COVID-19 smit á hjartadeild Landspítalans

Sjúk­lingur á hjarta­deild Land­spít­al­ans hefur greinst með COVID-19. Lokað hefur verið fyrir inn­lagnir á deild­ina og heim­sóknum þangað frestað á meðan starfs­fólk og sjúk­lingar hennar eru skimaðir í kvöld og á morgun.

Lokað hefur verið fyrir inn­lagnir á hjarta­deild Land­spít­al­ans eftir að upp komst að sjúk­lingur hafi smit­ast á meðan hann var inniliggj­andi þar. Þetta kemur fram í nýút­gef­inni frétta­til­kynn­ingu frá Land­spít­al­anum.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni kom í ljós að sjúk­lingur, sem legið hafði á hjarta­deild­inni hafi reynst smit­aður í kvöld. Ekki liggur fyrir hvernig hann hafi smit­ast, en þó liggur fyrir að það hafi gerst á meðan hann var inniliggj­andi á deild­inni.

Þrátt fyrir að lokað hafi verið fyrir inn­lagnir á deild­ina verður bráðum inn­lögnum hjarta­sjúk­linga verður sinnt á öðrum legu­deildum. Öllum val­kvæðum aðgerðum og göngu­deild­ar­heim­sóknum á hjarta­deild á morgun, mið­viku­dag­inn 13. jan­úar, hefur verið frestað.

Vegna smits­ins hefur far­sótt­ar­nefnd Land­spít­ala, ásamt stjórn­endum hjarta­deildar ákveðið að skima alla 32 sjúk­linga deild­ar­innar, auk starfs­fólk hennar, sem telur á annað hund­rað manns. Þar að auki verður haft sam­band við aðstand­endur. Samkvæmt til­kynn­ing­unni er nú þegar hafið að skima og hafa sam­band við aðstand­endur, en því verður haldið áfram á morgun. Tryggt verði að þeir fari skimun sem þörf krefur.

Sótt­varna­læknir hefur verið upp­lýstur um málið og nú er unnið að smitrakn­ingu inn­an­húss og meðal þeirra sem deild­inni tengj­ast eftir atvikum.

Margir starfsmenn og heimsóknir leyfðar

Í til­kynn­ing­unni eru nefndar ýmsar mögu­legar útskýr­ingar á því að COVID-19 smit hafi komið upp á deild­inni, jafn­vel þótt ítr­ustu sótt­varna og fyllstu var­úðar og öryggis sjúk­linga sé gætt. Þar er bent á að mik­ill fjöldi starfs­manna starfi á deild­inni sem sé virkt upp að vissu marki í sam­fél­g­inu. Einnig bætir spít­al­inn við að heim­sóknir aðstand­enda séu leyfðar upp að vissu marki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár