Leggja á ný til stofnun starfshóps sem á að bregðast við upplýsingaóreiðu

Þingmenn sem sitja í Íslands­deild Norð­ur­landa­ráðs hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um skipan starfs­hóps sem á að móta aðgerðir gegn upp­lýs­inga­óreiðu á Íslandi og auka upp­lýs­inga- og tæknilæsi allra ald­urs­hópa, ekki síst eldra fólks.

„Mikilvægi miðlalæsis hefur því aldrei verið meira, en í hugtakinu felst að einstaklingur geti aðgreint falsfréttir frá raunverulegum fréttum,“ segir í tillögu þingmannanna.
„Mik­il­vægi miðla­læsis hefur því aldrei verið meira, en í hug­tak­inu felst að ein­stak­lingur geti aðgreint fals­fréttir frá raun­veru­legum fréttum,“ segir í til­lögu þing­mann­anna. Mynd: Pexels

Þingmenn sem sitja í Íslands­deild Norð­ur­landa­ráðs hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að for­sæt­is­ráð­herra verði falið að skipa starfs­hóp til að móta stefnu um við­brögð við upp­lýs­inga­óreiðu. Svipuð þings­á­lykt­un­ar­til­laga var lögð fram á síð­asta þingi, en hefur nú breyst nokkuð.[links]

Samkvæmt eldri til­lögu átti starfs­hóp­ur­inn sjálfur að kort­leggja dreif­ingu upp­lýs­inga­óreiðu á Íslandi, en sam­kvæmt nýju til­lög­unni er téðum starfs­hópi ein­ungis ætlað að leggja til leiðir um hvernig það skuli gert. Einnig er nú sett í verka­hring starfs­hóps­ins að leggja til aðgerðir og skipu­lag á sviði miðla- og upp­lýs­inga­læsis sem nái til allra ald­urs­hópa.

Samkvæmt til­lögu þing­mann­anna á starfs­hóp­ur­inn að skila til­lögum sínum til ráð­herra í síð­asta lagi í mars 2022 og ráð­herra að kynna stefnu sem byggi á til­lög­unum ekki síðar en 1. nóv­em­ber 2022. Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að und­an­farin ár hafi borið meira á því að vill­andi og falskar upp­lýs­ingar séu í dreif­ingu og sífellt erf­ið­ara reyn­ist að greina á milli raun­veru­legra frétta og fals­frétta.

[adspot]

„Mik­il­vægi miðla­læsis hefur því aldrei verið meira, en í hug­tak­inu felst að ein­stak­lingur geti aðgreint fals­fréttir frá raun­veru­legum fréttum,“ segir í til­lögu þing­mann­anna. Þar segir einnig að hér á landi hafi verið mest áhersla á að efla tækni- og upp­lýs­inga­læsi barna og ung­menna, en að erlendar rann­sóknir sýni fram á að fólk 65 ára og eldra sé lík­leg­ast til að deila fals­fréttum á sam­fé­lags­miðlum.

[box]

Í grein­ar­gerð segir einnig að upp­lýs­inga­óreiða komi helst til tals þegar fjallað sé um umdeild sam­fé­lags­leg mál­efni.

„Mark­miðið er að dreifa áróðri eða hafa vill­andi áhrif á sam­fé­lags­lega umræðu. Upp­lýs­inga­óreiða hefur áhrif á getu almenn­ings til að afla sér réttra upp­lýs­inga um stefnu og ákvarð­anir stjórn­valda og annað sem varðar hags­muni hans. Hún eitrar sam­fé­lags­lega umræðu, eykur spennu á milli ólíkra þjóð­fé­lags­hópa og grefur undan kosn­inga­kerfum, sem haft getur alvar­leg áhrif á þjóðar­ör­yggi,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þar segir einnig ljóst að mun minna sé vitað um hversu mikil upp­lýs­inga­óreiða er hér­lendis en víða erlendis, þar sem hún hafi verið kort­lögð í meira mæli. „Nauð­syn­legt er að stemma stigu við þessu og kort­leggja dreif­ing­una hér á landi.“

COVID-19 upplýsingaóreiðuhópur þegar að störfum

Þjóðar­ör­ygg­is­ráð ákvað í vor að koma á fót vinnu­hópi til að kort­leggja birt­ing­ar­myndir og umfang upp­lýs­inga­óreiðu í tengslum við COVID-19 hér á landi og gera til­lögur um aðgerðir til þess að sporna við henni.

Á meðal þess sem upp­lýs­inga­óreiðu­hóp­ur­inn hefur gert til þessa er að koma á sam­starfi við rit­nefnd COVID-19 verk­efnis Vís­inda­vefs Háskóla Íslands, en á Vís­inda­vefnum hafa verið sett fram svör við fjöl­mörgum spurn­ingum um veiru­far­ald­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

upplýsingaóreiða

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár