: EPA

Nú í jan­úar hafa 90 manns greinst með virkt smit af kór­ónu­veirunni inn­an­lands en 146 í landamæra­skimun sem er næst mesti fjöldi í einum mán­uði síðan hún hófst. Á þeim 333 dögum sem liðnir eru síðan fyrsta smitið greind­ist inn­an­lands hafa 78 dagar verið án smita, þar af þrír í jan­úar. Einn þeirra var fyrsti dagur árs­ins en þá voru engin sýni tekin. Lengsta smit­lausa tíma­bilið frá upp­hafi far­ald­urs­ins var í júlí en þá liðu 20 dagar án þess að nokkur greind­ist með veiruna inn­an­lands.

Síðustu sjö daga hafa aðeins þrettán inn­an­lands­smit greinst og hafa svip­aðar tölur ekki sést síðan í júlí. Síðustu sex daga hafa allir verið í sótt­kví við grein­ingu en slíkt er ákveð­inn mæli­kvarði á litla útbreiðslu smits í sam­fé­lag­inu.

[adspot]

6.000 manns hafa nú greinst með COVID-19 á Íslandi. 29 eru látnir. Í gær höfðu 4.820 fengið seinni skammt bólu­efnis og eru því að fullu bólu­settir. Vonast er til að búið verði að bólu­setja 30 þús­und manns fyrir mars­lok.

Frá því landamæra­skimun hófst um miðjan júní hafa 667 ferða­menn greinst með virkt smit. Í júní og júlí greindust fáir, sam­tals 25 manns, en stökk varð í ágúst er 72 greindust. Þann 19. ágúst var tekin upp tvö­föld sýna­taka á landa­mær­unum og í sept­em­ber greindust þar aðeins 47 með virkt smit.

Staðan snögg­breytt­ist svo í októ­ber. Þriðja bylgja far­ald­urs­ins var hafin og 1.959 manns greindust með veiruna inn­an­lands. Á landa­mær­unum var einnig mesti fjöldi virkra smita í einum mán­uði eða 168.

Sá fyrsti sem greind­ist með kór­ónu­veiruna hér á landi var karl­maður á fimm­tugs­aldri sem hafði verið á ferða­lagi um Norður-Ítalíu. Smit sem greindust svo í kjöl­farið var einnig flest hægt að tengja við skíða­ferða­lög í Ölpunum. Í mars og apríl, í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins, greindust sam­tals 1.797 til­felli COVID-19 en aðeins átta í maí eftir harðar sam­komu­tak­mark­anir vik­urnar á undan. Útlitið var einnig gott í júní og þá greindust aðeins tólf inn­an­lands og sex í landamæra­skimun sem þá hafði verið tekin upp.

Í lok júní kom upp lítið hópsmit í tengslum við Íslend­ing sem hafði greinst nei­kvæður við kom­una til lands­ins en fengið ein­kenni nokkrum dögum síðar og reynd­ist í annarri sýna­töku smit­aður. Þá hófst umræða um tvö­falda sýna­töku við landa­mærin, því orðið var ljóst að fólk getur verið ein­kenna­laust og ekki greinst í nokkra daga eftir að fá veiruna í sig, en hún varð þó ekki að veru­leika fyrr en eftir miðjan ágúst.

Græna og bláa afbrigðið

Á milli þess­ara tveggja atburða, smits­ins í lok júní og tvö­földu skimun­ar­innar, komust tveir stofnar veirunnar á flug inn­an­lands. Annar þeirra, kall­aður græna afbrigðið, kom af stað annarri bylgj­unni í ágúst. Ekki er enn vitað hvenær eða hvernig það afbrigði komst inn í landið.

Meira er vitað um bláa afbrigðið sem varð drif­kraft­ur­inn í þriðju bylgj­unni og þeirri verstu hingað til. Það barst til lands­ins fyrir miðjan ágúst, lík­lega með ferða­mönnum frá Frakk­landi.

Á síð­ustu vikum hafa um fjöru­tíu manns greinst með hið svo­kall­aða breska afbrigði veirunnar á landa­mær­unum og að minnsta kosti sjö inn­an­lands. Allt teng­ist það fólk þeim sem greinst hafa í landamæra­skimun. Það afbrigði hefur því ekki, enn sem komið er, breiðst út í sam­fé­lag­inu en rann­sóknir benda til að það sé mun meira smit­andi en eldri afbrigði veirunnar. Hefur það m.a. valdið usla í Danmörku, Bret­landi, Hollandi og víðar. Fleiri skæð afbrigði hafa einnig látið á sér kræla síð­ustu vikur, m.a. eitt sem kennt er við Suður-Afríku og annað sem kennt er við Brasilíu.

Alma Möller land­læknir og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir voru spurð að því á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna á mánu­dag hvers vegna frek­ari til­slak­anir væru ekki gerðar á sam­komum fólks í ljósi þess að staðan í far­aldr­inum inn­an­lands væri mun betri en við höfum séð í lengri tíma. Þórólfur svar­aði því til að frekar nýlega hefði verið slakað á, sam­komu­tak­mark­anir færðar í tutt­ugu manns í stað tíu og ýmis starf­semi heim­iluð á ný, og að afleið­ing­arnar af því ættu enn eftir að koma í ljós. Þá væri far­ald­ur­inn í mik­illi upp­sveiflu erlendis og bráðsmit­andi afbrigði á kreiki. Enn væru margir að grein­ast við landa­mærin sem end­ur­spegl­aði stöðu far­ald­urs­ins í mörgum nágranna­löndum okkar.

Alma sagði að við værum nú reynsl­unni rík­ari. Það hefði sýnt sig að lítið þyrfti til að koma af stað nýrri bylgju eins og við sáum um miðjan sept­em­ber er þriðja bylgjan hófst. Ekki tókst að ráða nið­ur­lögum hennar fyrr en í lok nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár