Össur fékk fyrirspurn um veru Íslands á gráa listanum í miðjum viðræðum um fjármögnun

For­stjóri Össurar segir það mjög alvar­legt að Ísland sé á gráum lista sam­taka sem hafi eft­ir­lit með pen­inga­þvætt­is­vörnum. Það hafi ekki áhrif á fjár­mögnun fyr­ir­tæk­is­ins sem hann stýrir vegna þess að það fjár­magni sig í gegnum erlend dótt­ur­fé­lög.

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.
Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Össurar. Mynd: Össur

Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Össurar, segir að fyr­ir­tækið hafi fengið fyr­ir­spurn um veru Íslands á gráum lista alþjóð­legu sam­tak­anna Financial Action Task Force (FATF) þegar það var í við­ræðum um fjár­mögnun nýverið. Vera Íslands á list­anum hafi þó ekki áhrif á starf­semi eða fjár­mögnun Össurar þar sem að hún fari fram í gegnum erlend dótt­ur­fé­lög. Það væri hins vegar mjög alvar­legt mál að Ísland sé á lista sem þessum.

[links]Jón var á meðal þátt­tak­enda í pall­borðsum­ræðum á morg­un­fundi Lands­bank­ans í gær­morgun vegna birt­ingar á árlegri hag­spá bank­ans. Þar ræddi hann meðal ann­ars um hvað vaxtaum­hverfi í heim­inum og hvað vextir væru lágir. Össur væri að semja um kjör sem fyr­ir­tækið hefði aldrei séð áður og sagði að það gæti vart verið auð­velt að reka banka­kerfi við ástæður sem þessar. „Ég hef oft bent á þetta í ræðu og riti, þessa mis­munun sem er vart verj­andi. Að þau fyr­ir­tæki sem geta fjár­magnað sig erlendis njóti betri kjara en þau sem þurfa að fjár­magna sig á Íslandi.“

Það bæt­ist við að ef vera Íslands á gráa list­anum hafi áhrif á starf­semi fyr­ir­tækja, séu þau áhrif líka bundin við þau fyr­ir­tæki sem geti ekki fjár­magnað sig alþjóð­lega. Þannig verði mis­mun­unin enn meiri.

Össur var stofnað á Íslandi árið 1971 og höf­uð­stöðvar þess eru á Íslandi. Fyr­ir­tækið er hins vegar skráð í dönsku kaup­höll­ina og bréf þess voru end­an­lega tekin úr við­skiptum í þeirri íslensku í des­em­ber 2017. [adspot]Hjá Össuri starfa um þrjú þús­und manns í alls 25 löndum en Össur er með starfs­stöðvar í Banda­ríkj­unum, Kanada, Hollandi, Bret­landi, Frakk­landi, Svíþjóð, Suður-Afríku, Brasilíu, Ástralíu, Suður-Kóreu og Kína og að auki með umfangs­mikið net dreif­ing­ar­að­ila í öðrum löndum.

Gerð athugasemd við 51 atriði

Í apríl 2018 skil­aði FATF, alþjóð­leg sam­tök sem hafa það hlut­verk að móta aðgerðir til að hindra að fjár­mála­kerfið sé mis­notað í þeim til­gangi að koma illa fengnu fé aftur í umferð, skýrslu um Ísland. Með því að ger­ast aðili að sam­tök­unum þá skuld­batt Ísland sig til að und­ir­gang­ast og inn­leiða þau skil­yrði sem sam­tökin telja að þurfi að upp­fyll­ast.

Í skýrslu FATF fékk pen­inga­þvætt­is­eft­ir­lit Íslend­inga fall­ein­kunn. Alls var gerð athuga­semd við 51 atriði í laga- og reglu­gerð­ar­um­hverfi Íslands og því hvernig við fram­fylgjum eft­ir­liti með pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Á meðal þess sem þar kom fram var að íslensk stjórn­völd litu ekki á rann­sóknir á pen­inga­þvætti sem for­gangs­mál. Þeir litlu fjár­munir sem settir voru í að koma upp um, rann­saka og sak­sækja pen­inga­þvætti voru þar lyk­il­at­riði. Afleið­ingin var meðal ann­ars sú að tak­mark­aðar skrán­ingar höfðu verið á grun­sam­legum til­færslum á fé utan þess sem stóru við­skipta­bank­arnir og hand­fylli ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja fram­kvæma. Þá skorti einnig á að að upp­lýs­ingum um hreyf­ingar á fé og eignum væri deilt með við­eig­andi stofn­unum í öðrum löndum.

Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­legar, og Ísland færi á jafn­vel á lista FATF yfir ósam­vinnu­þýð ríki myndi það, að mati inn­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­legan hnekki.

Íslenska ríkið brást við með alls­herj­ar­átaki. Ný heild­ar­lög um varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka voru sam­þykkt og fjöldi ann­arra laga og reglu­gerða voru upp­færð. Þá voru auknir fjár­munir settir í manna­ráðn­ingar og kaup á kerfum til að bæta það sem FATF hafði sett út á. En það dugði ekki til.

Sett á gráa listann

Þann 18. októ­ber síð­ast­lið­inn var greint frá því að Ísland hefði verið sett á gráan lista FATF og bætt­ist á list­ann ásamt Mongólíu og Simbabve. Það er ekki jafn slæmt og að vera sett á svartan lista sam­tak­anna, lista yfir ósam­vinnu­þýð ríki, en getur samt sem áður haft marg­háttuð áhrif á starf­semi íslenskra fyr­ir­tækja.

[adspot]Samkvæmt grein­ar­gerð sem fylgdi frum­varpi frá utan­rík­is­ráðu­neyti, vegna einna af þeim fjöl­mörgu laga­breyt­ingum sem þurfti að ráð­ast í vegna athuga­semda FATF, kom fram að afleið­ing­arnar gætu meðal ann­ars verið að við­­skipti við íslenska aðila sæti auk­inni áreið­an­­leika­könn­un, gerðar séu strang­­ari kröfur um hvers konar fjár­­­mála­­starf­­semi, stofnun úti­­­búa, dótt­­ur­­fé­laga og umboðs­­skrif­­stofa og jafn­­vel útgáfu aðvar­ana um að við­­skipti við aðila þess­­ara ríkja geti falið í sér hættu á pen­inga­þvætti eða fjár­­­mögnun hryðju­verka. Dæmi séu auk þess um að erlend fyr­ir­tæki og fjár­­­mála­­stofn­­anir hafi frekar kosið að slíta við­­skipta­­sam­­böndum við við­kom­andi ríki, þar á meðal milli­­­banka­við­­skipt­um, í stað þess að fram­­kvæma aukna áreið­an­­leika­könnun. „Það getur því haft veru­­lega nei­­kvæð áhrif á fjár­­­mála­­kerfið í heild sinni og trú­verð­ug­­leika Íslands á alþjóða­vett­vangi ef ekki er brugð­ist við til­­­mælum FATF fljótt og örugg­­lega.“

Eftir að til­kynnt var um að Ísland væri á list­anum hafa ráða­menn hins vegar talað niður afleið­ing­arnar. Í til­kynn­ingu frá stjórn­völdum sagði að áhrifin af því að Ísland væri á list­­anum væru óveru­­leg og Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja hafa haldið því fram að áhrifin á ver­unni á gráa list­anum hafi ekki verið nein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár