Tíu smitast hér á landi síðustu daga

21 ein­stak­lingur er með virkt kór­ón­usmit á land­inu sem þýðir að við­kom­andi eru smit­andi og í ein­angrun. Tíu þeirra smit­uð­ust hér á landi. Sex smit greindust í gær. Sam­skipta­stjóri almanna­varna segir gríð­ar­lega mik­il­vægt að sinna per­sónu­legum sótt­vörnum.

Í gær greindust sex ný virk smit af kór­ónu­veirunni á Íslandi. 21 er því nú með virkt smit, þar af eru tíu inn­an­lands­smit. Allir hinna sýktu eru í ein­angrun og 173 eru komnir í sótt­kví.

Jóhann K. Jóhanns­son, sam­skipta­stjóri almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, segir í sam­tali við Kjarnann að nú sé gríð­ar­lega mik­il­vægt að halda áfram að sinna per­sónu­legum sótt­vörnum. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hafi alltaf varað við því að hóp­sýk­ingar gætu komið upp í kjöl­far til­slak­ana á tak­mörk­unum.

Í gær greindust sex ný virk smit. Þrjú höfðu greinst í fyrra­dag. Jóhann segir smitrakn­ingu að mestu lokið.

Á föstu­dag greind­ist ein­stak­lingur, sem er með íslenska kenni­tölu og því tengsla­net hér á landi, með virkt smit. Sá hafði hins vegar komið til lands­ins á erlendu auð­kenni, þannig hafi hann flokk­ast sem ferða­maður við kom­una og ekki fengið boð um seinni sýna­töku eins og Íslend­ingar og aðrir búsettir hér eiga að fá.

Íslensk erfða­grein­ing er að rað­greina sýnin og í tveimur til­vikum hefur upp­runi smit ekki enn feng­ist stað­festur. Í gær var upp­lýst að ÍE hefði fundið nýtt afbrigði af veirunni í nýj­ustu sýn­unum sem þykir renna stoðum undir að þau hafi borist hingað frá útlöndum.

Handþvottur og sótthreinsun

Almanna­varnir brýna fyrir fólki að halda áfram ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum og er góður hand­þvottur og sótt­hreinsun lyk­il­at­riði í því sam­bandi.

Helstu ein­kenni Covid-19 sýk­ingar minna á venju­lega flensu;

• Hiti

• Hósti

• Bein- og vöðva­verkir

• Þreyta

• Melt­ing­ar­ein­kenni (kvið­verkir,ógleði/upp­köst, nið­ur­gangur) eru ekki mjög áber­andi með COVID-19 en eru þó þekkt.

• Breyt­ingu, eða tapi á bragð- og lykt­ar­skyni er lýst hjá 20–30 pró­sent sjúk­linga.

[links]Sýni ein­stak­lingur ein­kenni eða vakni grunur um smit í nærum­hverfi skal hinn sami halda sig heima, hafa sam­band við sína heilsu­gæslu eða í gegnum net­spjall á heilsu­vera.is og óska eftir sýna­töku. Einnig er hægt að hafa sam­band við Lækna­vakt­ina í síma 1700.

Komi upp smit er smitrakn­ing lyk­il­at­riði til þess að kanna mögu­lega útbreiðslu. Því minna almanna­varnir og land­læknir á mik­il­vægi þess að fólk sæki Rakning C-19 appið í síma sína. Slíkt getur auð­veldað smitrakn­ingu.

Mik­il­vægar upp­lýs­ingar um Covid-19 má finna á vef­síð­unni www.covid.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár