Haraldur mun sitja áfram í embætti

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir að eins og staðan er núna þá muni Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri sitja áfram í emb­ætti.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Haraldur Johannessen
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Haraldur Johann­es­sen Mynd: Samsett mynd

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra átti fund með Haraldi Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra í morgun. Hún segir að Haraldur muni sitja áfram í emb­ætti eins og staðan er núna. Hún segir að fyrst fremst þurfi að tryggja að lög­gæsla virki í land­inu þrátt fyrir van­trausts­yf­ir­lýs­ingar.

[links]Átta af níu lög­reglu­stjórum í land­inu lýstu því yfir í gær að þeir van­treysta Har­aldi Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra og vilja hann burt úr emb­ætti en sam­kvæmt þeim var kornið sem fyllti mæl­inn við­tal sem Har­aldur veitti Morg­un­blað­inu, þar sem hann sagði óánægju innan lög­regl­unnar meðal ann­ars mega rekja til þess að hann væri að taka á spill­ingu innan lög­regl­unn­ar.

Rík­is­stjórnin kom saman til fundar í Stjórn­ar­ráð­inu í morgun þar sem mál­efni rík­is­lög­reglu­stjóra voru meðal ann­ars rædd. Áslaug Arna ræddi stutt­lega við frétta­menn eftir fund­inn. [adspot]

„Ég átti fund með rík­is­lög­reglu­stjóra í morgun. Ég bind vonir við að það sam­tal muni halda áfram. Ég hef nú þegar sett af stað vinnu í ráðu­neyt­inu sem fór af stað strax í síð­ustu viku. Það var sent bréf til lög­reglu­stjóra, rík­is­lög­reglu­stjóra, lög­reglu­manna og ann­arra hlut­eig­andi og sé fram á að þeirri vinnu miði hratt áfram og muni ljúka hratt,“ sagði Áslaug Arna að fundi loknum.

Aðspurð sagði hún að Haraldur mundi sitja áfram í emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra eins og staðan er núna. „Fyrst og fremst þarf að tryggja að lög­gæsla virki í land­inu þrátt fyrir van­trausts­yf­ir­lýs­ingar,“ sagði Áslaug Arna. Að öðru leyti vildi hún ekki tjá sig um hvað kom fram á fundi þeirra Haraldar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögregla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár