Stjórnarþingmaður segir kröfur útgerða „til dæmis um fáránlega græðgi“

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, segir að millj­arða­kröfur sjö útgerð­ar­fyr­ir­tækja á hendur rík­inu vegna úthlut­unar á mak­ríl­kvóta séu „for­kast­an­legar og til dæmis um fárán­lega græðgi og óbil­girni.“

Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður VG.
Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, segir millj­arða­kröfur sjö útgerð­ar­fyr­ir­tækja á hendur rík­inu vegna mak­rílút­hlut­unar „for­kast­an­legar og til dæmis um fárán­lega græðgi og óbil­girni“.

Fjallað var um kröf­urnar hér á Kjarn­anum í gær, eftir að upp­lýs­ingar um þær birt­ust á vef Alþingis í svari Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur. [links]

Kjarninn bíður þess enn að fá stefnur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna afhentar, eftir að hafa kært synjun rík­is­lög­manns á aðgengi að þeim til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál og haft betur.

Útgerð­irnar sjö, sem eru að krefja ríkið um 10,2 millj­arða króna auk hæstu mögu­legu vaxta sökum þess að ekki var rétt staðið að úthlutun á mak­ríl­kvóta um ára­bil, vildu ekki að fjöl­miðlar fengju upp­lýs­ingar um kröf­urnar.

Úrskurð­ar­nefndin komst þó að þeirri nið­ur­stöðu í upp­hafi mán­aðar að hags­munir almenn­ings af aðgangi að upp­­lýs­ingum um mála­til­­búnað einka­að­ila á hendur íslenska rík­­inu væru rík­ari en hags­munir sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækj­anna af því að þær færu leynt þar til dómar væru gengnir í mál­unum.

[adspot]

„Þessar kröfur eru for­kast­an­legar og til dæmis um fárán­lega græðgi og óbil­girni. Ágætt er að hafa í huga að dóm­ur­inn, sem kröf­urnar byggja á, fjall­aði ekki um að umrædd úthlutun hefði verið ósann­gjörn, aðeins að hún hefði átt heima í lögum en ekki reglu­gerð,“ skrifar Kolbeinn um málið á Facebook í dag.

Þar ritar þing­mað­ur­inn einnig að „holur hljómur“ sé í umkvört­unum útgerð­anna vegna veiði­gjalda nú og að það þurfi að hljóta „að setj­ast sér­stak­lega yfir upp­sjáv­ará­lagið, skoða hvort það sé nógu hátt.“

„Þessar útgerðir verða dæmdar af verkum sínum, ef þær ætla að halda því til streitu að sæl­ast eftir 10-15 millj­örðum úr rík­is­sjóði (þegar vextir eru taldir með) í eigin vasa, í þeirri stöðu sem við nú erum í þar sem við þurfum hverja krónu til að kom­ast saman í gegnum erfitt efna­hags­á­stand,“ skrifar Kolbeinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár