Konur af erlendum uppruna vinna meira, eru í einhæfari störfum og á lægri launum

Ný skýrsla unnin fyrir félags­mála­ráðu­neytið sýnir að líta þurfi til margra þátta þegar hugað er að því hvar kreppir að varð­andi stöðu kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi.

Margar konur af erlendum uppruna vissi ekki af kvennafrídeginum 2018 og unnu á meðan íslenskar konur tóku þátt.
Margar konur af erlendum upp­runa vissi ekki af kvenna­frídeg­inum 2018 og unnu á meðan íslenskar konur tóku þátt. Mynd: Bára Huld Beck

Ný skýrsla sem unnin var af Háskóla Íslands í sam­starfi við önd­veg­is­verk­efnið Þver­þjóð­leiki og hreyf­an­leiki á Íslandi að beiðni félags­mála­ráðu­neyt­is­ins sýnir að líta þurfi til margra þátta þegar hugað sé að því hvar kreppi að varð­andi stöðu kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi.

Mark­miðið með skýrsl­unni var meðal ann­ars að kort­leggja þá þekk­ingu sem liggur fyrir um stöðu kvenna af erlendum upp­runa og afla eig­ind­legra gagna um helstu hindr­anir sem konur af erlendum upp­runa upp­lifa í íslensku sam­fé­lagi. Skýrslan er hluti af við­brögðum stjórn­valda vegna frá­sagna kvenna ef erlendum upp­runa undir for­merkjum #metoo. Skýrslan var kynnt í gær en hana unnu Unnur Dís Skapta­dóttir og Kristín Lofts­dóttir, pró­fess­orar í mann­fræði við HÍ.

Í skýrsl­unni kemur fram að um mjög fjöl­breyttan hóp sé að ræða en skýrslan sýnir að huga þurfi betur að ákveðnum þáttum til að bæta stöðu kvenna af erlendum upp­runa. Þær mæti ákveðnum hindr­unum gegn því að verða virkir þátt­tak­endur í íslensku sam­fé­lagi, meðal ann­ars varð­andi það að læra íslensku og að fá menntun sína metna. Ólíkir hópar kvenna af erlendum upp­runa verði fyrir for­dómum og þær verði margar hverjar fyrir mis­munun á ýmsum sviðum, svo sem á vinnu­mark­aði og á hús­næð­is­mark­aði.

Vilja tilheyra íslensku samfélagi – erfitt að kynnast Íslendingum

„Ef aðgengi kvenna af erlendum upp­runa að íslensku sam­fé­lagi og mögu­leikar þeirra á þátt­töku eru skoð­aðir sýna við­tölin og fyrri rann­sóknir að konur og karlar af erlendum upp­runa hafa haft áhuga á að til­heyra íslensku sam­fé­lagi og að taka virkan þátt í því. Þetta er í slá­andi mót­sögn við umræðu sem oft má sjá í sam­fé­lag­inu um að fólk af erlendum upp­runa vilji ekki taka þátt og „aðlag­ast“,“ segir í skýrsl­unni. Rýni­hópa­við­tölin og yfir­lit rann­sókna end­ur­spegli að konur af erlendum upp­runa hafi hins vegar oft haft lít­inn aðgang að íslensku sam­fé­lagi og að erfitt hafi verið fyrir þær að kynn­ast inn­lendu fólki.

Þá kemur fram að rann­sóknir sýni að þetta sé mik­il­vægur þáttur í því að geta orðið hluti af sam­fé­lag­inu og í almennri vellíðan. Ákveðnir hópar kvenna af erlendum upp­runa hafi til dæmis oft ekki haft tengsla­net sem hefðu getað nýst þeim til að bæta stöðu sína á vinnu­mark­aði og getað verið mik­il­væg fyrri almenna vald­efl­ingu og aðra þátt­töku í íslensku sam­fé­lagi. Einnig hafi konur af erlendum upp­runa sýnt áhuga á að læra íslensku en nám­skeiðin hafi verið mis­góð og ekki alltaf aðgengi­leg.

Mismikil íslenskukunnátta hindrar þátttöku kvenna í samfélaginu

„Rann­sóknir, sem ná yfir tölu­verðan tíma, sýna að ýmsar hindr­anir hafa verið gegn því að fólk læri íslensku. Þrátt fyrir að þekk­ing hafi verið til staðar á því í hverju þessar hindr­anir fel­ast virð­ast þær hafa haldið áfram, eins og sjá má af rýni­hópa­við­tölum og nýj­ustu rann­sóknum í tengslum við aðgang fólks af erlendum upp­runa að íslensku­nám­skeiðum og íslensku mál­um­hverfi. Í rýni­hópum kom jafn­framt fram hvernig mis­mikil íslensku­kunn­átta hindr­aði oft þátt­töku erlendra kvenna í íslensku sam­fé­lagi og þá sér­stak­lega á vinnu­mark­aði,“ segir í skýrsl­unni.

Einnig hafi margar konur af erlendum upp­runa upp­lifað að þátt­taka þeirra í íslensku sam­fé­lagi tæki oft mið af því að þær væru útlend­ingar eða inn­flytj­endur, til dæmis varð­andi marg­vís­lega við­burði þar sem þeim hafi verið boðið fyrst og fremst á þeim for­sendum.

Erfiðara að ná jafnvægi milli atvinnu og einkalífs

Konur af erlendum upp­runa hafa að stærstum hluta flutt til Íslands vegna vinnu og verið virkar á íslenskum vinnu­mark­aði, eins og tölu­leg gögn skýrsl­unnar end­ur­spegla vel, sam­kvæmt skýrslu­höf­undum. Þær hafi tekið þátt í mjög kyn­skiptum vinnu­mark­aði og unnið langan vinnu­dag, oft í ein­hæfum störfum á lágum launum. Vís­bend­ingar séu um að þær hafi frekar unnið í vakta­vinnu en inn­lendar konur.

„Ljóst er af bæði fyr­ir­liggj­andi gögnum frá Hagstofu Íslands og nýlegum rann­sóknum að þær hafa að jafn­aði unnið störf sem eru ólík störfum inn­lendra kvenna, sem end­ur­speglar vinnu­markað sem er ekki bara kynj­aður heldur einnig lag­skiptur eftir upp­runa. Töluleg gögn gefa einnig til kynna að heild­ar­vinnu­tími kvenna af erlendum upp­runa hafi verið lengri og átt sér stað á óhefð­bundn­ari tímum en hjá inn­lendum konum. Út frá þessum nið­ur­stöðum má álykta að erf­ið­ara hafi verið að ná jafn­vægi milli atvinnu og einka­lífs hjá konum af erlendum upp­runa en hjá inn­lendum konum,“ segir í skýrsl­unni.

Nýta síður menntun sína en karlar

Þá kemur jafn­framt fram að konur af erlendum upp­runa hafi síður nýtt menntun sína í störfum á Íslandi en karlar af erlendum upp­runa og inn­lendir ein­stak­lingar. Rann­sókn­irnar sem kynntar voru og umræður í rýni­hópum hafi sýnt að jafn­vel þær konur sem voru í störfum þar sem þær gátu nýtt sér­þekk­ingu sína upp­lifðu oft nei­kvæð við­horf sem höfðu meðal ann­ars áhrif á fram­gang þeirra í starfi.

Það hve vinnu­tengdir flutn­ingar hafa verið stór hluti flutn­inga fólks til Íslands og hin bága staða kvenna af erlendum upp­runa á vinnu­mark­aði und­ir­striki mik­il­vægi þess að yfir­völd og verka­lýðs­fé­lög hugi sér­stak­lega að stöðu þess­ara kvenna á vinnu­mark­aði. Í öllum þremur rýni­hóp­unum kom fram að mat á námi hafi einnig verið stór þrösk­uldur í vegi fyrir þátt­töku margra kvenna af erlendum upp­runa á vinnu­mark­aði.

Þarf að beina sjónum að kerfinu á Íslandi

Við­mæl­endur töl­uðu um að þær konur sem væru í ver­stri stöðu hefðu ekki menntun og töl­uðu hvorki ensku né íslensku. Bent var á að til að bæta úr þessu væri ekki nóg að beina sjónum að kon­unum sjálfum heldur að kerf­inu á Íslandi og leita leiða til að breyta því til að koma til móts við þennan hóp. Einnig var bent á skort á fólki með inn­flytj­enda­bak­grunn í ólíkum störfum sem fyr­ir­myndir fyrir yngra fólk.

Nefnt var mik­il­vægi þess að gefa erlendum konum fleiri tæki­færi á vinnu­mark­aði og að það skorti ef til vill hug­rekki hjá atvinnu­rek­endum til að ráða konur af erlendum upp­runa og gefa þeim tæki­færi þrátt fyrir að þær töl­uðu með hreim.

Horfast þarf í augu við fordóma sem hluta af íslensku samfélagi

„Rann­sóknir sem snúa að for­dómum og nið­ur­stöður við­tals­hlut­ans varpa ljósi á það hversu vara­samt getur þó verið að horfa ein­göngu á áskor­anir eða hindr­anir sem konur af erlendum upp­runa mæta í sam­fé­lag­inu. Fræði­legar rann­sóknir hafa beint sjónum að for­dómum sem við­gang­ast í íslensku sam­fé­lagi. Þær rann­sóknir, svo og erlendar rann­sóknir, sýna að oft eru til staðar stað­al­myndir af konum af erlendum upp­runa sem fórn­ar­lömbum. Horfast þarf í augu við for­dóma sem hluta af íslensku sam­fé­lagi og að þeir bein­ast að konum af erlendum upp­runa og inn­flytj­endum almennt,“ segir í skýrsl­unni

Mikilvægt að rannsaka nánar stöðu þeirra kvenna sem beittar eru kynbundnu ofbeldi

Enn fremur kemur fram að við­kvæm staða kvenna sem hafa komið frá löndum utan Evr­ópu­sam­bands­ins og Evrópska efna­hags­svæð­is­ins geti orsakast af því hve háðar þær hafa verið eig­in­manni varð­andi dval­ar­leyfi á Íslandi. Vegna tengsla­leysis hafi þær oft og tíðum verið í erf­iðri stöðu þegar um ofbeldi er að ræða af hendi eig­in­manns. Rann­sóknir sýni að þær hafa oft ekki verið kunn­ugar þeim úrræðum sem hafa staðið þeim til boða. Mik­il­vægt sé að rann­saka nánar stöðu þeirra kvenna sem beittar eru kyn­bundnu ofbeldi.

„Skýrslan sýnir að konur af erlendum upp­runa hafa ekki aðeins orðið fyrir mis­munun á vinnu­mark­aði heldur einnig varð­andi aðgang að hús­næði. Nýleg rann­sókn á stöðu inn­flytj­enda á leigu­mark­aði og gögn Hagstofu Íslands varpa ljósi á jað­ar­stöðu margra kvenna af erlendum upp­runa á hús­næð­is­mark­aði. Gögnin sýna að nokkur hluti kvenna af erlendum upp­runa hefur upp­lifað óör­yggi í tengslum við búsetu, og gefa jafn­framt vís­bend­ingar um ófull­nægj­andi hús­næði og háan hús­næð­is­kostnað. Eig­ind­lega rann­sóknin sem sagt var frá end­ur­speglar að konur hafa mætt fjöl­þættum hindr­unum á leigu­mark­aði og að margar þeirra hafa upp­lifað að aðgengi að upp­lýs­ingum hafi verið af skornum skammti.

[links]Skýrslan sýnir að þó svo að unnið hafi verið að ýmsum verk­efnum sem snúa að konum af erlendum upp­runa sem verða fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti og ofbeldi skortir nokkuð á rann­sóknir á þessu sviði. Rann­sóknir sem hafa verið gerðar benda til þess að veik staða ákveð­ins hóps kvenna af erlendum upp­runa á vinnu­mark­aði, vegna tengsla­leysis og þess hve háðar sumar þeirra hafa verið eig­in­manni, hafi getað ýtt undir veika stöðu þeirra gagn­vart kyn­ferð­is­legu áreiti (og ofbeldi),“ segir í skýrsl­unni.

Einnig sé ljóst að full ástæða er til að hafa áhyggjur af marg­þættu ofbeldi í garð ákveð­inna hópa kvenna af erlendum upp­runa þar sem taka þarf til­lit til þeirra sér­stak­lega, meðal ann­ars vegna vönt­unar á tengsla­neti.

Fjölga þarf jákvæðum fyrirmyndum og auka sýnileika

Í rýni­hópum og við­tölum kom á marg­vís­legan hátt fram, sam­kvæmt skýrslu­höf­undum, áhersla á fjöl­breyti­leika kvenna af erlendum upp­runa. Þær ættu í raun ekk­ert annað sam­eig­in­legt en að vera af erlendum upp­runa og því mik­il­vægt að taka til­lit til fjöl­breyti­leika og ólíkra þarfa og hags­muna. Jafn­framt hafi komið fram sú sýn að marg­breyti­legur styrk­leiki kvenna af erlendum upp­runa hefði ekki verið nægi­lega vel nýttur. Það væri ekki ein­göngu slæmt þeirra vegna heldur einnig fyrir sam­fé­lagið í heild. Því tengt hafi einnig verið talað um mik­il­vægi þess að ræða meira um styrk­leika og atbeina kvenna af erlendum upp­runa og ein­blína ekki ein­göngu á vanda­mál. Fjölga þyrfti jákvæðum fyr­ir­myndum og auka sýni­leika.

„Vegna þess hver fjöl­breyti­legur hóp­ur­inn var snúa nið­ur­stöður skýrsl­unnar einmitt að því hversu erfitt er að alhæfa um þennan hóp. Yfirlit yfir stöðu þekk­ingar og við­tals­hlut­inn end­ur­spegla þetta, sem und­ir­strikar mik­il­vægi þess að skil­greina til hvaða hópa er reynt að ná í ákveð­inni stefnu­mótun og að í stefnu­mótun í ólíkum mála­flokkum sé sér­stak­lega litið til áhrifa á konur af erlendum upp­runa. Hér er mik­il­vægt að ítreka að konur af erlendum upp­runa er regn­hlíf­ar­heiti yfir konur sem eiga ekk­ert annað sam­eig­in­legt en að hafa flust til Íslands en vera fæddar í öðru landi. Þetta þýðir ekki að þær hafi enga sam­eig­in­lega reynslu en of mikil áhersla á sam­eig­in­lega þætti eykur hætt­una á að sér­tæk­ari þættir verði ósýni­legir, svo og fjöl­breytni hópa inn­byrðis, svo sem vegna trúar, ólíkrar inn­flytj­enda­stöðu, kyn­hneigðar og ald­urs,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár