Aldrei fleiri talið að ríkisstjórnin sé að gera of lítið í efnahagsmálum vegna COVID-19

Rík­is­stjórnin hefur kynnt fjóra aðgerð­ar­pakka til að mæta efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Skoðun lands­manna á aðgerðum til að mæta þeim áhrifum hefur reglu­lega verið mæld. Aldrei hafa fleiri talið of lítið gert.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur kynnt nokkra efnahagspakka á síðustu mánuðum. Alls telja 42 prósent landsmanna að of lítið sé gert til að mæta efnahagsvandanum sem fylgir kórónuveirufaraldrinum.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur kynnt nokkra efna­hag­s­pakka á síð­ustu mán­uðum. Alls telja 42 pró­sent lands­manna að of lítið sé gert til að mæta efna­hags­vand­anum sem fylgir kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Mynd: Bára Huld Beck

Frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum, skall á Íslandi seint í febr­úar á þessu ári hafa stjórn­völd gripið til marg­hátt­aðra aðgerða til að reyna að fyr­ir­byggja eða bregð­ast við nei­kvæðum efna­hags­legum áhrifum hans.

Gallup hefur reglu­lega mælt skoðun almenn­ings á þeim aðgerðum frá því í byrjun mars. Í fyrstu könn­un­inni, sem gerð var áður en að helstu tak­mark­anir á frelsi til atvinnu, leiks og ferða­laga tóku gildi, töldu um 22 pró­sent lands­manna að stjórn­völd væru að gera of lítið til að bregð­ast við efna­hags­legu stöð­unni. Hægt og rólega breytt­ist sú afstaða og í byrjun apríl, þegar sótt­varn­ar­að­gerðir stjórn­valda hér heima og víða erlendis voru farnar að bíta veru­lega á íslenska efna­hags­kerf­inu, var hlut­fall þeirra sem töldu íslensk stjórn­völd gera of lítið komið upp í tæp­lega 38 pró­sent.

Þegar sú mæl­ing var gerð höfðu stjórn­völd þó kynnt fyrsta efna­hag­s­pakka sinn vegna efna­hags­legra áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Heild­ar­virði hans var sagt vera 230 millj­arðar króna.

Samhliða því að smitum tók að fækka hratt í íslensku sam­fé­lagi í apríl, og að sam­fé­lagið opn­að­ist á ný í maí, og lands­menn ferð­uð­ust inn­lands og nutu meira ein­stak­lings­frelsis en flestar aðrar þjóðir, fækk­aði þeim sem töldu að stjórn­völd væru að gera of lítið. Í lok júní sögðu um 27 pró­sent að þeir teldu svo vera.

[adspot]Und­an­farið, sam­hliða því að stór þriðja bylgja smita hefur skollið á og tak­mark­anir hafa verið hertar veru­lega, hefur skoðun almenn­ings á efna­hags­að­gerðum stjórn­valda breyst. Í könnun sem Gallup gerði í lok sept­em­ber og byrjun októ­ber sögðu 32 pró­sent að þeir væru óánægðir með efna­hags­að­gerðir stjórn­valda og í nýj­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem var gerð 7. til 14. októ­ber, var það hlut­fall komið upp í 42 pró­sent. Greint var frá nið­ur­stöðum þess­ara kann­ana á RÚV í gær­kvöldi.

Það hafa aldrei fleiri verið á þeirri skoðun að rík­is­stjórnin væri að gera of lítið til að fyr­ir­byggja eða bregð­ast við nei­kvæðum efna­hags­legum áhrifum af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og það þarf að fara aftur til byrjun apríl til að sjá jafn stórt stökk í vax­andi óánægju og varð nú á fyrri hluta októ­ber­mán­aðar.

Flestar aðgerðirnar hittu ekki eins og þeir áttu að gera

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur kynnt nokkra „efna­hag­s­pakka“ frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Sá fyrsti var, líkt og áður sagði, kynntur í Hörpu 21. mars. Þar var því haldið fram að pakk­inn væri met­inn á 230 millj­arða króna og þar af áttu um 60 millj­arðar króna að vera bein inn­spýt­ing úr rík­is­sjóði.

„Þetta eru stærstu ein­stöku efna­hags­að­gerðir sög­unnar,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, á blaða­manna­fundi sem hald­inn var vegna þessa.

Um var að ræða tíu aðgerðir sem áttu að tryggja varnir, vernd og við­spyrnu. Hluti þeirra var þess eðlis að langur tími mun líða þangað til að hægt verður að mæla árangur aðgerð­anna. Það á til dæmis við 20 millj­arða kóna fjár­fest­inga­á­tak og aðgerðir til að greiða fyrir inn­flutn­ingi með nið­ur­fell­ingu toll­af­greiðslu­gjalda og frestun á greiðslu á aðflutn­ings­gjöldum. En aðrar aðgerðir áttu að hafa mikil mæl­an­leg áhrif fljótt. Flestar þeirra hafa ekki skilað þeirri árangri sem reiknað var með, líkt og farið var yfir í frétta­skýr­ingu í Kjarn­anum í lok ágúst. Sú sem hefur lukk­ast best er hin svo­kall­aða hluta­bóta­leið.

Mánuði síðar, 21., apríl, voru tíu aðgerðir í við­bótar kynntar til leiks. Heild­ar­kostn­aður við þann aðgerð­ar­pakka átti að vera um 60 millj­arðar króna. Þar skiptu mestu máli aðgerðir fyrir lítil fyr­ir­tæki, bón­us­greiðslur til fram­línu­starfs­manna og sér­tækur styrkur til fjöl­miðla. Auk þess voru í pakk­anum aðgerðir sem er erfitt að mæla eins og er, líkt og jöfnun tekju­skatts, sér­tækur stuðn­ingur við sveit­ar­fé­lög og ýmis­konar fram­lög til meðal ann­ars geð­heil­brigð­is­mála og fjar­þjón­ustu.

Heild­ar­kostn­aður við þennan pakka hefur verið langt frá því sem lagt var upp með.

[adspot]Þann 28. apr­íl var til­­kynnt um að rík­­is­­stjórnin ætl­­aði að veita ákveðnum fyr­ir­tækj­um, sem hefðu orðið fyrir umfangs­­miklu tekju­tapi, eða að minnsta kosti 75 pró­sent, styrki til að eyða ráðn­­ing­­ar­­sam­­böndum þeirra við starfs­­fólk sitt. Þetta hefur oft verið kall­aður þriðji pakk­inn.

Þegar frum­varp um upp­sagn­ar­styrki var lagt fram um miðjan maí var gert ráð fyrir því að bein útgjöld rík­is­sjóðs vegna úrræð­is­ins yrðu 27 millj­arðar króna. Frestur til að sækja um styrk­ina rann út 20. ágúst og enn sem komið er hefur kostn­að­ur­inn verið rúm­lega þriðj­ungur af þeirri upp­hæð.

Nýr 25 milljarða króna pakki

29. sept­em­ber síð­ast­lið­inn kynnti rík­is­stjórnin svo átta aðgerð­ir, nokk­urs konar pakka fjögur, sem hún telur að muni kosta skatt­greið­endur 25 millj­arða króna. Aðgerð­ar­pakk­inn var kynntur til að höggva á þann hnút sem var á vinnu­mark­aði eftir að Sam­tök atvinnu­lífs­ins (SA) boð­uðu atkvæða­greiðslu um upp­sögn Lífs­kjara­samn­ings­ins. SA féll frá áformunum eftir að pakk­inn var kynntur.

[links]Helstu aðgerðir eru þær að trygg­inga­gjald verður lækkað tíma­bundið í eitt ár, til loka árs 2021, um 0,25 pró­sent og er kostn­aður rík­is­sjóðs við þetta metin á fjóra millj­arða króna. Full end­ur­greiðsla á virð­is­auka­skatti undir hatti úrræð­is­ins „Allir vinna“ verður fram­lengt út árið 2021 og er kostn­aður við þá aðgerð metin á átta millj­arða króna.

Þá ætla stjórn­völd að beina frek­ari beinum styrkjum til fyr­ir­tækja sem „orðið fyrir tekju­hruni vegna COVID-19 far­ald­urs­ins“. Gert er ráð fyrir að styrkirnir geti numið um sex millj­örðum króna.

Í síð­ustu viku var greint frá útfærslu styrkj­anna. Fyr­ir­tæki sem eru skylduð til þess að loka dyrum sínum núna í þriðju bylgju far­ald­urs­ins vegna sótt­varna­reglna munu geta sótt um 600 þús­und krónur í lok­un­ar­styrk með hverjum starfs­manni á mán­að­ar­grund­velli. Alls geta styrkirnir numið 120 millj­ónum króna að hámarki á hvert fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár