Höfðu meiri áhuga á að kaupa riffla fyrir sérsveit en að rannsaka efnahagsbrot

Menn sem lærðu allt sem þeir vita um lög­gæslu með því að horfa á amer­íska lög­reglu­þætti hafa skiln­ing á því að sér­sveitir þurfa riffla en skilja ekki að það þurfi vits­muna­lega þekk­ingu til að takast á við efna­hags­brot, segir sak­sókn­ari.

„Stjórn­mála­menn réðu þessu eins og oft­ast með ákvörð­unum sínum um fjár­veit­ingar. Það hafði eng­inn áhuga á að leggja manni lið í þessu þegar eftir því var leitað. Menn sem læra allt sem þeir vita um lög­gæslu af því að horfa á amer­íska löggu­þætti, hafa fullan skiln­ing ef það þarf að kaupa riffla eða annan búnað fyrir sér­sveit, en engan þegar skiln­ing­ur­inn kallar á vits­muna­lega þekk­ingu og þeir þurfa að lesa sér til. Þetta átti við um rann­sóknir efna­hags­brota yfir það heila. Svo allt í einu vökn­uðu menn við hrunið og fóru að skilja að kannski gætu refsilaga­brot í atvinnu­líf­inu haft afleið­ingar jafn vel fyrir þá sjálfa. En að ein­hver hafi haft áhuga á að hlusta á okkur sem höfðum á þessu þekk­ingu, það var ekki. Við gerðum það sem við gátum með það sem við höfðum.“

Þetta segir Helgi Magnús Gunn­ars­son, vara­rík­is­sak­sókn­ari, í ummælum við deil­ingu á frétt Kjarnans um að Ísland hafi verið verið sett á gráan lista hjá Financial Action Task Force (FATF) vegna ónógra varna gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Tilkynnt var um það síð­ast­lið­inn föstu­dag.

[adspot]Helgi Magnús var um ára­bil sak­sókn­ari efna­hags­brota hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, eða frá árinu 2007 og fram á haustið 2010. Hann stund­aði á sínum tíma fram­halds­nám í rann­sókn og sak­sókn efna­hags­brota við Polit­høg­skolen.

Hann segir í sam­tali við Kjarnann að „menn­irnir“ sem hann minnt­ist á í ummæl­unum væru í raun allt kerfið. Stjórn­mála­menn, ráðu­neyti dóms­mála og emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

Ísland reyndi að bregðast við en það var of seint

Kjarn­inn hefur fjallað ítar­­lega um þá stöðu sem hefur verið uppi í vörnum Íslands gagn­vart pen­inga­þvætti á und­an­­förnum árum. FATF skil­aði skýrslu um varnir Íslands gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­­­mögnun hryðju­verka í apríl í fyrra. Nið­­­ur­­­staða hennar var að Ísland fékk fall­ein­kunn. Lagaum­hverfi, virkni eft­ir­lits og fram­­­fylgd var í lama­­­sessi að mati FATF.

Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­­­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­­­leg­­­ar, og Ísland færi á lista FATF yfir ósam­vinn­u­þýð ríki myndi það, að mati inn­­­­­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­­­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­­­legan hnekki. Lík­­­urnar á auk­inni erlendri fjár­­­fest­ingu myndu drag­­ast saman og áhrif á láns­hæf­is­­mat íslenskra fyr­ir­tækja, meðal ann­­ars fjár­­­mála­­stofn­ana, yrðu óum­flýj­an­­leg.

[links]Kjarn­inn greindi frá því í lok ágúst að Ísland hefði skilað FATF eft­ir­­­­fylgn­is­­­­skýrslu vegna aðgerða sem Ísland hefur gripið til til að bæta varnir sínar gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­­­­­mögnun hryðju­verka, snemma í sum­­­­­­­ar.

Í eft­ir­­fylgn­is­­skýrslu sem birt var snemma í sept­­em­ber kom fram að Ísland hefði upp­­­­­fyllt 28 af 40 til­­­­­mælum sem FATF gerði kröfu um að lög­­­­­gjöf ríkja þurfi að upp­­­­­fylla. Ísland upp­­­­­fyllir ell­efu til­­­­­mæli að hluta en ein til­­­­­mæli, sem lúta að starf­­­semi almanna­heilla­­­fé­laga, töld­ust enn óupp­­­­­fyllt. Ráð­ist var í að keyra í gegn lög um þau fyrr í þessum mán­uði, og virt­ist þing­heimur þá vera að vakna til vit­undar um alvar­­leika máls­ins. Það dugði þó ekki til þess að koma í veg fyrir að Ísland end­aði á list­anum.

Ísland ætti bara að senda borðfána á fund FATF

Sá sem deildi frétt­inni sem Helgi Magnús tjáði sig um var lög­fræð­ing­ur­inn Eyjólfur Ármanns­son, sem starf­aði á árum áður sem aðstoð­ar­sak­sókn­ari hjá efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og þar áður hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu á árunum 2006 til 2011.

[adspot]Í stöð­upp­færslu sinni sagði hann: „Núna tókst ekki að redda sér í kapp­hlaupi við tím­ann (veit ekki um síð­asta frest, en við erum í raun að tala um fjölda ára), nokkuð sem okkur tókst við matið 2006 en engin var eft­ir­fylgnin. Nið­ur­staðan er að koma í ljós í dag, árið 2019.

Ekki var nokkur skiln­ingur á mik­il­vægi þessa mála­flokks á æðstu stöðum í stjórn­kerf­inu og áhugi og stuðn­ingur við hann eftir því. Við­horfið var að hér væri mála­flokkur úr öðrum heimi sem kæmi Íslandi í raun lítið við. Þetta væri eitt­hvað útlenskt, við­horf sem er áhuga­vert menn­ing­ar­legt fyr­ir­bæri innan íslenskrar stjórn­sýslu. Við yrðum samt að vera með sjóv og taka þátt. Fyrir Hrun sýndu bank­arnir áhuga. Aðal­at­riðið var að Ísland redd­aði sér með laga­breyt­ingum. Svipað við­horf virð­ist vera í gangi í dag, sbr. greinin.“

Eyjólfur segir í stöðu­upp­færsl­unni að hann hafi einu sinni sagt við sam­starfs­mann sinn í ráðu­neyti, þegar hann starf­aði þar, sem hafði mála­flokk­inn á sinni könnu að Ísland ætti bara senda íslenskan borð­fána á fund FATF. „Þátt­takan á fund­unum eftir FATF matið 2006 var ekki mikið meira en það, mið­að­ist við að hafa ein­hvern í sæti Íslands. Þessi nið­ur­staða hefur ekk­ert með fámenni að gera, heldur skiln­ings­leysi, heim­ótt­ar­skap og hreinan aula­skap. Klárt mál hvar ábyrgðin liggur, en sam­kvæmt venju skiptir það auð­vitað ekki nokkru máli.“

Búið að styrkja skrifstofuna

Efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra var sam­einuð emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara haustið 2011, en pen­inga­þvætt­is­skrif­stofan var skilin eftir hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Hún færð­ist svo til sér­staks sak­sókn­ara, sem nú heitir hér­aðs­sak­sókn­ari, sum­arið 2015. Þá starf­aði einn maður á skrif­stof­unni.

Skrif­stofan heitir nú skrif­stofa fjár­mála­grein­inga lög­reglu og hefur verið fjölgað til muna á henni und­an­farin miss­eri. Fjár­munir hafa verið settir í að kaupa upp­lýs­inga­kerfi til að taka á móti og halda utan um til­kynn­ingar um pen­inga­þvætti og eft­ir­lit með starf­semi innan bank­anna sjálfra hefur verið eflt. Inn­leið­ing þess kerfis er þó ekki að fullu til­búin.

Gagnrýndi andvaraleysi harkalega fyrir rúmum áratug

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Helgi Magnús hefur sett fram gagn­rýni á þessi mál. Þann 20. júní 2007 var birt við­tal við Helga Magnús í frí­blað­inu Blaðinu. Deildin hans stýrði þá öllum rann­sóknum á efna­hags­brotum sem falið gátu í sér sak­næmt athæfi, þar með talið rann­sóknum á pen­inga­þvætti.

Í við­tal­inu sagði Helgi Magnús: „Í alþjóða­væð­ingu við­skipta­lífs­ins og útrás fyr­ir­tækja felst að þau brot sem við erum að rann­saka eru að teygja sig mikið víðar um heim­inn. Það er fjöldi ríkja sem lifir á því að hjálpa mönnum að fela pen­ing­ana sína og við þurfum að fara þangað eftir upp­lýs­ingum[...]Ann­að­hvort rann­sökum við brotin og höfum þau úrræði sem til þarf eða afbrota­menn geta ákveðið að fara með fjár­svikin sín yfir nokkur landa­mæri til að koma í veg fyrir að rann­sóknin nái til­gangi sínum. Mér þykir það ekki ásætt­an­legt."

Ári síðar, 21. júní 2008, var birt annað við­tal við Helga Magnús í sama fjöl­miðli, sem hafði þá skipt um nafn og hét 24 stundir.

Þar sagði hann: „Efna­hags­brot hafa mörg hver alþjóð­legt eðli og teygja sig yfir fjölda landa. Við þurfum sér­hæft fólk sem hefur menntað sig í við­skipta­fræðum og góða lög­reglu­menn. En það kostar. Frá síð­asta sumri höfum við tapað fjórum full­mennt­uðum við­skipta­fræð­ingum, eða öllum slíkum sem við höfðum, til einka­geirans.“

Tæpum fjórum mán­uðum síðar hrundi íslenskt banka­kerfi á innan við viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár