Bjarni leggur til frjálsa för fólks milli landa þar sem útbreiðslan er lítil

Bjarni Bene­dikts­son lagði til á fundi leið­toga íhalds­flokka Norður- og Eystra­salts­landa að þau lönd þar sem gögn sýndu að tek­ist hefði að ná tökum á útbreiðslu far­sótt­ar­innar myndu skoða frjáls­ari för rík­is­borg­ara sín á milli.

Bjarni Bendiktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins á fjarfundinum sem Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, stýrði.
Bjarni Bendikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á fjar­fund­inum sem Erna Solberg, for­sæt­is­ráð­herra Noregs, stýrði. Mynd: Af vef Sjálfstæðisflokksins

Viðbrögð við COVID-19 og næstu skref voru rædd á fjar­fundi leið­toga íhalds­flokka Norð­ur­land­anna og Eystra­salts­ríkj­anna í morgun. Öll ríkin hafa gripið til umfangs­mik­illa ráð­staf­ana til að bregð­ast við far­aldr­inum og voru til­slak­anir á þeim aðgerðum til umræðu, segir í til­kynn­ingu um fund­inn á vef Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Á fund­inum lagði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, til að þau lönd þar sem gögn sýndu að tek­ist hefði að ná tökum á útbreiðslu far­sótt­ar­innar myndu skoða frjáls­ari för rík­is­borg­ara sín á milli. Undir það var tekið en jafn­framt und­ir­strikað að þau ríki sem ættu aðild að ESB þyrftu einnig að fjalla um það á þeim vett­vangi.

Stjórn­völd á Norð­ur­lönd­unum og í Eystra­salts­ríkj­unum hafa lagt drög að til­slök­unum á sótt­varn­ar­að­gerðum á næstu vikum, en ekki er um sam­ræmdar aðgerðir að ræða, segir í til­kynn­ing­unni, enda mis­jafnt til hversu víð­tækra tak­mark­ana hefur verið gripið í hverju landi fyrir sig.

Erna Solberg for­sæt­is­ráð­herra Noregs og for­maður Hægri­flokks­ins stýrði fjar­fund­inum. Auk Bjarna og Ernu sátu fund­inn Ulf Kristers­son for­maður Modera­terna og leið­togi stjórn­ar­and­stöð­unnar í Svíþjóð, Søren Pape for­maður danska Íhalds­flokks­ins, Petteri Orpo for­maður Sam­stöðu­flokks Finn­lands (Kokoomus), Helir-Valdor Seeder for­maður eist­neska flokks­ins Isamaa og Edgars Ikstens frá lett­neska flokknum Vien­otība.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár