Íslendingar treysta sérfróðum yfirvöldum og fjölmiðlum vel í tengslum við COVID-19

Vinnu­hópur þjóðar­ör­ygg­is­ráðs um upp­lýs­inga­óreiðu í tengslum við COVID-19 hefur skilað af sér skýrslu. Þar kemur m.a. fram að traust til þrí­eyk­is­ins og ann­arra sér­fróðra yfir­valda er afger­andi og traust til inn­lendra fjöl­miðla sömu­leiðis mjög mikið.

Þríeykið og aðrir sérfróðir viðbragðsaðilar njóta yfirburðatrausts hjá Íslendingum – en á bilinu 94-96 prósenst segjast treysta því að fá áreiðanlegar upplýsingar um veirufjárann þaðan.
Þríeykið og aðrir sér­fróðir við­bragðs­að­ilar njóta yfir­burða­trausts hjá Íslend­ingum – en á bil­inu 94-96 pró­senst segj­ast treysta því að fá áreið­an­legar upp­lýs­ingar um veiru­fjár­ann þaðan.

Í sam­an­burði við margar stór­þjóðir treysta Íslend­ingar fjöl­miðlum vel fyrir því að miðla áreið­an­legum upp­lýs­ingum um kór­ónu­veiruna og COVID-19, sam­kvæmt könn­unum sem Maskína fram­kvæmdi fyrir vinnu­hóp þjóðar­ör­ygg­is­ráðs um upp­lýs­inga­óreiðu í tengslum við COVID-19. Þetta kemur fram í skýrslu sem vinnu­hóp­ur­inn, sem skip­aður var í apríl, birti síð­degis í dag.

Yfir 82 pró­sent aðspurðra í tveimur könn­unum sem fram­kvæmdar voru í júní og ágúst sögð­ust treysta inn­lendum fjöl­miðlum til að miðla áreið­an­legum upp­lýs­ingum um kór­ónu­veiruna og sjúk­dóm­inn COVID-19, en í könnun sem Reuters Institute við Oxford-háskóla í Bret­landi gerði mæld­ist traust til fjöl­miðla 60 pró­sent í Bret­landi, 52 pró­sent í Banda­ríkj­unum, 58 pró­sent í Þýska­landi, 51 pró­sent á Spáni, 67 pró­sent í Suður-Kóreu og 63 pró­sent í Argent­ínu.

Íslend­ingar telja sig líka vel upp­lýsta um veiruna og sjúk­dóm­inn sem hún veldur, en um og yfir 80 pró­sent sögð­ust telja sig vel upp­lýsta í könn­unum Maskínu, en í sam­an­burði sögð­ust 58 pró­sent Banda­ríkja­manna vera vel upp­lýstir um kór­ónu­veiruna í könnum sem Gallup fram­kvæmdi þar í landi. Þó ber að hafa í huga við þann sam­an­burð að banda­ríska könn­unin var gerð í apríl og þá var veiran búin að vera á flugi í styttri tíma en þegar þetta var kannað hér á landi.

Gríðarlegt traust til þríeykisins og annarra viðbragðsaðila

Traust til sér­fróðra aðila, þrí­eyk­is­ins og inn­lendra við­bragðs­að­ila gnæfir þó yfir allt í könn­unum Maskínu, en á bil­inu 94-96 pró­sent aðspurðra sögð­ust treysta Þórólfi sótt­varna­lækni, Ölmu land­lækni og Víði yfir­lög­reglu­þjóni og öðrum inn­lendum við­bragðs­að­ilum eins og almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, emb­ætti land­læknis og Land­spít­ala fyrir miðlun áreið­an­legra upp­lýs­inga um veiruna.

Um 80 pró­sent sögð­ust treysta upp­lýs­ingum frá alþjóða­stofn­unum á borð við Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ina (WHO), rúm 77 pró­sent sögð­ust treysta Vís­inda­vef Háskóla Íslands (sem hefur einmitt verið í sér­stöku sam­starfi við upp­lýs­inga­óreiðu­hóp Þjóðar­ör­ygg­is­ráðs um miðlun upp­lýs­inga um COVID-19) á meðan að á bil­inu 64-68 pró­sent segja treysta rík­is­stjórn­inni fyrir miðlun áreið­an­legra upp­lýs­inga um veiruna.

[adspot]

Lítill hluti sagð­ist treysta ein­staka stjórn­mála­mönnum til að miðla áreið­an­legum upp­lýs­ingum um veiruna, eða 15,5 pró­sent í könnun Maskínu í júní og tæp 20 pró­sent í könn­un­inni í ágúst, en þá var meira um smit í sam­fé­lag­inu. Enn færri sögð­ust treysta sam­fé­lags­miðlum fyrir því að veita sér áreið­an­legar upp­lýs­ingar um veiruna, eða á milli 9 og 10 pró­sent. Svo treysti nán­ast ekki nokkur maður ókunn­ugu fólki, eða á bil­inu 2-4 pró­sent.

Minnihluti upplifir að hafa séð mikið af rangindum um veiruna

Rösklega fjórð­ungur aðspurðra í könn­unum Maskínu sagð­ist hafa séð mjög mikið eða fremur mikið magn rangra upp­lýs­inga um veiruna þegar spurt var um það í könn­unum tveimur.

Flestir, eða sam­tals um og yfir 60 pró­sent aðspurðra, sögð­ust hafa séð fremur lítið eða „í með­al­lagi“ mikið magn af röngum upp­lýs­ingum, en ein­ungis 6-9 pró­sent sögð­ust hafa séð mjög lítið eða ekk­ert af röngum eða mis­vísandi upp­lýs­ingum um veiruna.

Í íslensku könn­un­unum mæld­ist traust á sam­fé­lags­miðlum til að miðla áreið­an­legum upp­lýs­ingum um kór­ónu­veiruna og sjúk­dóm­inn lítið sem áður segir og miðað við nokkur erlend ríki sem tóku þátt í könnun Reuters Institute er það lítið til hér á landi. Sú könnun var gerð í mars og apríl og sögð­ust þá 14 pró­sent svar­enda í Bret­landi treysta sam­fé­lags­miðlum, 25 pró­sent í Banda­ríkj­unum, 15 pró­sent í Þýska­landi, 23 pró­sent á Spáni, 40 pró­sent í Suður-Kóreu og 40 pró­sent í Argent­ínu.

„Miðað við þessar tölur virð­ast íslenskir svar­endur treysta inn­lendum fjöl­miðlum vel til að miðla upp­lýs­ingum um kór­ónu­veiruna og sjúk­dóm­inn COVID-19 en treysta sam­fé­lags­miðlum mun síður til þess og eru töl­urnar um traust til sam­fé­lags­miðla lægri á Íslandi en í ríkj­unum sex sem tóku þátt í könnun Reuters Institute við Oxford-háskóla,“ segir í skýrslu vinnu­hóps­ins.

Beina ábendingum til stjórnvalda

Vinnu­hóp­ur­inn, sem skip­aður var í apríl, kemur með ábend­ingar til stjórn­valda í skýrslu sinni og lúta þær meðal ann­ars að mik­il­vægi tím­an­legrar og áreið­an­legrar upp­lýs­inga­miðl­unar af hálfa stjórn­valda, að starfs­reglur tækni­fyr­ir­tækja sem mið­ast við að sporna gegn upp­lýs­inga­óreiðu nái einnig til starf­semi þeirra hér á landi, að sett verði sam­ræmd stefna um miðla­læsi sem nær til allra hópa sam­fé­lags­ins, að byggja þurfi upp þekk­ingu og auka sam­starf um grein­ingu á mis­notk­un­ar­tækni í sam­fé­lags- eða fjöl­miðla­um­ræðu og að gerðar verði reglu­legar kann­anir af því tagi sem vinnu­hóp­ur­inn stóð fyrir á meðan COVID-19 far­ald­ur­inn stendur yfir.

Vinnu­hóp­inn skip­uðu þau: Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefndar, Kjartan Hreinn Njálsson frá emb­ætti land­læknis, Jón Gunnar Ólafsson, doktor í fjöl­miðla­fræði, Anna Lísa Björns­dóttir sam­skipta­miðla­fræð­ingur, Guðrún Hálf­dán­ar­dóttir blaða­maður, Þorgeir Ólafsson frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu, Sigurður Emil Pálsson frá sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu, María Mjöll Jóns­dóttir og Ólöf Hrefna Krist­jáns­dóttir frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Þórunn J. Hafstein, rit­ari þjóðar­ör­ygg­is­ráðs, leiddi starf hóps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár