Alls áttu lífeyrissjóðir landsins 4.959 milljarða króna í lok árs 2019. Eignir þeirra jukust um 59 milljarða króna í jólamánuðinum og að óbreyttu má búast við því að þær hafi í fyrsta sinn í sögunni farið yfir fimm þúsund milljarða króna í janúar síðastliðnum.
Alls hækkaði virði eigna þeirra um 714 milljarða króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýjum hagtölum Seðlabanka Íslands um lífeyrissjóðakerfið sem birtar voru nýverið.
Það er mun meiri hækkun í krónum talið innan árs en nokkru sinni hefur átt sér stað á eignasafni alls lífeyrissjóðakerfisins áður. Á árinu 2017, sem var fyrra metárið, jukust eignir sjóðanna um 403 milljarða króna og 2018 jukust eignir þeirra um 302 milljónir króna. Sú hækkun sem varð á eignasafni þeirra í fyrra er meiri en samanlögð hækkun á eignum lífeyrissjóðanna á árunum 2017 og 2018.
Vert er að taka fram að ekki er einungis um hækkun vegna ávöxtunar að ræða heldur aukast inngreiðslur einnig ár frá ári vegna fjölgunar í hópi greiðenda og hærri iðgjaldsgreiðslna.
[adspot]Hlutfallslega er hækkunin sem átti sér stað í fyrra þó einnig með því mesta sem sést hefur innan árs. Alls jukust eignirnar um 16,8 prósent frá byrjun árs 2019 og til síðustu áramóta. Það er mesta hlutfallslega aukning sem orðið hefur á eignasafninu innan eins árs eftir bankahrun.
Mesta hlutfallslega hækkun innan árs á síðari árum var á árinu 2006, í miðju fyrirhruns góðærinu, þegar eignasafnið hækkaði um 23,3 prósent innan árs.
Eiga íslensk hlutabréf fyrir 689 milljarða króna
Stíf fjármagnshöft sem sett voru síðla árs 2008 gerðu lífeyrissjóðunum erfitt fyrir í fjárfestingum og þeir höfðu ekki marga aðra kosti en að binda þá peninga sem streymdu frá sífellt fleiri greiðendum í þeim innlendu fjárfestingum sem buðust. Sjóðirnir keyptu skuldabréf af miklum móð og eignuðust þar með stóran bita í skuldum bæði opinbera og einkageirans. Alls eiga þeir nú tæplega tvö þúsund milljarða króna í innlendum markaðsskuldabréfum og víxlum. Það þýðir að þeir eiga um 75 prósent allra slíkra hérlendis.
Til viðbótar hafa lífeyrissjóðirnir, sérstaklega á allra síðustu árum, verið leiðandi á íbúðalánamarkaði og þar af leiðandi tekið sér stöðu sem stórir beinir lántakendur íslenskra heimila. Það hafa þeir gert með því að bjóða upp á miklu betri vaxtakjör en bankar og fyrir vikið hefur hlutfall skulda heimila við lífeyrissjóði farið úr tíu prósentum í yfir 20 prósent frá árinu 2016.
[adspot]Lífeyrissjóðirnir eiga auk þess, beint og óbeint, um helming allra skráðra hlutabréfa á Íslandi en virði þeirra í lok síðasta árs var 689 milljarðar króna. Íslensku hlutabréfin gáfu vel af sér á síðasta ári en virði þess eignasafns lífeyrissjóðakerfisins hækkaði um 26 prósent, eða 142 milljarða krónaí fyrra. Þar skipti mestu máli mikil hækkun á hlutabréfum í Marel, langverðmætasta félagsins í íslensku kauphöllinni. Hlutabréf í Marel hækkuðu um 66 prósent á síðasta ári, en margir lífeyrissjóðir eru á meðal stærstu hluthafa félagsins.
Erlendu eignirnar uxu hratt í fyrra
Alls eru 70 prósent eigna lífeyrissjóðanna innanlands. Frá því að fjármagnshöftum var lyft snemma árs 2017 hafa þeir þó í auknum mæli beint sjónum sínum að fjárfestingum utan landsteinanna, bæði til að auka áhættudreifingu sína og til að komast í fjölbreyttari fjárfestingar en þeim býðst á Íslandi. Hlutfall innlendra eigna lífeyrissjóðakerfisins var á þeim tíma 77 prósent og hefur því hlutfallslega dregist verulega saman, þrátt fyrir góða ávöxtun innlendra hlutabréfa í fyrra.
Í apríl 2017, í kjölfar þess að höftunum var lyft, voru erlendar eignir kerfisins 786 milljarðar króna. Í dag eru þær tæplega tvisvar sinnum meiri, eða 1.488 milljarðar króna. Í fyrra hækkuðu erlendu eignirnar um 399 milljarða króna og ljóst að þar er uppistaðan í þeirri eignaraukningu sem varð til í lífeyrissjóðum landsmanna á síðasta ári.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir