Síðasti einræðisherra Evrópu heldur velli en mótstaðan eykst

Hinn þaul­setni Alex­ander Lúk­asjenkó var end­ur­kjör­inn for­seti Hvíta-Rúss­lands á sunnu­dag. Fæstir leggja trú á nið­ur­stöður kosn­ing­anna og hefur þeim verið ákaft mót­mælt. Mót­fram­bjóð­andi hans er búin að flýja landið.

Lögreglan hefur barið á mótmælendum í helstu borgum Hvíta-Rússlands frá því að úrslit kosninganna lágu fyrir síðla á sunnudag. Myndin er tekin í Minsk í gær.
Lög­reglan hefur barið á mót­mæl­endum í helstu borgum Hvíta-Rúss­lands frá því að úrslit kosn­ing­anna lágu fyrir síðla á sunnu­dag. Myndin er tekin í Minsk í gær. Mynd: EPA

Alex­ander Lúk­asjenkó, sem oft er kall­aður „síð­asti ein­ræð­is­herra Evrópu“, var enn á ný end­ur­kjör­inn for­seti Hvíta-Rúss­lands um helg­ina, með rúmum 80 pró­sentum atkvæða. Þetta er sam­kvæmt opin­berum nið­ur­stöðum kosn­ing­anna, sem flestir efast um, enda fengu fáir ef nokkrir kosn­inga­eft­ir­lits­menn frá lýð­ræð­is­ríkjum að fylgj­ast með þeim. Lúk­asjenkó hefur verið í emb­ætti allt frá árinu 1994, en það var líka í síð­asta sinn sem þokka­lega frjálsar kosn­ingar fóru fram í land­inu.

Mót­fram­bjóð­andi hans, Svetlana Tsika­novskaja, flúði til Litháen í nótt, eftir að hafa verið hneppt í varð­hald í nokkra klukku­tíma í gær í kjöl­far þess að hún fór til yfir­valda með form­lega kvörtun yfir fram­kvæmd kosn­ing­anna. Hún neitar enn að við­ur­kenna ósigur og telur sig hafa hlotið meiri­hluta atkvæða.[links]

Framboð hennar bar nokkuð brátt að. Eig­in­maður hennar Sergei, sem er vin­sæll blogg­ari, var hand­tek­inn þegar hann hugð­ist sjálfur gefa kost á sér. Börn þeirra eru búin að vera í Litháen und­an­farnar vikur, öryggis þeirra vegna.

Mikil mót­mæli brut­ust út í höf­uð­borg­inni Minsk og fleiri borgum lands­ins eftir kosn­ing­arnar á sunnu­dag­inn, nokkuð sem hefur ekki sést í þau fjöl­mörgu önnur skipti sem grunur hefur verið uppi um að kosn­inga­úr­slitum hefur verið hag­rætt. Stjórn­völd brugð­ust harka­lega við og tak­mörk­uðu til dæmis inter­net­notkun í land­inu til þess að gera mót­mæl­endum erf­ið­ara um vik við að skipu­leggja sig og deila mynd­böndum af ofbeldi vald­stjórn­ar­innar.

[adspot]

Stjórn­ar­and­staðan í land­inu og fram­boð Tsika­novskaju virð­ist hafa átt mun meiri raun­veru­legan hljóm­grunn í land­inu en þau 9,9 pró­sent sem komu upp úr kjör­köss­unum að sögn yfir­valda. „Ég trúi augum mínum, og ég sé að meiri­hlut­inn er með okkur,“ sagði Tsika­novskaja við frétta­menn á sunnu­dags­kvöld.

Lúk­asjenkó hefur vísað þessu alfarið á bug og kallað þá sem mót­mælt hafa á götum úti „kindur“ sem stjórnað sé af utan­að­kom­andi öflum.

Gagnrýni að vestan

Ýmis Evr­ópu­sam­bands­ríki og Banda­ríkin hafa for­dæmt eða lýst yfir áhyggjum af fram­kvæmd kosn­ing­anna á sunnu­dag­inn og það hefur utan­rík­is­ráð­herra Íslands einnig gert.

„Áreitni og ofbeldi gagn­vart fólki sem er að nýta sér grund­vall­ar­mann­rétt­indi sín eru óásætt­an­leg,“ sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son í færslu á Twitter í gær, en þetta voru við­brögð hans við því hvernig lög­regla beitti sér gegn mót­mæl­endum í Minsk og víðar á sunnu­dags­kvöld.

Sem áður segir voru fáum ef nokkrir kosn­inga­eft­ir­lits­menn frá lýð­ræð­is­ríkjum leyft að fylgj­ast með kosn­ing­unum í Hvíta-Rúss­landi, en ein­hverjir slíkir voru hand­teknir af örygg­is­lög­reglu lands­ins á kjör­dag.

Teymi kosn­inga­eft­ir­lits­manna frá Rúss­landi og öðrum fyrr­ver­andi Sov­étlýð­veldum sam­þykkti hins vegar fram­kvæmd­ina og sagð­ist ekki hafa fundið nein merki þess að spurn­inga­merki mætti setja við lög­mæti kosn­ing­anna.

Smá gagnrýni að austan

Þrátt fyrir að Lúk­asjenkó hafi fengið ham­ingju­óskir með end­ur­kjörið frá Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta hafa rúss­neskir fjöl­miðlar þó sumir sett gagn­rýnt fram­kvæmd kosn­ing­anna og fram­göngu Lúk­asjenkó og lög­reglu lands­ins gegn mót­mæl­endum með ein­dregnum hætti.

Steve Ros­en­berg, frétta­rit­ari BBC í Moskvu, vekur athygli á þessu í pistli sínum um skrif rúss­nesku miðl­anna í dag, en pistil hans má heyra má hér að neðan. 

Í rúss­neska dag­blað­inu Novaya Gazeta segir til dæmis í dag að Lúk­asjenkó hefði ekki átt að ger­ast svona gráð­ugur.

Dag­blaðið segir að ef Lúk­asjenkó hefði skipað sínu fólki í kosn­inga­eft­ir­lit­inu að láta sig hafa ein­ungis 55-60 pró­sent atkvæða upp úr kjör­köss­unum í þetta sinn, en ekki 80 pró­sent eins og venju­lega, hefðu Vest­ur­lönd ef til vill getað sætt sig við nið­ur­stöð­una og Tsika­novskaja sömu­leiðis við­ur­kennt hana opin­ber­lega, þrátt fyrir að Hví­trússar hefðu ekki trúað þeim frekar en úrslitum fyrri ára.

Eru breytingar framundan?

En munu mót­mæli og ákúrur frá lýð­ræð­is­ríkjum ein­hverju breyta, í þetta sinn? Sumir Hví­trússar bera þá von í brjósti. Skali mót­mæl­anna er allur annar en áður hefur verið, sagði Yuri Puchila, tæp­lega þrí­tugur íbúi í Minsk í sam­tali við New York Times.

„Ég held að þetta muni ekki fjara út. Fólk mun fara í verk­fall. Ég, til dæmis, ætla ekki að borga skatt­ana mína lengur,“ sagði Puchila við blaðið.

For­dæm­ingu vest­rænna ríkja gætu einnig fylgt ein­hverjar refsi­að­gerðir. Í gær óskaði rík­is­stjórn Póllands, sem á landa­mæri að Hvíta-Rúss­landi, eftir neyð­ar­fundi hjá Evr­ópu­sam­band­inu til þess að ræða hvernig sam­bandið ætti að bregð­ast við sviknum kosn­ingum sunnu­dags­ins og óþörfu ofbeld­inu sem fylgdi í kjöl­farið.

Evr­ópu­sam­bandið setti við­skipta­þving­anir á Hví­trússa árið 2004, en flestum þeirra var aflétt árið 2016, í von um að Lúk­asjenkó myndi draga úr ger­ræð­is­legum til­burðum sínum. Þeir virð­ast þó ekki fara þverr­andi, nema síður sé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár