Icelandair Group býst við að sækja tæpa 3,3 milljarða í uppsagnastyrki frá ríkinu

Samkvæmt upp­gjöri Icelandair Group fyrir annan árs­fjórð­ung ráð­gerir fyr­ir­tækið að sækja um tæp­lega 3,3 millj­arða styrk í rík­is­sjóð til þess að greiða laun starfs­manna á upp­sagn­ar­fresti. Ekki er loku fyrir það skotið að upp­hæðin verði enn hærri.

Icelandair Group býst við því að fyr­ir­tækið muni sækja að minnsta kosti 24 millj­ónir banda­ríkja­dala, jafn­virði tæp­lega 3,3 millj­arða íslenskra króna, í styrki til stjórn­valda vegna greiðslu launa á upp­sagn­ar­fresti starfs­manna. Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins sem birtur var í gær.

Þar segir, á blað­síðu 24, að félög í eigu Icelandair Group vinni nú að því að sækja um styrk­ina sem stjórn­völd kynntu, en að ennþá sé óvíst hversu margir starfs­menn muni verða hluti af umsókn­inni, sem fari meðal ann­ars eftir því hversu marga starfs­menn félagið muni geta end­ur­ráðið áður en upp­sagn­ar­frestur þeirra rennur út í sumar og í haust.[links]

Icelandair reikn­aði þessi ætl­uðu áhrif upp­sagn­ar­styrkja inn sem lækk­aðan kostnað við starfs­manna­hald á öðrum árs­fjórð­ungi, og því er bætt við að við að ekki sé loku fyrir það skotið að félagið sæki um enn hærri upp­sagn­ar­styrki, sem komi þá inn í reikn­ings­hald félags­ins á þriðja árs­fjórð­ungi.

Þegar lögin um upp­sagn­ar­styrk­ina, stuðn­ingi úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti, voru kynnt var gert ráð fyrir að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna frum­varps­ins yrði í heild­ina um 27 millj­arðar króna.

[adspot]

Stuðn­ing­ur­inn nemur að hámarki 85 pró­sent launa starfs­manns á upp­sagn­ar­fresti, og ríkið greiðir ekki nema að hámarki 633 þús­und krónur á mán­uði af launum hvers og eins starfs­manns og styrkir fyr­ir­tæki ein­ungis til að greiða þrjá mán­uði af upp­sagn­ar­fresti, jafn­vel þó starfs­menn hafi lengri upp­sagn­ar­frest.

Fengu rúmar 270 milljónir fyrir að halda úti samgöngum

Icelandair til­tekur einnig að félagið hafi bók­fært tveggja millj­óna banda­ríkja­dala tekjur, jafn­virði 271 m.kr., vegna samn­inga við ríkið um að halda sam­göngu­leiðum til og frá land­inu opnu á meðan að ferða­tak­mark­anir vegna COVID-19 far­ald­urs­ins voru í hámarki.

Ríkið greiddi Icelandair fyrir að fljúga leiðir ákveðnar leiðir til Evrópu og Banda­ríkj­anna, þrátt fyrir að eft­ir­spurn væri lítil sem engin. Einnig fékk Air Iceland Connect greiðslur fyrir að halda úti reglu­legu flugi frá Reykja­vík til Egils­staða og Ísa­fjarðar.

Hlutabótaleiðin ekki í bókum Icelandair

Icelandair Group tekur einnig fram að félagið hafi minnkað starfs­hlut­fall yfir­gnæf­andi meiri­hluta starfs­manna frá lokum mars og fram til loka maí og að á meðan á þeim aðgerðum stóð yfir hafi starfs­menn fengið greiðslur frá Vinnu­mála­stofnun.

Áhrifa þessa er ekki sér­stak­lega getið í reikn­ings­yf­ir­liti Icelandair Group, en fram kom í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar sem gefin var út í lok maí að í mars og apríl hefðu starfs­menn félaga Icelandair Group fengið greidda 1,11 millj­arða króna í hluta­bætur.

Í lok maí gaf Icelandair það út að fyr­ir­tækið væri hætt að nýta hluta­bóta­leið­ina og bauð starfs­fólki þess í stað að koma til starfa í 90 pró­sent starfs­hlut­falli eða í fullt starf með skertum launum.

Inneignarnótur fyrir á tíunda milljarð króna

Ýmsir for­vitni­legir molar eru í upp­gjöri Icelandair um hvernig það er að reka flug­fé­lag þegar það er bein­línis mælst til þess að fólk fljúgi ekki á milli landa og haldi sig helst bara heima. Þannig segir að Icelandair hafi gefið út inn­eignir til við­skipta­vina sinna fyrir 67,2 millj­ónir doll­ara á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sem jafn­gildir um 9,1 millj­arði króna.

Túristi vakti fyrst athygli á þessu fyrr í dag og bendir mið­ill­inn á að Icelandair, rétt eins og öll önnur flug­fé­lög, muni núna á næstu miss­erum þurfa að flytja mik­inn fjölda far­þega sem hafa þegar greitt fyrir flugið sitt en koma ekki inn með neinar við­bót­ar­tekjur. Upphæðin sem Icelandair hefur gefið út í inn­eignir sam­svarar um fjórð­ungi af öllum far­þega­tekjum Icelandair á öðrum árs­fjórð­ungi í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár