Ratcliffe styrkir rannsóknaáætlun um verndun íslenska laxastofnsins um 80 milljónir

Jim Ratclif­fe, einn rík­asti maður Bret­lands og stofn­andi INEOS, gerði sam­komu­lag við Haf­rann­sókn­ar­stofnun um rann­sókn­ar­á­ætlun á íslenska laxa­stofn­inum.

Jim Ratcliffe.
Jim Ratcliffe. Mynd: úr safni

Jim Ratclif­fe, einn rík­asti maður Bret­lands og stofn­andi INEOS, sem hefur keypt upp tugi jarða á Íslandi á und­an­förnum miss­erum, hefur nú gert sam­komu­lag við Haf­rann­sókna­stofnun um rann­sókn­ar­á­ætlun í sam­vinnu við rann­sókna- og ráð­gjaf­ar­stofnun hafs og vatna. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Ratcliffe.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni er rann­sóknin hluti af starfi Ratcliffe til verndar íslenska laxa­stofn­inum og sam­komu­lagið við Haf­rann­sókna­stofnun hluti af sjálf­bærri lang­tíma­vernd­ar­á­ætlun sem miði að því að lax­veiðar á Íslandi verði áfram „þær bestu og sjálf­bær­ustu í heimi.“

[adspot]Rann­sóknin, sem er að fullu fjár­mögnuð af Sir Jim, nær til nýrra sviða vist­fræði og hegð­unar lax­ins. Friðjón Frið­jóns­son, tengiliður Ratcliffe við fjöl­miðla, segir sam­tali við Kjarnann að upp­hæðin sem renni til rann­sókn­ar­á­ætl­unnar nemi 80 millj­ónum króna.

Segist vilja vernda Atlantshafslaxinn

Samkvæmt til­kynn­ing­unni er rann­sóknin er hluti af fyr­ir­ætl­unum Ratcliffe um vernd Atl­ants­haf­s­lax­ins á Norð­aust­ur­landi. Rann­sókn­ar­á­ætlun Haf­rann­sókna­stofn­unar verður jafn­framt unnin í sam­starfi við líf­vís­inda­deild Imperial College í London.

[links]Dokt­or­snemar frá hvorri stofnun munu fram­kvæma rann­sóknir sem ná til núver­andi stærðar stofna lax­ins, gena­kort­lagn­ingar og hátækni­merk­inga fiska sem leiða á í ljós tengslin á milli umhverfis og hegð­unar laxa í ánum og end­ur­komu þeirra í árnar úr hafi.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar verða birtar í vís­inda­ritum og styðja við vernd­ar­starfið í og í nágrenni lax­ánna. Þegar nið­ur­stöður liggja fyrir verður þeim einnig deilt með íslenskum stjórn­völdum og við­eig­andi sveit­ar­fé­lögum, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Gröftur hrogna hefst í haust

Samhliða nýju rann­sókn­unum og end­ur­heimt gróð­ur­fars, verður í haust, með aðstoð og undir sér­fræði­hand­leiðslu Haf­rann­sókna­stofn­unar, haf­inn árviss gröftur hrogna í ánum. Um einni milljón hrogna úr fiski af svæð­inu verður á hverju ári komið fyrir í efri svæðum ánna þar sem lax­inn hefur ekki kom­ist áður, og opn­aðar nýjar vaxt­ar­lendur til þess að bæta vöxt og líf­væn­leika fiskanna á mik­il­vægu fyrra skeiði lífs­hlaups þeirra, að því er kemur fram í til­kynn­ing­unni.

Þá segir að stækkun hrygn­ingar- og upp­vaxt­ar­svæða lax­ins með bygg­ingu nýrra laxa­stiga í Hafra­lónsá, Hofsá, og Mið­fjarð­ará í Vopna­firði, er jafn­framt hluti af lang­tíma­á­ætl­unum um að auka við­gang íslenska lax­ins. Fram­kvæmd­unum miðar áfram með aðstoð fjár­fest­ingar af hálfu Sir Jim og Strengs. Í Mið­fjarð­ará var í fyrra lokið við og opn­aður laxa­stigi. Þar hefur lax þegar náð ból­festu á nýjum svæðum í efri hluta árinnar, sem bætir við 4,5 kíló­metrum af nýju búsvæði fyrir ung­lax­inn.

Allur hagn­aður af starf­semi Strengs mun jafn­framt renna aftur til vernd­ar­starfs laxa á Norð­aust­ur­landi. Með verk­efn­unum er haldið áfram að vernda árnar og stækka upp­vaxt­ar­svæði þeirra, um leið og unnið er með bændum og sveit­ar­fé­lögum að vernd búsvæð­is­ins, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

laxveiði

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár