Mætti styðjast við greiningu Nýja-Sjálands við mat á kostnaði og ávinningi af sóttvörnum

Í minn­is­blaði ferða­mála­ráð­herra sem lagt var fyrir rík­is­stjórn í síð­ustu viku er segir að það sé sam­dóma álit stjórn­sýslu ferða­mála og for­svars­manna grein­ar­innar að ólík­legt sé að ferða­menn komi eftir að tak­mark­anir á landa­mærum voru hertar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Leggja þarf heild­stætt mat á þjóð­hags­legan kostnað og ávinn­ing af mis­jafn­lega ströngum sótt­vörnum, ann­ars vegar á landa­mær­unum og hins vegar inn­an­lands. „Í því sam­bandi þurfi m.a. að huga að sam­spil­inu þarna á milli, þ.e.a.s. hve mikið hertar sótt­varna­að­gerðir á landa­mær­unum dragi úr líkum á að grípa þurfi til harðra aðgerða inn­an­lands. Um sum (en ekki öll) þess­ara atriða mætti t.d. hafa hlið­sjón af grein­ingu sem unnin var á Nýja-Sjálandi.“

Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála- iðn­aðar- og nýsköp­unar, lagði fram á rík­is­stjórn­ar­fundi á þriðju­dag í síð­ustu viku. Kjarninn hefur fengið hluta minn­is­blaðs­ins afhentan en búið er að fjar­lægja upp­lýs­ingar um þriðja aðila sem ekki þótti til­hlýði­legt að birta opin­ber­lega.

Þar segir enn fremur að ljóst sé að fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu og starfs­fólk þeirra verði fyrir einna mestum skaða af þeim nýju ráð­stöf­unum sem gripið hefur verið til á landa­mær­unum, og fela í sér kröfu um að ferða­menn fari í tvö­falda skimum og fimm til sex daga sótt­kví þar á milli, í þágu þess mark­miðs að lág­marka líkur á smitum inn­an­lands. Svara þurfi því hvort huga ætti að sér­tækum mót­væg­is­að­gerðum.

Hagsmunir gætu hlaupið á hundruðum milljarða

Sama dag og greint var frá því frá hertum tak­mörk­unum á landa­mærum Íslands, þann 14. ágúst, greindi Kjarninn frá öðru minn­is­blaði, sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hafði kynnt í rík­is­stjórn þennan sama dag. Þar sagði að frá því um miðjan júní, þegar landa­mærin voru „opnuð“, hefðu um 70 þús­und ferða­menn komið til lands­ins auk um 45 þús­und íslenskra rík­is­borg­ara.

[links]Framlag hvers ferða­manns á hag­kerfið er metið á 100 til 120 þús­und krónur og því var áætlað að þeir ferða­menn sem höfðu heim­sótt Ísland síð­ustu tvo mán­uði á undan hefðu lagt um átta millj­arða króna til efna­hags­lífs­ins á þeim tíma. Til sam­an­burðar gæti útbreiðsla far­ald­urs­ins dregið úr neyslu inn­an­lands um tíu millj­arða króna, líkt og gerð­ist þegar sett var á hart sam­komu­bann hér­lendis í vor.

Í minn­is­blaði Bjarna sagði að „efna­hags­legir hags­munir af því að kom­ast hjá hörðum sótt­varna­að­gerðum geta hlaupið á hund­ruðum millj­arða króna“. Ljóst er þó að minn­is­blað ráð­herr­ans upp­fyllir ekki það skil­yrði að geta kall­ast heild­stætt mat á þjóð­hags­legan kostnað og ávinn­ing af mis­jafn­lega ströngum sótt­vörnum.

„Opnunin“ gagnaðist fyrirtækjum mismunandi

Í minn­is­blað­inu segir að leiða megi líkur að því að losun tak­mark­ana á landa­mærum um miðjan júní, sem oft­ast nær er talað um sem „opnun“ þeirra, hafi gagn­ast ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum mis­jafn­lega vel.

[adspot]Fyrstu vís­bend­ingar sem stjórn­völd hafa séð benda til þess að hún hafi vegið þyngst fyrir flug­fé­lög, gist­ingu og afþr­ey­ingu á lands­byggð­inni ásamt bíla­leigum, en að hún hafi síður gagn­ast ferða­skrif­stofum, hóp­ferða­fyr­ir­tækjum og hót­elum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þar segir að seinni hópur ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­anna, þau sem fengu minnst út úr opn­un­inni í sumar, hafi eygt von um við­skipti í haust og vetur. Sú von hafi mögu­lega brugð­ist nú eftir að ákvörðun stjórn­valda að „loka“ í landa­mær­unum að mestu. Það sé sam­dóma álit stjórn­sýslu ferða­mála og for­svars­manna grein­ar­innar að ólík­legt sé að margir ferða­menn komi til lands­ins á for­sendum hinnar nýju ákvörð­unar.

Möguleikar til viðspyrnu versna

Staðan grafi undan mögu­leikum ferða­þjón­ust­unnar til við­spyrnu þegar aðstæður til sóknar skap­ast á ný. „Bók­un­ar­fyr­ir­vari hefur almennt styst vegna Covid og erlendir ferða­menn hika frekar við að bóka ferðir til Íslands í fram­tíð­inni á meðan óvíst er hvaða tak­mörk­unum þeir muni sæta við kom­una til lands­ins. Til að verja þau verð­mæti sem fel­ast í fram­tíð­ar­tekju­mögu­leikum grein­ar­innar er því talið þýð­ing­ar­mikið að stjórn­völd gefi sem allra fyrst út 1) hvenær standi til að end­ur­skoða sótt­varn­ar­að­gerðir á landa­mær­unum og/eða 2) hvaða við­mið muni þurfa að nást til að óhætt verði talið að slaka á þeim.“

Þá er greint frá því í minn­is­blað­inu að Ferða­mála­stofna hafi ráð­fært sig við sér­fræð­inga um end­ur­greiðslu­skyldu sem hin nýja ákvörðun kunni að valda fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu. „Áfram er unnið að mati á þessu á vett­vangi stjórn­sýsl­unnar. Í fram­haldi af því þarf að meta hvort ákvörð­unin kallar á mögu­legar aðgerðir af hálfu stjórn­valda eða ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár