Ísland fer upp um fjögur sæti á milli ára í Regnbogakortinu, úttekt evrópsku deildar Alþjóðasamtaka hinsegin fólks (ILGA-Europe) á stöðu og réttindum hinsegin fólks í ríkjum Evrópu. Ísland er nú í 14. sæti en var í 18. sæti þegar kortið var gefið út á síðasta ári.
Kortið, sem sjá má hér að ofan, sýnir á myndrænan hátt mat samtakanna á lagalegri stöðu og réttindum hinsegin fólks í ríkjum Evrópu eins og þau voru á árinu 2019. Ísland telst, samkvæmt mati samtakanna, vera búið að tryggja hinsegin fólki 54 prósent mannréttindi, sem er yfir bæði meðaltali Evrópusambandsríkja (48 prósent) og Evrópu í heild (38 prósent).
Þó stendur Ísland hinum Norðurlöndunum nokkuð að baki, en þau eru að mati samtakanna búin að tryggja hinsegin fólki á bilinu 63-68 prósent mannréttindi og eru í 4.-10. sæti á listanum. Ísland hækkar þó mest allra Norðurlandanna á milli ára. Miðjarðarhafseyjan Malta trónir á toppi listans.
Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að samþykkt laga um kynrænt sjálfræði, sem staðfesti rétt einstaklinga til að breyta kynskráningu sinni í samræmi við eigin upplifun, hafi þýtt verulegar réttarbætur til handa trans og intersex fólki og að Ísland stefni að því að tryggja enn betur réttindi þessara hópa.[links]
„Starfshópar á vegum forsætisráðuneytisins vinna að tillögum um breytingar á lögum sem nauðsynlegar eru til að tryggja réttindi trans og intersex fólks. Þá er einnig unnið að málefnum barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni, þar á meðal heilbrigðisþjónustu við þau,“ segir í tilkynningunni.
Síðara atriðið er einmitt eitt af þeim atriðum sem ILGA-Europe leggja til að skoðuð verði nánar hérlendis, í því skyni að bæta réttindastöðu hinsegin fólks.
Samtökin leggja þannig til, í skýrslu sinni, að Íslendingar banni allt óþarft inngrip í líkama barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni, sem megi fresta þar til manneskjan geti veitt upplýst samþykki fyrir aðgerðinni og segja miður að réttindi intersex fólks hafi ekki verið varin í samþykktum lögum um kynrænt sjálfræði að þessu leyti.
Í umfjöllun samtakanna um stöðu mála á Íslandi eru bæði tiltekin neikvæð og jákvæð dæmi um stöðu hinsegin fólks sem fram komu í fréttum á síðasta ári.
Meðal annars er rifjað upp þegar ungum samkynhneigðum manni var meinuð innganga á skemmtistaðinn Austur í miðborg Reykjavíkur síðasta sumar og þegar regnbogafánum var flaggað af miklum móð við komu Mike Pence varaforseta Bandaríkjanna hingað til lands.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir