Kadeco fær aukið hlutverk við ráðstöfum lóða ríkisins

Fyrir tveimur árum var póli­tískur vilji til þess að leggja niður Kadeco, Þró­un­ar­fé­lag Kefla­vík­ur­flug­vallar. Í nýju fjár­laga­frum­varpi er félag­inu hins vegar tryggt umfangs­mikið hlut­verk við að ráð­stafa lóðum og landi í eigu rík­is­ins.

Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2020 er lagt til að gengið verði til samn­inga við Reykja­nesbæ, Suð­ur­nesjabæ og Isavia ohf. um skipu­lag og þróun lands í nágrenni Kefla­vík­ur­flug­vallar. „Jafn­framt að ganga til samn­inga við Þró­un­ar­fé­lag Kefla­vík­ur­flug­vallar ohf. um umsjón og fjár­mögnum verk­efn­is­ins og um fyr­ir­komu­lag og ráð­stöfun á lóðum og landi í eigu rík­is­ins.“

Þró­un­ar­fé­lagið, sem heitir Kadeco, mun því fá aukið hlut­verk við ráð­stöfun á lóðum og landi í eigu rík­is­ins á svæð­inu við og í kringum Kefla­vík­ur­flug­völl.

Það er umtals­verður við­snún­ingur frá fyrri áformum um félagið, en til stóð að leggja það niður fyrir tveimur árum síðan.

Upprunalega hlutverkinu lokið

Kjarn­inn greindi frá því í lok júní 2017 að til stæði að leggja starf­­semi Kadeco niður í þeirri mynd sem það hafði starfað. Skipt hafði verið um stjórn í félag­inu mán­uði áður og tekin hafði verið ákvörðun um að upp­­runa­­legu hlut­verki þess, að selja fast­­eignir á Ásbrú, væri lok­ið. Vilji væri þó að taka upp við­ræður við heima­­menn um hvernig væri hægt end­­ur­­skoða starf­­sem­ina með það í huga.

[adspot]Bene­dikt Jóhann­es­son, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði við Kjarn­ann að hann hafi lýst þess­­ari skoðun sinni á fundum með starfs­­fólki Kadeco í lok júní­mán­að­ar 2017.

Sumarið 2018 var hins vegar skip­aður nýr stjórn­ar­for­maður yfir Kadeco, Ísak Ernir Krist­ins­son. Hann var til­nefndur í starfið af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Ísak var 24 ára þegar hann tók við starf­inu, starf­aði sem flug­þjónn hjá WOW air og stund­aði háskóla­nám í við­skipta­fræði. Hann hafði auk þess verið virkur í flokks­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins um ára­bil og gegnt trún­að­ar­störfum í ung­linga­hreyf­ingu flokks­ins. Ísak sagð­ist í sam­tali við RÚV skilja gagn­rýni á að svo ungur maður væri orð­inn stjórn­ar­for­maður í mik­il­vægu fyr­ir­tæki en laun stjórn­ar­for­manns á mán­uði eru 270 þús­und krónur.

Ljóst var á þessum tíma að hug­myndir um fram­tíð Kadeco væru að breyt­ast. Engin áform voru lengur til staðar um að hætta starf­semi heldur væri framundan skoðun á hlut­verki „félags­ins við áfram­hald­andi þróun á landi rík­is­ins í kringum Kefla­vík­ur­flug­völl þar sem meðal ann­ars verður horft til sam­starfs Kadeco við sveit­ar­fé­lög og aðra lyk­il­að­ila á svæð­inu.“

Unnið eftir Aerotropolis hugmyndafræði

Þann 26. júní síð­ast­lið­inn var svo skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um sam­starf um skipu­lag, þróun, hag­nýt­ingu og mark­aðs­setn­ingu lands í nágrenni Kefla­vík­ur­flug­vallar. Undir hana skrif­uðu Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ásamt full­trúum Isavia, Reykja­nes­bæjar og Suð­ur­nesja­bæjar. Í frétta­til­kynn­ingu sem Marta Jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Kadeco, sendi frá sér af þessu til­efni kom fram að frá stofnun hafi Kadeco unnið mark­visst að því að laða að erlenda fjár­fest­ingu og alþjóð­leg fyr­ir­tæki á svæðið sem félagið fer með.

[adspot]Þar hafi svokölluð Aer­otropolis hug­mynda­fræði verið höfð að leið­ar­ljósi, en hún byggir á því að skapa megi mikil verð­mæti úr landi við flug­völl þar sem alþjóð­leg fyr­ir­tæki kjósi að stað­setja sig við vel tengda flug­velli. „Starf­semi þeirra fyr­ir­tækja sem sótt hefur verið hvað harð­ast eftir hefur verið greind með til­liti til stefnu Kadeco um hvers konar starf­semi er ákjós­an­leg­ust á svæð­inu. Gagnaver Verne Global og þör­unga­verk­smiðja Algalíf eru kannski skýr­ustu dæmin um slík fyr­ir­tæki en þau skara fram úr á alþjóð­legum mæli­kvarða á sínu svæði. Þau hafa fjár­fest fyrir millj­arða króna og verið sannur fengur fyrir svæðið[...]Fleiri fyr­ir­tæki af þessum skala, sem og hót­el­keðjur, dreif­ing­ar­að­ilar og hátækni­fyr­ir­tæki munu kjósa að stað­setja sig við Kefla­vík­ur­flug­völl ef boðið verður upp á aðlað­andi umhverfi, bæði í eig­in­legum og við­skipta­legum skiln­ingi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár