Ríkisstjórnin samþykkir að leggja þriðja orkupakkann fyrir Alþingi

Utan­rík­is­ráð­herra mun leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu fyrir Alþingi um inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans hér á landi í lok mán­að­ar­ins. Ljóst er hins vegar að skiptar skoð­anir eru um þriðja orku­pakk­ann innan þing­flokk­anna.

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun til­lögu utan­rík­is­ráð­herra um að leggja fyrir Alþingi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans. Í álykt­un­inni felst að þær reglur sem eiga við um flutn­ing raf­orku yfir landa­mæri eru inn­leiddar með þeim laga­lega fyr­ir­vara að þær komi ekki til fram­kvæmda nema að Alþingi heim­ili lagn­ingu raf­orku­strengs. Þá þarf jafn­framt að taka á nýjan leik afstöðu til þess hvort regl­urnar stand­ist stjórn­ar­skrá.

Í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu er tekið sér­stak­lega fram að sé sam­eig­in­legur skiln­ingur íslenskra stjórn­valda og fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins að stór hluti ákvæða þriðja orku­pakk­ans gilda ekki eða hafi neina raun­hæfa þýð­ingu fyrir Ísland á meðan eng­inn raf­orku­sæ­strengur er til staðar á innri raf­orku­markað ESB. Jafn­framt kemur fram í til­kynn­ing­unni að gert sé ráð fyrir að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, leggi þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una fyrir Alþingi fyrir lok mán­að­ar­ins.

Skiptar skoðanir um þriðja orkupakkann

[links] Ljóst er að þriðji orku­pakk­inn er orðin að heitu póli­tísku máli hér á landi en skiptar skoð­anir eru um inn­leið­ingu pakk­ans. Annars vegar eru það þeir sem hafa talað um að orku­pakk­inn sé fram­sal á full­veldi Íslands til Brussel en síðan þeir sem telja samn­ing­inn vera afar mik­il­vægan efna­hag lands­ins og að pakk­inn sé í raun frekar til þess fall­inn að styrkja full­veldi og sjálf­stæði lands­ins frekar en hitt.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, er einn þeirra sem hefur varað við þriðja orku­pakk­anum og sagði í við­tali við RÚV ótt­ast að með inn­leið­ingu hans myndi ákvörðun um sæstreng og sölu raf­orku um hann fara úr höndum Íslend­inga. Svipuð sjón­ar­mið hafa heyrst innan úr Fram­sókn­ar­flokknum en þar hefur mið­stjórn flokks­ins ályktað á þann veg að það eigi að hafna orku­pakk­anum, og það má einnig segja um ein­stök félög innan flokks­ins, eins og til dæmis Fram­sókn­ar­menn í Reykja­vík.

Viðhorf Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar til Evr­ópu­sam­bands­ins er þekkt, báðir flokk­arnir hafa verið hlynntir því að ganga í Evr­ópu­sam­bandið og taka upp evru sem mynt, en þeir eru líka báðir hlynntir frekara alþjóða­sam­starfi og áfram­hald­andi við­skipta­sam­bands við Evrópu á grund­velli EES-samn­ings­ins. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar sagði í við­tali í sjón­varps­þætt­inum 21 í nóv­em­ber í fyrra að búið væri að búa til ein­hvern strá­mann úr ein­hverju sem engin ógn er í. Hún sagði þriðja orku­pakk­ann fela í sér aukna neyt­enda­vernd, afnám hind­r­ana, stuðli að frjálsum við­skiptum og und­ir­striki hvað sam­starfið um Evr­ópska efna­hags­svæðið snú­ist um.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði í sama þætti að Íslandi geti ekki bara valið það sem landið vilji úr EES-samn­ingum, en látið annað eiga sig. Enn fremur sagði hann að það kæmi vel til greina að stjórn­ar­and­staðan komi þeim hluta stjórn­ar­innar sem vilji klára inn­leið­ingu þriðja pakk­ans til bjargar ef með þurfi, þótt það verði ekki án skil­yrða.

Afstaða Vinstri grænna er hins vegar óljós­ari en stefna flokks­ins hefur lengi verið að best sé fyrir Ísland að standa fyrir utan Evr­ópu­sam­bandið. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður flokks­ins, lét þó hafa eftir sér að mikið af rang­færslum hafi fengið að stýra umræð­unni um orku­pakk­ann, og að það kunni aldrei góðri lukku að stýra.

Sjálfstæðisflokkurinn klofinn

Skiptar skoð­anir eru um þriðja orku­pakk­ann á milli þing­flokka en einnig eru skiptar skoð­anir innan flokka og þá sér­stak­lega innan raða Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hald­inn var fjöl­mennur fundur í Val­höll í lok ágúst á síð­asta ári en á fund­inum var þriðji orku­pakk­inn til umfjöll­unar. Það voru hverfa­fé­lög Sjálf­stæðis­flokks­ins í Smá­í­búða-, Bú­staða- og Foss­vogs­hverfi og Hlíða- og Holta­hverfi í Reykja­vík sem stóðu fyrir fund­inum. Eftir fund­inn sendi fund­ur­inn frá sér ályktun þar sem skorað var „ein­­­­dregið á for­ystu Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokks­ins að hafna þriðja orku­­­pakka Evr­­­­ópu­­­­sam­­­­bands­ins á þeim grunni að hann stang­­­­ast á við ákvæði stjórn­­­­­­­ar­­­­skrár­inn­­­­ar, opn­ar Evr­­­­ópu­­­­sam­­­­band­inu leið til yf­ir­ráða yfir einni helstu auð­lind Íslands og hækk­­­­ar verð á raf­­­­orku og af­­­­leið­ing­ar til langs tíma eru óvis­s­­­­ar.“

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, iðn­aðar-, dóms­mála-, ferða­mála- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hefur svarað þessum sjón­ar­miðum sem komu fram á fund­inum, um að orku­pakk­inn feli í sér frek­legt fram­sal á full­veldi þjóð­ar­innar, sem rang­indum. Hún hefur meðal ann­ars vitnað til lög­fræði­á­lita sem unnin voru af hennar beiðni þar sem fram kemur að Ísland myndi stjórna sínum orku­auð­lindum alveg óháð þriðja orku­pakk­anum. Ekki virð­ist það þó duga til að eyða efa­semd­unum innan flokks­ins.

Hörð átök fram undan

Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og áhrifa­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum í ára­tugi, segir í pistli á vef­síðu sinni í gær að fram undan séu hörð átök innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins um þriðja orku­pakk­ann. Hann segir að senni­lega verði átök innan Fram­sókn­ar­flokks­ins en að staðan innan Vinstri grænna sé hins vegar óljós­ari.

Hann segir að það hafi komið í ljós síð­ast­liðið haust að gras­rótin innan Sjá­fl­stæð­is­flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé ekki til­búin að taka því þegj­andi að þing­menn flokks­ins taki þátt í því að sam­þykkja málið. Styrmir segir að ef frum­varpið verði lagt fram þá sé ekki ólík­legt að for­ystu­menn stjórn­mála­flokk­anna muni leggja áherslu á að „keyra málið“ í gegnum þingið á mjög skömmum tíma

Styrmir segir jafn­framt að þeir þing­menn flokks­ins sem greiði atkvæði með orku­pakk­anum muni missa traust flokks­manna með „afger­andi hætti“. Verði þeir þess ekki varir á næstu vikum munu þeir finna það skýrt og greini­lega í próf­kjörum vegna næstu alþing­is­kosn­inga. „Hér er nefni­lega ekki á ferð venju­leg póli­tískt álita­efni heldur grund­vall­ar­mál, sem varðar full­veldi Íslands og yfir­ráð yfir einni af helztu auð­lindum lands­ins,“ segir Styrmir. Enn fremur segir hann að á næsta lands­fundi muni afleið­ing­arnar koma fram í „harka­legum deilum“ í umræðum um málið og auk þess við kjör for­ystu­manna. Styrmir segir jafn­framt að þá sé ekki ólík­legt að umræður hefj­ist fyrir alvöru um stofnun sér­staks Sjálf­stæð­is­fé­lag um full­veldi Íslands sem hefur stöku sinum verið reifað á und­an­förnum mán­uðum.

Styrmir segir að átök af þessu tagi muni óhjá­kvæmi­lega koma fram í fylgi floks­ins en í ljósi þess að fylgi flokks­ins virð­ist komið niður í fjórð­ung megi flokk­ur­inn alls ekki við meira fylgis­tapi. „Á að trúa því að þing­menn vilji kalla þessi ósköp yfir þann flokk, sem hefur hafið þá til vegs á Alþingi og í rík­is­stjórn?“ segir Styrmir að lokum.

Hvað felst í þriðja orkupakkanum?

Fyrsta raf­orku­til­skipun ESB er frá 19. des­em­ber 1996 en frá þeim tíma hefur raf­orka verið skil­greind eins og hver önnur vara á innri mark­aði ESB. Til­skip­unin var inn­leidd hér á landi með raf­orku­lögum. Annar orku­pakk­inn var síðan tek­inn inn í EES samn­ing­inn 2005. Íslensk stjórn­völd gerðu fyr­ir­vara sem hlutu sam­þykki á EES-vett­vangi og var annar orku­pakk­inn inn­leiddur hér með breyt­ingum á raf­orku­lögum árið 2008.

Evr­ópu­sam­bandið inn­leiddi síðan þriðja orku­pakk­ann árið 2009. Alþingi var síðan kynnt málið árið 2010 og fóru fram við­ræður milli emb­ætt­is­manna og þing­manna sem leiddu meðal ann­ars til þess að á EES-vett­vangi var árið 2017 fall­ist á svo­nefnda tveggja stoða lausn gagn­vart EFTA/EES-ríkj­unum: Noregi, Íslandi og Liechtenstein. Af hálfu íslenskra stjórn­valda er slíkrar lausnar kraf­ist vegna skil­yrða sem sett voru strax árið 1993 í nafni full­veldis. Sam­eig­in­lega EES-nefndin tók ákvörðun árið 2017 um að inn­leiða ætti þriðja orku­pakk­ann í EES-samn­ing­inn. Orku­pakk­inn verður þó aðeins inn­leiddur hér á landi með sam­þykki alþingis.

Þegar talað er um hinn svo­nefndi þriðji orku­pakki er einkum vísað til nokk­urra grund­vall­ar­at­riða fyrir orku­mark­að­inn innan Evr­ópu­sam­bands­ins og á EES-svæð­inu. Í fyrsta lagi er það til­skipun sam­eig­in­legar reglur fyrir innri markað fyrir raf­orku. Í öðru lagi er það til­skipun um sam­eig­in­legar reglur fyrir jarð­gas. Í þriðja lagi er það reglu­gerð um að koma á fót stofnun um sam­starf eft­ir­lits­að­ila á orku­mark­aði. Sú stofnun mun hafa það verk­efni öðrum fremur að skera úr deilu­málum sem vakna, og styðja við eft­ir­lit með orku­mörk­uðum í aðild­ar­lönd­unum.

Í fjórða lagi er það reglu­gerð um aðgang að raf­orku­neti yfir landa­mæri og í fimmta lagi er það reglu­gerð um aðgang að jarð­ga­s­neti yfir landa­mæri. Eins og sést af þessum grund­vall­ar­at­riðum þá varðar þriðji orku­pakk­inn fyrst og síð­ast aðstæður eins og þær eru víða í Evrópu, þar sem raf­orku­kerfi þjóða er tengd, og er raunar lagt upp með það inn í fram­tíð­ina að tengja þau enn frekar. Meðal ann­ars til að tryggja betri nýt­ingu á orku og ýta undir vist­vænni orku­gjafa. Ekki síst af þessum sökum er verið að leggja sæstrengi og byggja upp jarð­gasleiðslur. Ísland hefur mikla sér­stöðu hvaða orku­auð­lindir varðar, en stærstu kaup­endur raf­orkunnar á Íslandi eru álverin í land­inu. Þau nota um 80 pró­sent af raf­orkunni meðan heim­ili og önnur fyr­ir­tæki nota afgang­inn. Ísland er með ein­angrað raf­orku­kerfi, sem ekki er tengt við Evrópu með sæstreng.

Stór hluti orkupakkans hafi enga raunhæfa þýðingu fyrir Ísland á meðan enginn raforkusæstrengur er til staðar

Þann 20. mars síð­ast­lið­inn ræddu þeir Guð­laugur Þór og Miguel Arias Cañete, orku- og lofts­lags­mála­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins, um þriðja orku­pakk­ann með hlið­sjón af aðstæðum hér­lendis. Í frétta­til­kynn­ingu utan­rík­is­ráðu­neyts­ins kemur fram að stór hluti ákvæða hans, þ.e. þau sem varða við­skipti og grunn­virki fyrir raf­orku yfir landa­mæri, gilda ekki eða hafi neina raun­hæfa þýð­ingu fyrir Ísland á meðan eng­inn raf­orku­sæ­strengur er til staðar á innri raf­orku­markað ESB. Enn­fremur er þar áréttað að ákvörð­un­ar­vald um raf­orku­strengi milli Íslands og innri raf­orku­mark­aðar ESB liggi alfarið hjá íslenskum stjórn­völdum.

„Ég hef tekið gagn­rýni sem fram hefur komið vegna þriðja orku­pakk­ans mjög alvar­lega og því leitað ráð­gjafar hjá virt­ustu sér­fræð­ingum okkar á þessu sviði. Ég tel hafið yfir allan vafa að með þeirri lausn sem ég legg til á grund­velli þess­arar ráð­gjafar felst eng­inn stjórn­skip­un­ar­vandi í upp­töku og inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans í íslenskan rétt. Með því að úti­loka stjórn­skipu­lega óvissu hefur stærstu hindr­un­inni verið rutt úr vegi fyrir inn­leið­ingu og upp­töku þriðja orku­pakk­ans. Í þessu sam­bandi skiptir líka afar miklu máli sá sam­eig­in­legi skiln­ingur sem fram kom í við­ræðum okkar orku­mála­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins um þá sér­stöðu sem Ísland nýtur gagn­vart sam­eig­in­legum orku­mark­aði. Nú hafa skap­ast for­sendur til að taka umræð­una á þingi um hvað raun­veru­lega felst í orku­pakk­anum,“ segir Guð­laugur Þór í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár