Dæmi um að fólk smitist aftur af veirunni

Nú, þegar nýja kór­ónu­veiran hefur breiðst út til tæp­lega fimm­tíu landa, er enn margt á huldu um hvernig hún hegðar sér. Um 14% þeirra sem sýkt­ust, náðu heilsu og voru útskrif­aðir af sjúkra­húsum í Kína hafa sýkst aftur.

Maður með andlitsgrímu á hóteli í Austurríki þar sem kona sem smituð er af kórónuveirunni dvelur.
Maður með and­lits­grímu á hót­eli í Aust­ur­ríki þar sem kona sem smituð er af kór­ónu­veirunni dvelur. Mynd: EPA

Nýja kór­ónu­veiran, Covid-19, hefur nú breiðst út til tæp­lega fimm­tíu landa í öllum heims­álfum utan Suð­ur­skauts­lands­ins. Að minnsta kosti 2.708 hafa lát­ist, allir nema 53 á meg­in­landi Kína. Í gær voru fleiri ný til­felli greind utan Kína en innan þess í fyrsta sinn. Yfir 81 þús­und manns hafa sýkst, þar af um 79 þús­und í Kína.

Lang­flestir hafa náð fullum bata en fréttir ber­ast nú frá kín­verskum yfir­völdum að 14% sýktra sem náð hefðu heilsu og verið útskrif­aðir af sjúkra­húsum hafi greinst með veiruna á ný. Sam­bæri­legt dæmi er að finna í Japan. Kona fimm­tugs­aldri sem sýkt­ist og var útskrifuð hefur aftur greinst.

Enn er því margt á huldu um hvernig veiran hagar sér. Aðeins eitt til­vik hefur greinst í Afríku enn sem komið er og eitt í Suður-Ameríku. Um 400 hafa greinst með sýk­ing­una á Ítalíu og þaðan er sýk­ingin talin hafa breiðst út til Þýska­lands og Frakk­lands. Í dag voru svo stað­fest til­vik í Danmörku, Eist­landi og Rúmeníu.

Þar sem um veiru­sýk­ingu er að ræða duga sýkla­lyf ekki til að vinna á henni. Bati stjórn­ast af styrk ónæm­is­kerfis hvers og eins og flestir þeirra sem hafa lát­ist hafa verið með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

Í ráð­legg­ingum til ferða­manna á vef emb­ættis land­læknis kemur fram að sótt­varna­læknir mælir með að ferða­menn sleppi ónauð­syn­legum ferða­lögum til skil­greindra áhættu­svæða þar sem COVID-19 far­aldur er í gangi og sam­fé­lags­smit er talið útbreitt. Hafa beri í huga þau áhrif sem aðgerðir stjórn­valda á þeim svæðum geti haft á ferða­á­ætl­anir og fylgj­ast þurfi vel með fréttum, þar­lendis og á vef emb­ættis land­læknis þar sem skil­grein­ingar á svæðum með við­var­andi smit getu breyst hratt.

Í frétt frá sótt­varn­ar­lækni er það sér­stak­lega tekið fram að ekki sé lagst gegn skíða­ferðum til skíða­svæða í Ölpunum á Norður-Ítalíu. Enn sem komið er hafa engin til­felli verið stað­fest þar.

[links]Ein­stak­lingar, með búsetu á Íslandi, sem hafa verið á skil­greindum áhættu­svæðum og snúa heim eru hvattir til að halda sig heima í 14 daga eftir að þeir hafa yfir­gefið skil­greind áhættu­svæði. Ef þeir fá ein­kenni frá önd­un­ar­færum, sér­stak­lega með hita, skulu þeir hafa sam­band við Lækna­vakt­ina í síma 1700 eða sína heilsu­gæslu sím­leiðis en ekki mæta óboð­aðir á sjúk­linga­mót­tökur.

Scott Morrison, for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, ákvað í gær að lýsa yfir neyð­ar­á­standi þrátt fyrir að Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, hafi ekki enn lýst því yfir að um heims­far­aldur sé að ræða. „Við teljum að hættan á því að heims­far­aldur breið­ist út sé mikið undir okkur komin,“ sagði Morrison. Því hafi hann ákveðið að hefja und­ir­bún­ing að við­brögðum við slíkum far­aldri.

Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna seg­ist ekki telja hættu á mik­illi útbreiðslu þar í landi. Mann­eskja í Kali­forníu sem ekki er vitað til að hafi átt í neinum sam­skiptum við sýkt fólk og hefur ekki komið til landa þar sem sýk­ingin er útbreidd hefur nú greinst með veiruna. Lang­flestir smit­aðra í sem greinst hafa í Banda­ríkj­unum höfðu verið í Wuhan. Sér­fræð­ingar hafa því nokkrar áhyggjur af hinu nýja til­felli í Kali­forníu. „Það þýðir að það eru ein­hver til­felli þarna úti sem ekki eru greind,“ segir William Schaffner, sér­fræð­ingur í veiru­sjúk­dómum, í sam­tali við New York Times.

Upptök nýju kór­ónu­veirunnar eru rakin til mark­aðar í kín­versku borg­inni Wuhan. Fyrstu til­fellin greindust í des­em­ber. Mikil ferða­lög voru á fólki vegna kín­verska nýárs­ins nokkrum vikum síðar sem jók á hraða útbreiðsl­unnar í land­inu. Kínversk stjórn­völd hafa verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að bregð­ast ekki fyrr við, sér­stak­lega í ljósi þess að vís­bend­ingar eru um að þegar í des­em­ber hafi verið vitað að veiran gæti borist manna á milli, ekki aðeins frá dýrum í menn.

Misvísandi skilaboð

Stjórn­völd víða um heim hvetja borg­ar­ana til að halda ró sinni. Bent hefur verið á að í flestum til­vikum eru ein­kenni sýk­ing­ar­innar sam­bæri­leg og þau sem hefð­bundin inflú­ensa veldur. Og að flestir nái fullum bata. Á sama tíma er greint frá umfangs­miklum aðgerðum stjórn­valda í ýmsum löndum: Landa­mærum er lokað og heilu borg­irnar og svæðin sett í sótt­kví. Ákveðið hefur verið að loka öllum skólum í Japan frá 2. mars svo dæmi sé tekið og skóla­stjórn­endur í Bret­landi hafa sumið hverjir tekið ákvarð­anir um lokun upp á sitt eins­dæmi.

Þetta gæti virkað eins og mis­ræmi í þeim skila­boðum sem almenn­ingur fær. „Ég held að rugl­ing­ur­inn sem fólk finnur fyrir skýrist meðal ann­ars af því hvernig við sem ein­stak­lingar metum hættu. Við lítum á hættu með allt öðrum hætti en stjórn­völd gera fyrir heilu löndin,“ segir Hannah Devlin, vís­inda­blaða­maður breska dag­blaðs­ins Guardian.

Hún segir að sem ein­stak­lingar höfum við ákveðna hug­mynd um þá hættu sem við erum til­búin að setja okkur í eða teljum steðja að okkur. Það er per­sónu­legt mat og getur verið mis­mun­andi milli fólks. En stjórn­völd eru ekki að hugsa um meðal mann­inn, „þau eru ekki að hugsa um þig,“ bendir Devlin á. Þau eru að hugsa um sam­fé­lagið í heild, þá sem eru við­kvæm­astir fyrir sýk­ingum, s.s. eldra fólk, börn með astma og óléttar konur.

Stjórn­völd þurfa líka að gera ráð fyrir alvar­leg­ustu stöðu sem upp geti komið. Bresk yfir­völd gáfu til dæmis út spá í vik­unni þar sem sagði að allt að hálf milljón Breta gætu dáið úr veiru­sýk­ing­unni. Þá var miðað við að 80% þjóð­ar­innar myndi smit­ast. Það er hins vegar afar ólík­legt að það ger­ist.

Devlin segir að hættan sé hins vegar sú að þegar almenn­ingur sjái tölur sem þessar verði hann hræddur. Á sama tíma sé hann að fá skila­boð um að halda ró sinni. Þetta geti orðið til þess að traust á yfir­völdum minnkar.

Þetta er til dæmis það sem gerst hefur í Íran. Almenn­ingur telur stjórn­völd vera að draga úr hætt­unni, ekki birta réttar upp­lýs­ingar um smit og svo fram­vegis. Aðstoðar heil­brigð­is­ráð­herr­ann sást ítrekað þurrka svita af enn­inu er hann gaf skýrslu um stöð­una fyrr í vik­unni og sagði að stjórn­völd í Íran hefðu stjórn á útbreiðsl­unni. Daginn eftir var hann kom­inn í sótt­kví, sjálfur smit­aður af veirunni.

Í Bret­landi er fólk ekki að draga tölur sem gefnar eru út í efa en sumir eru samt að upp­lifa að verið sé að gefa mis­vísandi skila­boð. Devlin rifjar upp að Matthew Hancock, heil­brigð­is­ráð­herra, hafi grín­ast með það í vik­unni að hann myndi lík­lega ekki leggja í ferða­lag til Norður-Ítalíu núna. Það stang­ast hins vegar á við almennar ráð­legg­ingar breskra yfir­valda.

„Þegar far­aldur geisar skiptir hegðun fólks öllu máli þegar kemur að útbreiðslu hans,“ segir Devlin. „Það skiptir máli að það fari eftir leið­bein­ingum, láti vita um ein­kenni og fylgir fyr­ir­mælum um að vera í sótt­kví. Því er sam­band yfir­valda og almennra borg­ara gríð­ar­lega mik­il­vægt og að traust ríki þar á milli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár