Þriðji orkupakkinn „strámaður“ sem engin ógn er að

Formaður Við­reisnar segir for­ystu­menn Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks „skít­hrædda“ við Mið­flokk­inn og segja þess vegna ekk­ert um þriðja orku­pakk­ann. Formaður Sam­fylk­ingar segir málið keyrt áfram af „lygum og útúr­snún­ingi“.

„Það er verið að búa til ein­hvern strá­mann úr ein­hverju sem er engin ógn í í gegnum þennan þriðja orku­pakka. Í raun­inni voru báðir fyrstu pakk­arnir miklu stærri og mik­il­væg­ari. Sér­stak­lega fyrir íslenska neyt­endur[...]Það eru aðrar til­skip­anir sem hafa haft miklu meiri áhrif á okkur, eins og til dæmis per­sónu­vernd­ar­til­skip­unin.“

[links]Þetta segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­syni, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 sem frum­sýndur var á Hring­braut á mið­viku­dags­kvöld þegar rætt var um þriðja orku­pakk­ann svo­kall­aða.

Auk hennar var Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gestur þátt­ar­ins. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.

Þor­gerður Katrín kall­aði eftir því að rík­is­stjórnin horf­ist í augu við eigin ábyrgð þegar kæmi að þriðja orku­pakk­anum og sagði að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra þyrfti að fara að stíga fram og þora að segja eitt­hvað, í stað þess að halda sig á hlið­ar­lín­unni og láta ráð­herra orku­mála, Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, taka mesta skafl­inn og umræð­una um málið. „Ég sakna þess nátt­úru­lega að for­ysta og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og líka for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sýni nú svolitla for­ystu í þessu máli sjálfir og stigi inn í en séu ekki í ein­hverju stressi gagn­vart Mið­flokknum.[...]„Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins þeir segja ekki bofs af því þeir eru svo laf- skít­hræddir við Mið­flokk­inn.“

[adspot]Hún segir þriðja orku­pakk­ann fela í sér aukna neyt­enda­vernd, afnám hind­r­ana, stuðli að frjálsum við­skiptum og und­ir­striki hvað sam­starfið um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) snú­ist um. „Það er verið að efla stjórn­sýsl­una að mínu mati og ef menn ætla að fara í það að reyna að grafa undan EES, komið þá í guð­anna bænum hreint til dyr­anna og segið við skulum taka umræð­una um EES. En ekki fela sig á bak­við popúl­isma eða eitt­hvað garg á Útvarpi Sögu.“

Stjórnarandstaðan gæti hjálpað málinu í gegn en ekki án skilyrði

Logi segir að það sé holur hljómur í mál­flutn­ingi and­stæð­inga þriðja orku­pakk­ans, sem leiddur er af Mið­flokknum. Vara­for­maður og for­maður hans, Gunnar Bragi Sveins­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, hafi verið ann­ars vegar utan­rík­is­ráð­herra og hins vegar for­sæt­is­ráð­herra þegar und­ir­bún­ingur að inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans hafi átt sér stað.

Hann segir það vel koma til greina að stjórn­ar­and­staðan komi þeim hluta stjórn­ar­innar sem vilji klára inn­leið­ingu þriðja pakk­ans til bjargar ef með þurfi, þótt það verði ekki án skil­yrða. „Við sáum það auð­vitað í Noregi að það gerð­ist að Verka­manna­flokk­ur­inn kom inn og keyrði þetta mál í gegnum rík­is­stjórn­ina en Verka­manna­flokk­ur­inn gerði það ekki án skil­yrða. Og við munum áskilja okkur allan rétt til þess að ræða hvaða aðrar breyt­ingar þurfa að eiga sér stað hér á umhverf­inu í stjórn­mál­unum.

Logi segir að Ísland geti ekki bara valið það sem landið vilji úr EES-samn­ingnum, en látið annað eiga sig. „Við eigum hér í sam­bandi við fjölda­mörg ríki sem hafa fært okkur mik­inn efna­hags­legan ávinn­ing.[...]Það skiptir okkur miklu máli. Það er mik­ill ábyrgð­ar­hluti að nota svona mál, keyra það áfram með lygum og útúr­snún­ingi, til þess að koma í raun­inni sprungum í okkar risa­stóra hags­muna­mál sem er EES-samn­ing­ur­inn. Ég tek undir með Þorgerði Katrínu að þá verða menn bara að segja það hreint út að þeir vilji ekki þann samn­ing.“

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, var gestur Þórðar Snæs í þætt­inum 21 á Hring­braut 13. októ­ber síð­ast­lið­inn þar sem hún ræddi þriðja orku­pakk­ann. Hægt er að sjá við­talið við hana í heild hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár