Ekkert nýtt innanlandssmit – einn sjúklingur enn á gjörgæslu

Ekkert nýtt inn­an­lands­smit af kór­ónu­veirunni greind­ist hér á landi í gær sam­kvæmt þeim tölum sem birtar hafa verið á covid.is. Þrjú virk smit greindust við landa­mærin. 114 manns eru með COVID-19 og í ein­angrun og tveir liggja á sjúkra­húsi.

Fjöldi þeirra sem greinst hefur með virkt smit af kór­ónu­veirunni hér á landi síð­ustu daga og er í eina­grun er enn 114 sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum COVID.is. Þó að ný virk smit hafi greinst síð­ustu daga hefur ekki fjölgað í hópi þeirra sem eru með virk smit þar sem tek­ist hefur að útskrifa hluta þess fólks sem smit­að­ist fyrst í þess­ari annarri bylgju far­ald­urs­ins.

Engin ný til­felli greindust inn­an­lands í gær, en þrjú virk smit greindust við landa­mærin. Í gær voru 938 í sótt­kví en í dag er fjöld­inn kom­inn niður í 839.

Tveir sjúk­lingar eru á sjúkra­húsi með COVID-19. Annar þeirra, maður á fer­tugs­aldri, er á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans og í önd­un­ar­vél. Hinn er á tví­tugs­aldri.

289 sýni voru tekin og greind hjá Land­spít­al­anum í gær og 56 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu sem hóf m.a. skimun í Vest­manna­eyjum um helg­ina þar sem hópsmit kom upp um versl­un­ar­manna­helg­ina. 3.105 sýni voru tekin við landa­mærin og hafa ekki fleiri verið tekin frá því að skimunin hófst um miðjan júní.

[adspot]

Af þeim sem eru með virkt smit eru flestir í ald­urs­hópnum 18-29 ára eða 42. Ellefu á aldr­inum 13-17 ára eru með COVID-19 og eitt barn yngra en tólf ára. Fimm ein­stak­lingar eldri en sex­tíu ára eru með sjúk­dóm­inn.

Frá því að fyrsta smitið var greint hér á landi í lok febr­úar hafa 1.968 greinst með COVID-19. Þó að engin inn­an­lands­smit hafi greinst í gær, að því er fram kemur á covid.is, hefur heild­ar­fjöldi greindra þó hækkað um sex á milli daga.

Tíu hafa lát­ist vegna sjúk­dóms­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár