Ratcliffe segir að kaup á landi séu til verndar íslenska laxastofninum

Jim Ratcliffe, einn rík­asti maður Bret­lands, hefur stað­fest kaup sín á jörð­inni Brú­ar­landi 2 í Þistil­firði. Hann segir stór­tæk upp­kaup sín á jörðum á Íslandi vera til að verja íslenska laxa­stofn­inn.

Jim Ratcliffe, einn rík­asti maður Bret­lands og stofn­andi IEOS, segir að stór­fellt upp­kaup hans á jörðum á Íslandi séu hluti af yfir­stand­andi aðgerðum til verndar íslenska laxa­stofn­inum.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Ratcliffe sem send var út í morgun stað­festir hann kaup á jörð­inni Brú­ar­landi 2 í Þistil­firði. Hann hefur auk þess fjár­fest í land­ar­eignum í Vopna­firði og keypti meiri­hluta af jörð­inni Gríms­stöðum, þar sem íslenska ríkið er á meðal með­eig­enda.

Eign­ar­hald Ratcliffe á jörðum hér­lendis er í gegnum félagið Dylan S.A. sem er móð­ur­fé­lag um 20 ann­arra félaga sem eiga jarðir á Íslandi. Eignir Ratcliffe eru metnar á um 1.500 millj­arða íslenskra króna.

[adspot]Ratcliffe segir að hluti aðgerðum til verndar lax­inum sem áætl­aðar eru á næstu fimm árum snúi að því að útvíkka hrygn­ing­ar­svæði lax­ins með bygg­ingu nýrra laxa­stiga í Hafra­lónsá, Hofsá og Mið­fjarð­ará í Vopna­firði. Þá sé fyr­ir­huguð umfangs­mikil slepp­ing á frjóvg­uðum hrognum í þessum ám, auk Selár. Þetta sé í sam­ræmi við almenna veiði­reglu ánna um að veiddum fiski sé sleppt aftur.

Segist vera með heildstæða nálgun

Ratcliffe seg­ist einnig vera að vinna gegn jarð­eyð­ingu í sam­starfi við nær­sam­fé­lagið á Norð­aust­ur­landi og að bættu heilsu­fari vist­kerfis ánna, með fjár­fest­ingu í end­ur­ræktun skóga og end­ur­heimt gróð­ur­fars. Þá seg­ist hann standa að ítar­legri lang­tíma­rann­sókn á afkomu íslenska lax­ins í ánum og í norð­an­verðu Atl­ants­hafi. í sam­starfi við Haf­rann­sókna­stofnun og háskóla innan lands og utan, með það að mark­miði að auka lífslíkur teg­und­ar­innar sem mest. „Norð­aust­ur­land stendur hjarta mínu nær. Eftir því sem heim­sókn­unum þangað fjölgar eykst löngun mín til þess að gefa svæð­inu til baka, til að hjálpa Norður-Atl­ants­haf­s­lax­inum, sem er ógnað, og einnig til að styðja við sam­fé­lagið nærri ánum. Mín skoðun er að sjálf­bær lang­tím­a­nálgun með starf­semi sem stendur undir eigin fjár­mögnun skipti sköpum, geri lax­inum kleift að þríf­ast vel, ekki bara um skemmri tíma heldur um alla fram­tíð,“ segir Ratcliffe.

[adspot]Á meðal þess sem vernd­ar­á­ætl­unin á að fela í sér að er ný fjár­fest­ing og stand­setn­ing veiði­skála, þar sem að koma iðn­að­ar­menn og fyr­ir­tæki á svæð­inu. Um leið séu bændur á mark­vissan hátt hvattir til að halda búsetu á jörðum sem keyptar hafa verið, til að við­halda hefð­bundnum land­bún­aði og jarð­gæðum nærri ánum, og styðja með búsetu sinni með beinum hætti við nær­sam­fé­lagið.

Þá segir Ratcliffe að kaupin á meiri­hluta­eign í jörð­inni Gríms­stöðum, þar sem með­eig­endur eru íslenska ríkið og smærri hlut­hafar, séu birt­ing­ar­mynd heild­stæðrar nálg­unar sinnar á vernd­ar­starf. „Nátt­úru­vernd hefur alltaf verið og verður áfram eini til­gangur aðkomu minnar á Norð­aust­ur­landi Íslands. Ég vil leggj­ast á árar við að við­halda laxa­stofn­unum þar, og vinna náið með bændum og byggð­ar­lögum. Von mín er að úr starf­inu verði til sjálf­bær starf­semi í sátt við nátt­úr­una, sem einnig komi líf­ríki svæð­is­ins og sam­fé­lag­inu öllu til góða.“

Þverpólitísk samstaða um takmörkun

Jarð­ar­kaup erlendra aðila á Íslandi hafa verið mikið í umræð­unni und­an­farið, og annað veifið und­an­farin ár. Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, sagð­i við Morg­un­blaðið í júlí að hann bindi vonir við að frum­varp um jarða­kaup útlend­inga hér á landi verði til­búið snemma í haust. Hann vill jafn­framt ganga eins langt og hægt er með lög­gjöf­inni.

Sig­­urður Ingi sagði þróun jarð­ar­kaupa síð­­­ustu ára vera alveg óvið­un­and­i. „Þess vegna hafa stjórn­­völd verið með það til skoð­unar hvaða leiðir séu færar til að hafa þetta umhverfi með eðli­­legri hætti og lík­­­ara því sem við þekkjum bæði í Nor­egi og Dan­­mörku.“

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­­­sæt­is­ráð­herra, sagði í við­tali í kvöld­fréttum Rík­­is­­sjón­varps­ins í júlí að breiður póli­­­tísk­ur vilji væri til að tak­­­marka jarða­­kaup auð­­manna hér á landi. Það sé skýrt að ekki eigi að líta á land eins og hverja aðra vöru eða þjón­­­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

laxveiði

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár