Kortleggja umfang upplýsingaóreiðu hér á landi í tengslum við COVID-19

Þjóðar­ör­ygg­is­ráð hefur komið á fót níu manna vinnu­hóp til að kort­leggja birt­ing­ar­myndir og umfang upp­lýs­inga­óreiðu í tengslum við COVID-19 og gera til­lögur um aðgerðir til þess að sporna gegn henni.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er formaður þjóðaröryggisráðsins.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra er for­maður þjóðar­ör­ygg­is­ráðs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Þjóðar­ör­ygg­is­ráð hefur ákveðið að koma á fót vinnu­hóp til að kort­leggja birt­ing­ar­myndir og umfang upp­lýs­inga­óreiðu í tengslum við COVID-19 hér á landi og gera til­lögur um aðgerðir til þess að sporna gegn henni. Þetta kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Í til­kynn­ing­unni segir að íslensk stjórn­völd séu nú í sam­starfi við önnur EES-ríki um að sporna gegn upp­lýs­inga­óreiðu og rang­færslum í tengslum við COVID-19. „Sjaldan hefur verið mik­il­væg­ara að almenn­ingur hafi aðgang að réttum upp­lýs­ingum eins og nú í tengslum við þennan heims­far­aldur sem nú geisar.“

Í vinnu­hópnum eru þau Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefndar, Kjartan Hreinn Njálsson frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu, Jón Gunnar Ólafsson, doktor í fjöl­miðla­fræði, Anna Lísa Björns­dóttir, sam­skipta­miðla­fræð­ingur, Guðrún Hálf­dán­ar­dóttir, blaða­maður, María Mjöll Jóns­dóttir frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, Sigurður Emil Pálsson frá sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu, Þorgeir Ólafsson frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu og Þórunn J. Hafstein, rit­ari þjóðar­ör­ygg­is­ráðs, sem leiðir starf hóps­ins.

„Upplýsingamengun“ tiltölulega nýtt fyrirbæri

[links]Kjarninn fjall­aði um skýrslu sem kom út á vegum Evr­ópu­ráðs í sept­em­ber 2017 en hún gaf góða mynd af svo­kall­aðri upp­lýs­inga­óreiðu þar sem farið var í saumana á sam­fé­lags­hjúpum og berg­máls­her­bergjum. Með til­komu sam­fé­lags­miðla hafa hlut­irnir breyst til muna og sagði í skýrsl­unni að nú værum við að horfa upp á algjör­lega nýtt fyr­ir­bæri sem lýsti sér í flóknum vef ­þar sem menguð skila­boð eru búin til, þeim dreift og þeirra neytt. Þau væru hýst á ótelj­andi vef­þjónum og fram­leidd í feikna­miklu magni.

Í henni kom enn fremur fram að erfitt væri að meta áhrif slíkrar „upp­lýs­inga-meng­unar“ á frétta­efni enda væru sér­fræð­ingar ein­ungis á byrj­un­ar­stigi að skilja hvernig hún virkar. Eftir for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum og Brexit-kosn­ingar í Bret­landi stóð fólk til að mynda á gati enda komu úrslitin mörgum gríð­ar­lega mikið á óvart.

Skýrslu­höf­undar forð­uð­ust að nota orðið fals­fréttir vegna þess að þeir töldu það ekki ná yfir fyr­ir­bærið og sögðu þeir að staðan væri mun flókn­ari en svo. Í öðru lagi hefðu stjórn­mála­menn um allan heim notað orðið til að lýsa fréttum sem ekki eru þeim í hag.

Tilfinningar gegna lykilhlutverki

Gjald­fell­ing orða getur einmitt haft það í för með sér að upp­runa­leg merk­ing breng­list og falskar fréttir verði til um falskar fréttir. Þess vegna er mik­il­vægt að nota orðið ekki um of og skella því á allar upp­lýs­ingar sem koma frá frétta­stofum og miðlum.

Lyk­il­at­riðið, að mati skýrslu­höf­unda, var að skilja hvernig sam­skipti virka á sam­fé­lags­miðlum. Þau væru ekki ein­fald­lega upp­lýs­inga­skipti milli tveggja aðila. „Við verðum að gera okkur grein fyrir því að tjá­skipti hafa lyk­il­hlut­verki að gegna þegar koma á sam­eig­in­legum skoð­unum á fram­færi. Ekki er aðeins um upp­lýs­ingar að ræða heldur drama - „fram­setn­ingu á þeim öflum sem takast á í ver­öld­inni“,“ sagði í skýrsl­unni.

Áhrifa­mesta efnið er það sem spilar á til­finn­ingar fólks, þar sem ýtt er undir kenndir á borð við yfir­burða­til­finn­ingu, reiði og hræðslu. Ef slíkar til­finn­ingar eru til staðar þá deilir fólk frekar efni sín á milli og innan síns hóps. Til­finn­inga­þrungið efni dreif­ist hraðar og betur þar sem læk, deil­ingar og athuga­semdir leika stórt hlut­verk. Þetta ger­ist þrátt fyrir mót­að­gerðir til að sporna við fölskum upp­lýs­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár