Lagafrumvarp um kynrænt sjálfræði samþykkt

Með sam­þykkt lag­anna er stað­festur með lögum réttur ein­stak­lings til að breyta opin­berri kyn­skrán­ingu sinni í sam­ræmi við eigin upp­lifun og án þess að þurfa að sæta skil­yrðum um sjúk­dóms­grein­ingu og lækn­is­með­ferð.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, lagði frumvarpið fram.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG, lagði frum­varpið fram. Mynd: Bára Huld Beck

Laga­frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra, um kyn­rænt sjálf­ræði var sam­þykkt á Alþingi í dag. Með sam­þykkt lag­anna er stað­festur með lögum réttur ein­stak­lings til að breyta opin­berri kyn­skrán­ingu sinni í sam­ræmi við eigin upp­lifun og án þess að þurfa að sæta skil­yrðum um sjúk­dóms­grein­ingu og lækn­is­með­ferð. Frá þessu er greint á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Lögin kveða á um rétt ein­stak­linga til þess að skil­greina sjálfir kyn sitt og miða þannig að því að tryggja að kyn­vit­und þeirra njóti við­ur­kenn­ingar. Einnig er lög­unum ætlað að standa vörð um rétt ein­stak­linga til lík­am­legrar frið­helgi.

[adspot]

Katrín segir við til­efnið að til þess að bæta rétt­indi fólks í raun og veru þurfi póli­tískt þor og póli­tískan vilja. „Réttindi fólks eru nefni­lega því miður ekki sjálf­sögð þótt árin líði eins og við sjáum þegar við horfum á stöðu mann­rétt­inda á alþjóða­vett­vangi. Nýsam­þykkt lög um kyn­rænt sjálf­ræði fela í sér mik­il­vægar breyt­ingar á rétt­ar­stöðu hinsegin fólks og með sam­þykkt lag­anna skipar Íslands sér í fremstu röð á alþjóða­vísu. Mín von er að með sam­þykkt þess­ara laga muni þörf umræða vakna í sam­fé­lag­inu um það hvað þetta merkir og mik­il­vægi þess að tryggja mann­rétt­indi allra hópa sam­fé­lags­ins.“

Frum­varpið miðar að því, eins og áður segir, að virða og styrkja sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt hvers ein­stak­lings þar sem eigin skiln­ingur á kyn­vit­und er lagður til grund­vallar ákvarð­ana­töku varð­andi opin­bera skrán­ingu, enda séu aðrir ekki betur til þess bærir. Einnig er lög­unum ætlað að standa vörð um rétt ein­stak­linga til lík­am­legrar frið­helgi og verður nú skip­aður starfs­hópur til að tryggja rétt­ar­stöðu barna sem fæð­ast með ódæmi­gerð kynein­kenni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár